Símablaðið - 01.12.1982, Page 9
BÓKUN1
Aðilar eru sammála um að endurskoða
punktakerfi stöðvarsjóra Pósts og síma innan
félagsins. Við þá endurskoðun verði meðal
annars höfð hliðsjón af tillögum F.Í.S. frá
29. ágúst 1982.
Stefnt skal að því að endurskoðun þessari
ljúki fyrir 1. maí 1983, þannig að hún geti
orðið grundvöllur að röðun stöðvarstjóra í
næstu sérkjarasamningum aðila.
BÓKUN 2
Aðilar samningsins eru sammála um að
beita sér fyrir því að fram fari athugun á
starfsréttindum línumanna og símsmiða hjá
Pósti og síma. Fjármálaráðuneytið mun gera
menntamálaráðuneytinu grein fyrir efni þess-
arar bókunar.
Reykjavík, 3. september 1982.
Þorsteinn Geirsson Ágúst Geirsson
Viðbót við sérkjarasamninginn
í sambandi við gerð sérkjarasamningsins varð að samkomulagi að nokkur samningsatriði,
væru sem hluti af sérkjarasamningnum, leyst með yfirlýsingum viðkomandi aðila.
Þessi atriði eru birt hér á eftir.
Frá Samgönguráðuneytinu
Með vísun til samningaviðræðna við Félag ísl. símamanna nú nýverið hefur ráðuneytið
ákveðið að taka upp námsbraut haustið 1983 við Póst- og símaskólann fyrir almenna síma-
afgreiðslu- og skrifstofumenn hjá Póst- og símamálastofnuninni. Námsefni og námstími
verði í meginatriðum í samræmi við tillögur skólanefndar Póst- og símaskólans frá 3. apríl
1981.
Um kjör þess fólk sem lýkur námi úr framangreindri námsbraut verði samið í sérkjara-
samningum. F.h.r.
Brynjólfur Ingólfsson
Birgir Guójónsson
Frá Fjármálaráðuneytinu
Við gerð sérkjarasamnings Félags íslenskra símamanna og fjármálaráðherra s?m dagsettur
er 3. september 1982 varð það að samkomulagi samningsaðila að við gildistöku samningsins
skyldu stytta framhaldsstig tæknimanna þannig að aðeins þurfi 2 ára starfstíma í stað 3 ára
til að símvirki verði símvirkjameistari, símritari verði yfirsímritari og línumaður verði sím-
smiður.
F.h.r.
Þorsteinn Geirsson
Frá Póst- og símamálastofnuninni
Með vísun til viðræðna fjármálaráðherra og Félags íslenskra símamanna við síðustu samn-
inga skal það hér með staðfest að Póst- og símamálastofnunin mun kappkosta að veita tækni-
mönnum sínum sem víðtækasta möguleika til endurmenntunar.
Jón Skúlason
Þorgeir K. Þorgeirsson
67
SIMABLAÐH)