Símablaðið - 01.12.1982, Page 11
Hvað segja símamenn um
síðustu kjarasamninga?
Þau Kristjana H. Guðmundsdóttir og Andrés Sveinsson úr ritnefnd Símablaðsins ræddu við
símafólk úr hinum ýmsu deildum Stofnunarinnar, jafnt í Reykjavík sem utan hennar, til að
heyra álit þeirra á síðustu kjarasamningum. Ekki var hér um vísindalega skoðanakönnun að
ræða því að ýmsir þættir, svo sem starfsaldur, ráða hvað úr samningunum kemur fólki til góða
strax. Það er t.d. ljóst að fólk með lágan starfsaldur fær lítið til að mæta þeirri kjararýrnun
sem orðið hefur að undanförnu og úr hópi hinna aðspurðu voru fáir með mjög lágan starfs-
aldur.
Við gefum viðmælendum Símablaðsins orðið, en spurningin var þessi:
Hvert er álit þitt á síðustu kjarasamningum?
Bergþór Atlason.
Loftskeytamaður, Símstöðin
Siglufirði.
Starfsaldur: 13 ár.
Þessir kjarasamningar ein-
kennast af því, að reynt er að
halda gildi launa í stað, frekar
en að bæta þau. Greinilegt er,
að launþegar eru í varnarbar-
áttu, en ekki í sókn. Ég er
ekki ánægður með samning-
ana, en sætti mig við þá.
Sóley Sigurðardóttir.
Talsímavörður, Símstöðin
ísafirði.
Starfsaldur: 12 ár.
Það besta við samningana
var að ná námsbrautinni inn,
því að hún ætti að geta bætt
hag allra talsímavarða í fram-
tíðinni. En ég er mjög óánægð
með það hversu lágt talsíma-
verðir eru grunnraðaðir, eða
í 7. lfl.
Árni Jóhannsson.
Fulltrúi, Skrifstofa Sím-
stöðvarinnar í Reykjavík.
Starfsaldur: 13 ár.
Ég er ánægður með samn-
ingana. Einkum þó starfsald-
urshækkanirnar, orlofsleng-
ingu, rétt foreldris til að vera
heima vegna veikinda barna,
en þó er ég sérstaklega
ánægður með námsbrautina.
SIMABl.ADIÐ
69