Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 10
Íbúi í hjólhýsabyggðinni í
Laugardalnum fær ekki að
hafa lögheimili heima hjá sér
og er því í raun heimilislaus
samkvæmt kerfinu. Hún segir
stjórnvöld gaslýsa almenning
til að telja fólki trú um að það
sé búið að gera mikið fyrir
öryrkja.
sigurjon@frettabladid.is
SAMFÉLAG Geirdís Hanna Kristjáns
dóttir er 47 ára gömul og er öryrki.
Hún hefur búið í hjólhýsabyggðinni
í Laugardalnum síðastliðin tvö og
hálft ár í hjólhýsi sem hún á sjálf.
Í hjólhýsabyggðinni búa fimmtán
einstaklingar í tíu mismunandi
tækjum.
„Ég er öryrki með tekjur frá
Tryggingastofnun og er að fá 225
þúsund útborgað þaðan á mánuði.
Þannig að ég er ekki einu sinni með
laun til þess að vera á leigumarkaði
vegna þess að ég get ekki staðið
undir mánaðarlegum afborgunum
af leigu,“ segir Geirdís.
Allan þann tíma sem Geirdís
hefur búið í Laugardalnum hefur
henni ekki verið leyft að hafa lög
heimili á sínu eigin heimili, en ekki
er leyfilegt að hafa lögheimili í hjól
hýsum. „Ég bý í mínu eigin húsnæði
og engum háð nema sjálfri mér,“
segir hún.
„Það eina sem ég er háð er þeim
samningum sem Reykjavíkurborg
nær við Farfugla um okkar veru
á svæðinu,“ segir Geirdís en Far
fuglar sjá um rekstur tjaldstæðisins í
Laugardal, þar sem hjólhýsabyggðin
er staðsett.
„Þess utan hefur það valdið okkur
öllum kvíða hvernig staðan er búin
að vera og hversu erfitt það hefur
verið að ná góðri samvinnu. Ef horft
er fram hjá því, þá líður mér mjög
vel,“ segir hún.
Geirdís er skráð sem „óstaðsett
í hús“ vegna þess að hún fær ekki
að hafa lögheimili sitt heima hjá
sér og samkvæmt kerfinu er hún
heimilislaus. Það felur í sér ýmsar
skerðingar. „Ég fæ þar af leiðandi
ekki það sem heitir heimilisuppbót
frá Tryggingastofnun og samkvæmt
nýjustu tölum, þá er heimilisuppbót
um 700 þúsund á ári,“ segir hún.
Heimilisuppbótin er hugsuð fyrir
fólk sem er á örorku og býr eitt. Geir
dís segist tikka í öll þau box, nema
að hún er hvergi með skráð lög
heimili og fær því ekki þessa upp
bót.
„Ef ég væri að leigja, þá myndi ég
bara drukkna í öðrum kostnaði.
Fengi ég þetta núna þar sem ég bý,
þá myndi það strax létta undir,“
segir Geirdís.
„Þó ég „eigi hvergi heima“ þá á ég
samt heimili og ég er virkur sam
félagsþegn. Ég hef reynt að fara á
vinnumarkaðinn en mér hefur verið
refsað harkalega fyrir það, vegna
þess að skerðingar kerfisins eru svo
miklar,“ segir Geirdís.
Hún segir ýmsar skerðingar fylgja
því að vera með lítinn pening á milli
handanna í hverjum mánuði. „Ég
hef ekki farið til tannlæknis í þrett
án ár vegna þess að ég hef ekki efni á
því. Ég fer kannski einu sinni á fimm
ára fresti á stofu til þess að láta
klippa á mér hárið, annars á ég fína
græju sem ég renni sjálf í gegnum
hausinn minn,“ segir hún og bætir
við að fyrir henni sé þetta lúxus.
Þá nefnir Geirdís einnig bíó,
tónleika og leikhús meðal annars.
„Þetta er munaðarvara fyrir okkur.“
Hún segir þetta geta haft félagslegar
afleiðingar í för með sér og að fólk
geti einangrast vegna þessa.
Sjálf er Geirdís dugleg að taka þátt
í félagsstarfi en hún segist gera það
til þess að halda sér gangandi. „Ég er
í námi til viðurkenningar bókara.
Ég er að sinna sjálf boðastarfi hjá
Pepp, grasrót fólks í fátækt, og svo
stunda ég keilu sem keppnisíþrótt.
Það er svona eitt og annað sem ég er
að gera.“
Geirdís segir stjórnvöld gaslýsa
ákveðna hópa samfélagsins. „Það
er verið að gaslýsa okkur, það er
verið að reyna að telja okkur trú
um að það sé búið að gera svo vel við
öryrkja, en það er bara ekki rétt,“
segir hún. n
Ég hef ekki farið til
tannlæknis í þrettán ár
vegna þess að ég hef
ekki efni á því.
Geirdís Hanna
Kristjánsdóttir,
öryrki í hjól-
hýsabyggðinni í
Laugardalnum
Fimmtán manns eru búsettir í tíu tækjum í hjólhýsabyggðinni í Laugardal.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Segir stjórnvöld
gaslýsa öryrkja
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
PUNTA CANA
Vista Sol Hotel ****
Beach Resort - Allt innifalið
Vista Sol er glæsileg resort sem er staðsett
við hina frægu strönd “Playa Bávaró”.
Verð frá 279.900 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
25. nóvember - 04. desember
Innifalið í verði
- Beint flug
- Lúxus gisting
- Allt innifalið
- Innrituð taska 20 kg.
- Íslensk fararstjórn
- Akstur til og frá flugvelli
kristinnhaukur@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Svandís Svavars
dóttir matvælaráðherra hefur lagt
fram drög að reglugerð sem bannar
botnveiðar á viðkvæmum svæðum,
það er að segja með línu eða fiski
botnvörpu.
Drögin byggja á skýrslu Hafrann
sóknastofnunar frá 2021. Hún lýtur
að verndun viðkvæmra botnvist
kerfa í efnahagslögsögunni. Svo sem
vegna kórala, svampa, osta og ann
arra tegunda á sjávarbotni.
Eru sum svæði skilgreind botn
veiðisvæði, önnur sem takmörkuð
botnveiðisvæði og enn önnur vernd
arsvæði. Takmarka megi núverandi
fótspor veiðarfæra umtalsvert án
þess að það komi mikið niður á
heildarafla.
Einhver svæðanna voru áður skil
greind sem verndarsvæði eða friðun
arsvæði, sum allt frá árinu 1971. Þrjú
verndunarsvæði eru ný. Svæðin þar
sem allar botnveiðar verði bannaðar
eru 18 sem saman eru nær 2 prósent
af efnahagslögsögunni.
Meðal annars eru verndarsvæði á
Langanesgrunni, í Lónsdýpi og við
Hornafjarðardjúp og vestur af Snæ
fellsnesi. Á þessum svæðum verður
þó áfram heimilt að veiða uppsjávar
fisk með flotvörpu og hringnót. n
Banna botnveiðar á viðkvæmum svæðum
Verndarsvæðin eru
18 og þekja 2 prósent
efnahagslögsögunnar.
10 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ