Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 12
Það leit þannig út á
tímabili að það myndi
sjóða upp úr en svo
gerðist það ekki.
Spessi
ljósmyndari
Í þessari vönduðu bók Helga Þorlákssonar
er fjallað um sex merka sögustaði á Íslandi,
sagan rakin og grennslast fyrir um það
á hverju hlutverk þeirra byggist.
B E S S A S T A Ð I R
S K Á L H O L T
O D D I
R E Y K H O L T
H Ó L A R
Þ I N G V E L L I R
SÖGUSTAÐIR Í NÝJU LJÓSI
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is
Þúsundir mótmælenda
streymdu út á götur Aþenu
á fimmtudag til að minnast
þeirra sem létu lífið er her
stjórn Grikklands bældi niður
mótmæli við háskóla í Aþenu
árið 1973. Atburðurinn olli
miklu hneyksli í Evrópu og
var talinn vera síðasti nagli
í kistu herforingjastjórnar
innar, sem lét af völdum
nokkrum mánuðum síðar.
helgisteinar@frettabladid.is
GRIKKLAND Gríska herforingja
stjórnin tók við völdum 21. apríl
1967 þegar ofurstinn Georgios
Papadopoulos framdi valdarán eftir
að ljóst var orðið að vinstristjórn
Georgios Papandreou myndi fara
með sigur í kosningum.
Her foringjastjórnin hugðist
endurheimta stöðugleika í Grikk
landi en stjórnarfar hennar ein
kenndist af harðræði, pyntingum
og Grikkjum í útlegð.
Vöxtur varð í efnahag Grikklands
og ákveðinn stöðugleiki en það var
á kostnað skerts tjáningarfrelsis.
Dagblöð í landinu voru ritskoðuð og
stjórnarandstæðingar handteknir
og fangelsaðir.
Stjórnsemin var svo víðtæk að
skólastjórum landsins var skipað
að sjá til þess að nemendur sæktu
kirkju alla sunnudaga og reiðiköst
í umferðinni gátu leitt til bílprófs
missis í fjóra mánuði.
Fyrstu stóru mótmælin gegn
herforingjastjórninni urðu er laga
nemar mótmæltu herkvaðningu.
Andstaðan jókst næstu mánuði og
í nóvember breyttist námsmanna
verkfall í uppreisn gegn stjórninni.
Verkamenn og bændur streymdu til
Aþenu til að styðja við námsmenn
ina sem höfðu girt sig af við Poly
tech nicháskólann.
Upp úr sauð þegar hermenn á
skriðdreka óku niður hlið háskól
ans snemma að morgni 17. nóvem
ber 1973. Mótmælendur höfðu þá
sagt að til stæði að steypa herfor
ingjunum af stóli. Talið er að nær
40 hafi látið lífið þennan dag en
opinber rannsókn staðfesti aðeins
24 dauðsföll.
Íslenski ljósmyndarinn Sigurþór
Hallbjörnsson, Spessi, var við mót
mælin. Spessi sem er nú í Aþenu
segir að atvikið hafi lengi verið talin
niðurlæging fyrir Grikki.
Haldin eru mótmæli árlega til að
ítreka að slíkir atburðir megi aldrei
verða aftur í „vöggu lýðræðis“. Minn
ingarmótmælin hafa einnig verið
blóðug. Til að mynda létust tveir í
mótmælum árið 1980.
Mótmælaganga endar við banda
ríska sendiráðið, en það voru
bandarísk stjórnvöld sem studdu
við bakið á herforingjastjórninni.
Segir Spessi að Bandaríkjamenn séu
ekki í miklum metum hjá Grikkjum
á þessum degi. Hundruð óeirða
lögreglumanna voru fyrir framan
brynvarðar rútur sem girtu af sendi
ráðið örlagadaginn fyrrnefnda 1973.
Spessi segir sér hafa verið ráðlagt
að vera með gasgrímu. Hann hafi
séð marga blaðamenn og ljósmynd
ara með hjálma og allan búnað.
„Hefðu þeir skotið af táragasi þá
ætlaði ég mér að fá lánaðan úða
brúsa sem vinnur á móti gasinu, en
vandinn er að þá getur maður ekki
andað. Ég var samt meira viðbúinn
að hlaupa í burtu. Það leit þannig út
á tímabili að það myndi sjóða upp
úr en svo gerðist það ekki.“ n
Grikkir minnast blóðbaðsins í Aþenu
Mótmælendur
sem voru á
staðnum hinn
ölagaríka dag
árið 1973 prýða
fremstu röðina
við ræðuhöld.
MYND/SPESSI
benediktboas@frettabladid.is
HM Í KATAR AB InBev, móðurfélag
Budweiser, borgaði 75 milljónir doll
ara, eða um 1,1 milljarð króna, fyrir
að vera opinber HMbjór í Katar.
Gert var ráð fyrir að selja venjuleg
an Bud í Katar en í gær tóku yfirvöld
í Katar Ubeygju varðandi bjórsölu
og bönnuðu áfengan bjór. Aðeins
verður hægt að kaupa Bud zero, sem
er óáfengur bjór.
„Þetta er vandræðalegt,“ sagði
Budweiser á Twitter þegar bannið
var tilkynnt en eyddi skömmu síðar
færslunni.
St uðning sma nna félag Eng
lendinga, The Football Supporters
Association, sendi frá sér yfirlýsingu
í kjölfarið þar sem bjórbannið var
fordæmt. Dæmi séu um að stuðn
ingsmenn séu búnir að eyða sjö þús
und pundum, rúmum 1,3 milljónum
króna, til að koma til Katar og ekki
sé auðvelt að hætta einfaldlega við
að mæta. n
Budweiser
borgaði milljarð
benediktboas@frettabladid.is
HM Í KATAR Þjóðverjar hafa nánast
snúið baki við HM. Kevin Gross
kreutz, sem vann HM 2014 með
Þýskalandi, á vinsælan bar í Dort
mund. Hann segir við þýska fjöl
miðla að enginn leikur verði sýndur
á hans bar. Hundruð sportbara um
landið ætla ekki að sýna frá mótinu,
meðal annars The Fargo bar í Berlín.
Við Brandenburgarhliðið verður
ekkert svæði fyrir stuðningsmenn.
Ada Colau, borgarstjóri Barcelona,
vill ekki að borgarland verði nýtt til
að sýna frá mótinu. Franskar borgir,
eins og París, ætla að gera slíkt hið
sama. Þess má geta að PSG í París er
í eigu Katara.
Bloomberg greindi frá því að í
Lundúnum yrðu ekki nein svæði
fyrir stuðningsmenn og Belgar
ákváðu að gera slíkt hið sama um
allt land. n
Engin svæði fyrir
stuðningsmenn
Íslendingar á sérstöku Fan Zone í
Finnlandi fyrir Eurobasket.
bth@frettabladid.is
SJÁVARÚT VEGUR „Ég hef lengi
verið þeirrar skoðunar að það sé
atvinnugreininni mjög mikilvægt
að sátt ríki um hana,“ segir Daði
Már Kristófersson, prófessor í hag
fræði.
Daði hefur rannsakað sjávar
útveg og segir vegna rannsóknar
Kristjáns Vigfússonar sem sýnir
fram á óánægju útgerðarmanna
með umhverfi sitt, þar sem mikill
tími fari í varnarviðbrögð, að það
sé sorglegast að deilurnar komi í
veg fyrir að við metum atvinnu
greinina að verðleikum.
Íslenskur sjávarútvegur sé stór
merkilegur og gríðarlegur árangur
hafi náðst. Daði nefnir sem dæmi
að á ráðstefnu í síðustu viku hafi
verið kynning á nýrri gerð togara
og allur búnaður hafi verið íslensk
ur.
Daði Már segir að grein Kristjáns
sýni að stjórnendur sjávarútvegs
fyrirtækja finni mjög sterkt fyrir
neikvæðum af leiðingum af deil
unum.
Partur af hagsmunagæslu útgerð
armanna sé rekstur fjölmiðla. „Ég
held að ástæður þess hve deilurnar
eru hatrammar sé að það er um
umtalsverða hagsmuni að ræða.“
Daði Már segir ekki gott að slíkar
deilur séu uppi og grafi undan
samfélagssáttmála með því að taka
ekki tillit til hvernig staðið er að
úthlutun á aðgangi í takmarkaða
sameiginlega auðlind. „Ég er ekki
að taka undir grátkórinn en deil
urnar eru okkur dýrar.“
Daði segir þær lausnir sem hann
hafi lagt til hugnast útgerðinni
ekki.
„Sem dæmi sú leið að fara úr
ævarandi aflahlutdeild yfir í tíma
bundna hlutdeild og að öll sú afla
hlutdeild sem rynni út yrði seld á
markaði,“ segir Daði Már, sem einn
ig er varaformaður Viðreisnar. n
Hatrammar deilur undirstriki mikla hagsmuni
Ég er ekki að taka
undir grátkórinn en
deilurnar eru okkur
dýrar.
Daði Már Kristó-
fersson, hag-
fræðiprófessor
12 Fréttir 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ