Símablaðið - 01.12.1982, Síða 14
Ásthildur Torfadóttir.
Starfar hjá aðalbókhaldi.
Starfsaldur: 5 ár.
Aðalkjarasamningurinn
var út í hött. Almennar grunn-
kaupshækkanir hefðu mátt
vera meiri svo að yngra fólk-
ið fengi eitthvað og til að ná
opinberum starfsmönnum
upp úr þeirri lægð sem þeir
eru í miðað við aðra. Sér-
kjarasamningurinn er auðvit-
að öðru vísi hugsaður og eru
starfsaldurshækkanir góðir
punktar. í heild fæ ég engar
kjarabætur fyrir daginn í dag
en það er auðvitað það sem
maður hugsar um þegar endar
ná ekki saman.
Ásta Jónsdóttir.
Starfar hjá tölvuskráninga-
deild Símstöðvarinnar í
Reykjavík.
Starfsaldur: 5 ár.
Samningarnir voru ómögu-
legir. Aðalkjarasamningurinn
var lélegur að því leiti að hann
72 SÍMABLAÐIÐ
minnkaði ekkert það launabil
sem er á milli opinberra starfs-
manna og fólks annars staðar
á vinnumarkaðnum og yngra
fólkið fær litlar bætur fyrir
orðna kjaraskerðingu. Sér-
kjarasamningurinn var öllu
skárri. Starfsaldurshækkan-
irnar voru að sjálfsögðu já-
kvæðar þó að yngsta starfs-
fólkið njóti ekki góðs af strax
og sama er að segja um náms-
braut fyrir afgreiðslu- og
skrifstofufólk. Loforð um að
kjör fólks við tölvuskráningu
hjá ríkinu verði bætt er nokk-
uð sem ég treysti ekki á. Ég
óttast að það mál lendi í frysti-
kistunni.
Jóhanna Sturlaugsdóttir.
Skrifstofumaður í Hagdeild.
Starfsaldur: 5 ár.
í heild voru samningarnir
ágætir. Starfsaldurshækkan-
irnar í báðum samningunum
voru spor í rétta átt og lenging
orlofs og námsbraut fyrir
símaafgreiðslu- og skrifstofu-
fólk voru mjög jákvæðir
punktar. Aðalkjarasamning-
urinn var svo sem ekki mikið
til að tala um. Hann var svip-
aðu þeim sem almennt voru
gerðir á árinu og var ekki við
miklu að búast. Engin starfs-
aldurshækkun kemur mér til
góða núna en ég er ánægð
með að nú hækka laun fólks
örar með auknum starfsaldri.
Lúðvík Jóhann Óskarsson.
Símsmiður, Mælaborð
Símstöðvarinnar í Reykjavík.
STARFSALDUR: 6 ár.
Mér virðist sú launahækk-
un sem ég fékk samkvæmt
síðustu samningum, sé nú
þegar komin út í verðbólguna.
Ég er kannski frekar svart-
sýnn á útlitið, vegna þess að
ég stend í íbúðarkaupum, en
mánaðarlaun mín sem eru
kr. 10.400,- nægja ekki fyrir
afborgunum af íbúðinni né
öðrum greiðslum. Það sem
bjargar mér er, að ég hefi tölu-
verða aukavinnu og konan
mín vinnur úti.
Hulda Tómasdóttir.
Talsímavörður, Símstöðin
Sauðárkróki.
Starfsaldur: 19 ár.
Við talsímaverðir fengum
ekki mikla leiðréttingu í þess-
um samningum og stöndum