Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 19

Símablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 19
Starfsréttindi símvirkja Símvirki = rafeindavirki — fjarskiptasvið Texti: Þorsteinn Óskarsson Þorsteinn Óskarsson Svo lengi sem ég man eftir mér hjá Síman- um, eða frá því að ég hóf þar nám í símvirkjun á haustmánuðum 1952 hefur það verið efst í huga símvirkja að fá nám sitt viðurkennt og starfsréttindi tryggð. Lengi vel gerðist lítið í þessum málum ann- að en að 5. deild F.Í.S., en þar eru símvirkjar að mestu, gerði ályktanir um málið og þar við sat. Starfsréttindin voru að vísu nokkuð trygg þar sem Síminn hafði mest öll störf símvirkja á sínum vegum — en námið fór fram í Póst- og símaskólanum og heyrði ekki undir hið almenna fræðslukerfi í landinu. Skriður kemst á Svo var það eftir margar, margar ályktanir að Menntamálaráðuneytið skipaði nefnd 27. febrúar 1976 til þess að gera tillögur um nám og réttindi þeirra er vinna við „smástraums- tæki“. Nefndin var þannig skipuð: Ágúst Geirsson, tilnefndur af starfsfélögum Pósts og Síma, Halldór Arnórsson, tilnefndur af Iðnskólanum í Reykjavík, Haraldur Sig- urðsson, tilnefndur af Póst- og símamála- stjórn, Sigursteinn Hersveinsson, tilnefndur af sveinum og meisturum í útvarpsvirkjun og Óskar Guðmundsson, formaður án tilnefn- ingar. Starfsmaður nefndarinnar var Stefán Guð- jónsson tæknifræðingur. Nefndin hóf störf og skilaði mjög vel unnu og ítarlegu nefndaráliti upp á 127 blaðsíður er stjórn 5. deildar F.Í.S. fékk til umsagnar, ásamt öðrum umsagnaraðilum í júní 1977. Umsögn stjórnar- og trúnaðarmannaráðs 5. deildar. Stjórn og trúnaðarmannaráð 5. deildar F.Í.S. lýsti yfir fyllsta stuðningi við tillögur smástraumsnefndar með bréfi dagsettu 7. júlí 1977. Undir það bréf rita Þorsteinn Óskarsson formaður deildarinnar og Karl Guðmundsson ritari. Hér verður stuttlega greint frá nokkrum þáttum úr nefndarálitinu „Um menntun og réttindi í rafeindagreinum" (bláa bókin). í upphafi inngangs segir: í skýrslu þessari munu „menn sem vinna við smástraumstæki“ nefndir rafeindavirkjar. Gert er ráð fyrir því að endurskipulagt verði rafeindavirkjanám þ.e.a.s. útvarps-skriftvéla- og símvirkjanám þannig að allir ljúki námi í RAFEINDAVIRKJUN sem yrði ein iðngrein með 4 sérhæfingarsviðum: Útvarpssvið. Fjarskiptasvið. Rannsóknartækja- og sjálfvirknisvið. Tölvusvið. öert er ráð fyrir því að nám sé sameiginlegt fyrstu tvö árin — rafeindaiðji — og síðan tvö ár á sérhæfingasviði — rafeindavirki (sjá nán- ar meðfylgjandi teikningu). í nefndarálitinu segir m.a.: Nefndin telur að mikilvægt sé fyrir innlenda þróun á rafeindatæknisviði að rafeindavirkj- ar á hinum ýmsu sviðum eigi greiðan aðgang að framhaldsmenntun við sitt hæfi“. — og — Til framhaldsmenntunar mundu teljast: — Eftir- og framhaldsmenntunarnámskeið (áfangar). SIMABLAOH) 77

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.