Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 40

Fréttablaðið - 11.11.2022, Page 40
Magnús var meðvitaður um eigið ágæti en var líka mikill föðurlandsvinur og vildi bjarga Íslendingum. Anna Agnarsdóttir Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingiríður (Inga) Árnadóttir Sléttuvegi 17, 103 Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 7. nóvember. Jarðsett verður frá Bústaðakirkju, mánudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Guðríður St. Sigurðardóttir Guðbrandur Sigurðsson Rannveig Pálsdóttir Einar Sigurðsson Antoníus Þ. Svavarsson Inga Rós, Ása Björk, Bragi Þór, Valdís Guðrún, Anna Katrín, Ragna Kristín, Ingi Hrafn, Sigurður Ingi, Valgeir Daði, Birkir Atli og barnabarnabörn Sjálfsævisaga Magnúsar Stephen- sen dómstjóra verður tekin fyrir á málþingi í Þjóðarbókhlöðunni um helgina. arnartomas@frettabladid.is Félag um átjándu aldar fræði stendur fyrir málþingi í Þjóðarbókhlöðunni á morgun þar sem fjórar íslenskar sjálfs- ævisögur frá átjándu og nítjándu öld verða teknar fyrir. Meðal þeirra sem taka til máls verður Anna Agnarsdóttir, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Erindi hennar nefnist Dirfska og vandræða- gangur Magnúsar Stephensen dóm- stjóra. Meðvitaður um eigið ágæti „Þau sem standa að málþinginu báðu mig að tala um sjálfsævisögu Magn- úsar, sem er vissulega mjög skemmtileg, en hún nær bara til 1788 þegar hann var enn þá ungur maður,“ segir Anna. „Ég mun þess vegna styðjast við aðrar per- sónulegar heimildir til að gefa skýrari mynd af manninum sjálfum.“ Magnús fæddist á Leirá í Leirársveit þann 27. desember 1762, sonur Ólafs Stephensen síðar stiftamtmanns og konu hans Sigríðar Magnúsdóttur. Sjálfsævisögu Magnúsar segir Anna merkilega að því leyti að hún er skrifuð í þriðju persónu og að Magnús hafi ekki beint þjáðst af minnimáttarkennd. „Hann er algjörlega meðvitaður um ágæti sitt, hvað hann er greindur og vel af guði gerður. Hann skrifar eins og eng- inn myndi skrifa í dag,“ útskýrir Anna, sem telur Magnús þó hafa átt talsverða inneign fyrir hrokanum. „Hann var óneitanlega merkur Íslendingur sem átti síðar meir eftir að bjarga þjóðinni.“ Sendiferðir fyrir konunginn Magnús var vel menntaður frá föður- húsum og sendur til háskólans í Kaup- mannahöfn þar sem hann stundaði nám, ekki einungis guðfræði og lögfræði heldur líka náttúrufræði, sem var sjald- gæft á þeim tíma. „Hann stendur sig frábærlega vel og rúmlega tvítugur er hann valinn af konungi til að fara í tvo leiðangra til Íslands,“ segir Anna. „Fyrst með verðandi stiftamtmanni Íslands til að kanna afleiðingar Skaftárelda og síðan til að annast sölu Skálholtsjarða, þegar konungur ákvað að best væri að íslenskir leiguliðar eignuðust ábýlisjarðir sínar.“ Sídansandi og matelskur Að sögn Önnu var það ekki bara hefð- bundið nám Magnúsar sem gerði hann einstakan á sínum tíma. „Hann spilar á hljóðfæri, bæði á flautu og orgel, sem hann flutti til Íslands síðar meir. Magnús lýsti því sjálfur sem ungur maður að hann væri sólginn í dans og var sídansandi,“ segir Anna. Sjálfsævisaga Magnúsar er einnig góð heimild um hversu erfitt það var oft að sigla milli Danmerkur og Íslands. „Vegna veðurs þurfti hann að dvelja einn vetur í Noregi hjá Þorkeli Fjeldsted lögmanni, sem átti sæti í Landsnefndinni fyrri, en konan hans var alveg frábær kokkur. Magnúsi fannst maturinn hennar einkar gómsætur og skrifaði niður upp- skriftirnar.“ Þegar Magnús kom aftur til Íslands vildi hann gefa uppskriftirnar út, en sem karlmaður var ekki við hæfi að gefa frá sér matreiðslubók. „Hann gefur bókina þess vegna út í nafni mágkonu sinnar Mörtu Maríu Stephensen, en í rauninni er þetta mat- reiðslubók eiginkonu Þorkels Fjeldsted.“ Íslandsvinurinn Banks Þar sem ævisagan endar svo snemma mun Anna teygja söguna lengra og fara yfir það hvernig hann nýtti kynni sín sem drengur af breska náttúrufræðingn- um Joseph Banks, til að koma Íslandi til bjargar þegar Napóleonsstyrjaldirnar hófust 1807. Eins og Fréttablaðið greindi frá var opnuð sýning um Banks í Þjóðar- bókhlöðunni, sem stendur yfir til 20. nóvember. „Magnús var meðvitaður um eigið ágæti en var líka mikill föðurlandsvinur og vildi bjarga Íslendingum,“ segir Anna. „Hann skildi vel hversu máttlitlir Danir voru eftir að Bretar sigldu brott með flotann í september 1807. Íslensku kaup- skipin voru mörg hertekin og hungurs- neyð vofði yfir.“ Það var ekkert annað að gera í stöð- inni en að leita til óvinanna sjálfra, sem réðu öllu á Atlantshafinu, til að leyfa aðflutning nauðsynja til Íslands. „Þetta var því djörf ákvörðun hjá Magnúsi, sem var þá dómstjóri í Lands- yfirréttinum og konunglegur embættis- maður.“ Afskipti Magnúsar höfðu farsæl áhrif og árið 1810 lýsti Georg III. því yfir í til- skipun í trúnaðarráði sínu, að Íslending- ar væru ekki óvinir Breta eins og Danir, heldur hlutlausir í ófriðinum þrátt fyrir að vera danskir þegnar. Magnús reyndist því bjargvættur landa sinna. Málþingið á morgun stendur yfir á milli 13.30 og 16.15. Þar verða alls fjögur erindi, þar sem einnig verður rýnt í sjálfsævisögur og endurminningar Þor- steins Péturssonar á Staðarbakka, sýslu- mannsfrúarinnar Gythe Thorlacius og séra Friðriks Eggertz. n Átti inneign fyrir hrokanum Það verður seint hægt að segja að Magnús hafi þjáðst af minnimáttar- kennd. Myndin er eftir Andreas Flint, um 1800 þegar Magnús var skip- aður dómstjóri í Landsyfirréttinum. MYND/AÐSEND Fyrsta matreiðslubókin á íslensku Einfalt matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur, var fyrsta mat- reiðslubók sem kom út á íslensku, gefin út í Leirárgörðum árið 1800. Þrátt fyrir að bókin hafi verið gefin út undir nafni Mörtu Maríu Stephensen, er almennt viðurkennt að Magnús Stephensen hafi verið höfundur hennar eins og hann segir frá í ævisögu sinni. Uppskriftirnar í bókinni eru nær allar erlendar að uppruna og gefa þannig ekki góða mynd af íslenskri matargerð á þeim tíma og höfðu ekki mikil áhrif á íslenska matarmenningu. Bókasafn Fjallabyggðar á upphaflegu bókina sem gefin var út árið 1800 en þar biður eiginmaður Mörtu Maríu, Stefán Stephensen, lesendur afsökunar á orðfæri og stíl kversins. Bókin var endur- útgefin árið 1998 af Söguspekingastifti. 1918 Fyrri heimsstyrj- öldinni lýkur með því að Þjóðverjar leggja niður vopn og er því fagnað víða. Í Reykjavík blakta fánar þó í hálfa stöng vegna spænsku veikinnar. 1920 Matthías Jochums- son er gerður að heiðursborgara Akureyrar og heiðursdoktor í guð- fræði við Háskóla Íslands, en hann heldur upp á 85 ára afmæli. 1928 Iðnskólinn í Hafnarfirði er stofnaður. 1943 Leigubílastöðin Hreyfill er stofnuð. 1945 Framkvæmdir hefjast við Vestmannaeyjaflugvöll. 1958 Skipaflutningafyrirtækið Hafskip stofnað. 1961 Sparisjóður vélstjóra er stofnaður. 1962 Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson. Leikritið var sýnt 205 sinnum og alltaf fyrir fullu húsi. 1962 Bandaríska leikkonan Demi Moore fædd. arnartomas@frettabladid.is Árbæjarsafn býður upp á fjölskyldusmiðjuna Þráð á morgun í tengslum við sýninguna Karólína vefari, sem nú stendur yfir á safninu. Smiðjan fer fram í Kornhúsinu á milli klukkan 13 og 15, þar sem rætt verður um eiginleika og möguleika ullar- innar og hversu mikilvæg ullin hefur reynst íslensku þjóðinni í gegnum árin. Fræðslan fer fram í formi sýnikennslu og frásagnar auk þess sem þátttakendur fá leiðsögn í að vefa í vefnaðarramma og kynnast möguleikum þess að vefa á þennan máta. Kennari á smiðjunni er Sigríður Ólafsdóttir, listgreinakennari og vöru- hönnuður. Sýningin sem smiðjan byggir á varpar ljósi á líf Karólínu Guðmundsdóttur (1897-1981) sem lærði vefnað í Kaupmanna- höfn og rak um áratugaskeið vefstofu við Ásvallagötu í Reykja- vík. n Þráður í Árbæjarsafni Ungir sem aldnir geta fengið kennslu í að vefa í vefnaðarramma. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 11. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.