Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 2
Þetta er bara venju-
legur, eðlilegur samn-
ingur sem var gerður af
þeim sem sjá um
mannauðsmálin hjá
kirkjunni og ekkert
meira um það að segja.
Agnes M. Sigurðardóttir
Stjörnubjart á Hálsatorgi
Kveikt var á jólastjörnunni á Hálsatorgi í Kópavogi í gær. Krakkar af leikskólanum Urðarhóli voru viðstaddir til að fylgjast með tendrun stjörnunnar og gengu
síðan í kringum hana. Jólastjarnan hefur lýst upp Hálsatorg fjögur ár í röð og fært jólastemningu yfir torgið. Ljósin verða tendruð á jólatré bæjarins á Að-
ventuhátíðinni þann 26. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ómissandi með steikinni
Titringur er innan þjóðkirkj-
unnar vegna samnings við
fjármálastjóra Biskupsstofu.
Hann er ígildi hátt í tuttugu
milljóna króna án vinnufram-
lags. Utanaðkomandi lögfræð-
ingur skoðar nú málið.
helenaros@frettabladid.is
TRÚFÉLÖG Umdeildur viðbótar-
samningur Agnesar M. Sigurðar-
dóttur, biskups Íslands, við Ásdísi
Clausen, fyrrverandi fjármálastjóra
Biskupsstofu, er til skoðunar hjá
utanaðkomandi lögfræðingi sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Samningurinn við Ásdísi felur
í sér óskoraðan rétt til launa í sjö
mánuði, hátt í tuttugu milljónir
króna, án tillits til ástæðu loka
ráðningarsamnings. Hann var
undirritaður 1. febrúar á þessu ári
af Agnesi og Ásdísi, sem sagði svo
upp störfum 1. september.
Í viðaukanum við ráðningar-
samning Ásdísar, líkt og það er
kallað, segir að ekki yrði óskað eftir
vinnuframlagi hennar í þessa sjö
mánuði.
„Ásdísi er heimilt, án þess að það
hafi áhrif á samning þennan, að
takast á hendur annað launað starf
á meðan á uppsagnarfresti stendur,“
segir í þeim gögnum sem Frétta-
blaðið hefur undir höndum. Þannig
gæti Ásdís farið í annað launað starf
og verið í raun á tvöföldum launum.
Ásdís gegndi stöðu fjármálastjóra
Biskupsstofu í um átján mánuði
og þykir viðbótarsamningurinn í
besta falli óvanalegur. Samkvæmt
heimildum blaðsins fékk Ásdís eina
greiðslu eftir uppsögn sína áður
en þær voru stöðvaðar af fram-
kvæmdastjóra kirkjuþings.
Í júlí 2021 tóku gildi ný þjóð-
kirkjulög sem höfðu í för með sér
breytingar á fjárstjórnarvaldi þjóð-
kirkjunnar. Þær fólust meðal annars
í því að í stað kirkjuráðs, sem biskup
var í, tók kirkjuþing við fjárstjórn-
inni. Breytingin tók þó ekki gildi
fyrr en um síðastliðin áramót.
Með breytingunum á biskup
Íslands að starfa innan þess fjár-
hagsramma sem kirkjuþing setur
honum.
Nýtt stjórnskipulag þjóðkirkj-
unnar, sem tók gildi um síðustu
áramót, átti að undirstrika þessar
breytingar. Skipulagið byggir á
samþykkt frá aukakirkjuþingi frá
2021 þar sem samþykkt var að yfir-
stjórn kirkjunnar yrði skipt upp í
tvö ábyrgðarsvið.
Samkvæmt skipulaginu á biskup
að gæta einingar kirkjunnar sem
snýr að öllu því sem lýtur að grunn-
þjónustu kirkjunnar. Kirkjuþing
kjósi framkvæmdanefnd úr röðum
kirkjuþingsfulltrúa sem hafi eftir-
lit með fjárhag og rekstri þjóð-
kirkjunnar, ásamt því að fylgja eftir
ákvörðunum og áætlunum sam-
þykktum af kirkjuþingi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er mikil óánægja með við-
bótarsamning Agnesar við Ásdísi
innan Biskupsstofu og er hann,
líkt og fyrr segir, nú til skoðunar.
Umræða hafi verið um að óska eftir
stjórnsýsluúttekt á fjármálum kirkj-
unnar. Sú beiðni hefur þó ekki verið
lögð fram formlega.
„Þetta er bara venjulegur, eðli-
legur samningur sem var gerður af
þeim sem sjá um mannauðsmálin
hjá kirkjunni og ekkert meira um
það að segja,“ segir Agnes um samn-
inginn. Aðspurð segist hún ekki vita
hvort hann sé til skoðunar. n
Tuttugu milljóna samningur
á Biskupsstofu til skoðunar
Biskup gerði viðbótarsamning við fjármálastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
thorgrimur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, bað fyrir kveðju til
úkraínsku þjóðarinnar þegar hann
mætti í förðun hjá úkraínska förð-
unarfræðingnum og sminkunni
Katrínu Kristel Tönyudóttur fyrir
viðtal á Hringbraut á fimmtudag-
inn. Guðna ku hafa þótt mikið til
þess koma þegar hann heyrði að
Katrína væri úkraínsk og hann bað
hana að skila kveðju sinni til heima-
lands hennar.
Þau Guðni töluðust við á rúss-
nesku og Katrína bar forsetanum
vel söguna: „Í morgun beið mín að
sminka forseta Íslands – það hef
ég ekki gert áður,“ skrifaði Katrína
á Facebook-síðu sinni. „Hann bað
mig að skila góðri kveðju til fólks-
ins í Úkraínu! Forsetinn er hlýr og
góður maður.“ n
Guðni bað að
heilsa til Úkraínu
Guðni Th. Jóhannesson og Katrína
Kristel Tönyudóttir fyrir förðunina.
MYND/HRINGBRAUT
ragnarjon@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu rannsakar stungu-
árásina í Bankastræti Club í fyrra-
kvöld sem tilraun til manndráps.
Þetta hafi verið skipulögð árás
framin af ásetningi.
Mennirnir réðust inn með skíða-
grímur og fóru rakleitt niður í kjall-
ara skemmtistaðarins þar sem þeir
stungu þrjá menn.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir mikla mildi að
ekki hafi farið verr.
„Það er ekki árásarmönnunum
að þakka eða þeim sem tóku þátt
með einhverjum hætti að þessir
einstaklingar sem urðu fyrir árás-
inni séu á lífi,“ segir Margeir.
Mennirnir þrír sem ráðist var
á lágu slasaðir á sjúkrahúsi í gær.
Einn þeirra mun hafa verið með
tólf stungusár.
Þeir sem grunaðir eru um árásina
eru taldir starfa sem dyraverðir á
skemmtistöðum í miðbænum.
Enn er margra leitað og skorar
lögregla á alla sem tengjast málinu
eða hafa upplýsingar um það að
gefa sig fram. n
Árásin í Bankastræti þaulskipulögð
Mikill viðbúnaður var í Bankastræti
eftir atlögu hnífamannanna.
2 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ