Símablaðið - 01.12.1982, Page 12
Rósa Gunnarsdóttir.
Skrifstofumaður, Skrifstofa
Símstöðvarinnar í Reykjavík.
Starfsaldur: 35 ár.
Mjög lélegir samningar.
Eins til tveggja flokka hækk-
un eyðist strax í þeirri óða-
verðbólgu, sem er á íslandi.
Þessir kjarasamningar eru
ef til vill ekki mikið lakari en
undanfarin ár. Launin hafa
alltaf verið lág. Með sparsemi
er ég og hef verið, aðeins mat-
vinningur. Svo mun verða
áfram.
Ámundi Ævar.
Deildarverkstjóri í
radíóbirgðadeild.
Starfsaldur: 20 ár.
í nýafstöðnum kjarasamn-
ingum er margt sem ber að
fagna því fátt er svo með öllu
illt að ei boði nokkuð gott.
Má þar nefna fjarvistarétt
foreldra vegna veikinda
70 SÍMABLAÐIÐ
barna, lengingu hvers orlofs-
tímabils, hækkun orlofspró-
sentu á yfirvinnu og hækkun
vaktaálags. Eigi að síður verð-
um við, opinberir starfsmenn,
að standa stöðugt á verði í
kjarabaráttu okkar. Enn er
ekki hægt að lifa mannsæm-
andi lífi af laununum án þess
að óhóflegur vinnutími komi
til. Sá áfangi hefði mátt vera
nær eftir þessa samninga.
Ánægjulegt er þó að samn-
ingar náðust áður en sorfið
var til stáls.
Kolbrún Ármannsdóttir.
Skrifstofumaður, Símstöðin
Egilsstöðum.
Starfsaldur: 22 ár.
Kostir nýju samnganna:
Lenging orlofs, heimild til að
nýta hluta af áunnum veik-
indarétti vegna veikinda
barna, starfsaldurshækkanir.
Ókostir: Ekki hefur náðst
launajöfnuður við svokallað-
an frjálsan vinnumarkað,
þrátt fyrir gefin loforð, hvað
þá jöfnuður milli kynja, og
sýnist mér að þar hafi bilið
breikkað.
Hvað störf skrifstofu-
manna varðar, vil ég benda á,
að það verður ekki endalaust
hægt að flytja fólk með starfs-
aldurshækkanir í þau störf og
gæti orðið erfitt fyrir Stofn-
unina að manna þau á ný með
þeirri grunnröðun sem nú er.
Halldór Sigurþórsson.
Símvirki, Lóranstöðin,
Gufuskálum.
Starfsaldur: 8 ár.
Það sem mér finnst helst að
þessum samningum er að ekki
hafa verið sett sem skilyrði
fyrir vísitöluskerðingunni, að
kaupgjald og lánskjaravísitala
fylgist að. Eins finnst mér
atriðið um endurmenntunina
helst til laust í reipunum.
Hvað kaupið varðar finnst
mér bilið milli okkar símvirkj-
anna og sambærilegra stétta
alltaf vera að breikka.
Jón Skagfjörð.
Stöðvarstjóri, Símstöðin
Selfossi.
Starfsaldur: 36 ár.
Ég er ánægður með samn-
ingana og þá miða ég við þær
starfsaldursviðurkenningar
sem komu fram.