Símablaðið - 01.12.1982, Page 31
Miimmgargrein
Júlíus Pálsson
Júlíus Pálsson lést 15. ágúst 1982.
Júlíus var fæddur á Djúpavogi, 3. október
1903. Foreldrar hans voru: Páll Gíslason, síð-
ar faktor á Fáskrúðsfirði og kona hans Stef-
anía Guðmundsdóttir frá Vopnafirði. Júlíus
stundaði nám í Verslunarskóla íslands árin
1920 til 1922. Hann réðst til Landssímans árið
1922 og vann þar á verkstæði þar til í febrúar
1926, en þá fór hann til Bandaríkjanna og
vann þar fyrstu árin hjá símafélaginu Western
Electric og stundaði jafnframt nám í kvöld-
skóla félagsins í tvö ár.
Júlíus vann þar aðallega við uppsetningu
sjálfvirkra símstöðva og var á stöðugu ferða-
lagi um miðríkin í stórum vinnuflokkum. Síð-
an vann hann að mestu í verksmiðjum Hjartar
Thordarson, hins víðkunna íslenska raf-
magnsfræðings í Chicago.
Árið 1935 kom Júlíus heim aftur og gekk á
ný í þjónustu Landssímans, fyrst við Talsamb-
andið við útlönd, en síðan við Sjálfvirku stöð-
ina. Hann var ráðinn símvirki 1937 og sím-
virkjameistari árið 1966. Hann lét af störfum
1970 vegna veikinda. Júlíus var áhugasamur
félagsmaður í F.Í.S., hann átti um skeið sæti í
stjórn félagsins og var árum saman í skemmti-
nefnd félagsins og þá oft sem formaður.
Júlíus var auglýsingastjóri Símablaðsins í
fjölda mörg ár og sýndi blaðinu jafnan mikla
ræktarsemi.
Júlíus giftist Agnesi Kragh árið 1936. Börn
þeirra eru, Hanna Fríða, Páll og Hans Kragh.
ÞAKKIR:
Ég sendi starfsfólki Pósts og síma
kærar þakkir fyrir gjafir og heillaóskir
á fimmtugsafmæli mínu 18. maí s.l.
Gunnar Ágústsson
Hjartans þakkir til starfsfólks Pósts og síma
fyrir gjafir og góðar óskir
á sjötugs afmæli mínu 22. júlí s.l.
Þakka gott samstarf á liðnum árum.
Kjartan Sveinsson
Mínar bestu þakkir sendi ég öllu starfsfólki
Pósts og síma, sem glöddu mig með gjöfum
og heillaóskum á 70 ára afmæli mínu
4. júlí síðastliðinn.
Lifið heil.
Guðmundur Bj. Bjarnason
Ég sendi starfsfólki Pósts og síma þakkir
fyrir auðsýnda vináttu á fimmtugsafmæli
mínu þann 11. september s.l.
Stefán Þórhallsson
SÍMABLAÐIÐ 89