Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 17
Kæri Ýmir Snær Eggertsson Kroknes
Við óskum þér og fjölskyldu þinni
til hamingju með draumaferðina og vonum
að ferðin verði ykkur ánægjuleg.
F.h. Stjórnar Vildarbarna
Sigurður Helgason
Stjórnarformaður Vildarbarna
Gjafabréf þetta gildir til 13.11.2022
Allar upplýsingar um notkun gjafabréfa
eru á slóðinni www.icelandair.is/gjafabref
Útgáfudagur:
13. nóvember 2022
Vildarbörn 2022
Vildarbörn lógó - Uppfærsla Íslenska 15.07.09
Vildarbörn Icelandair
Vildarbörn Icelandair
Vildarbörn Icelandair
Vildarbörn Icelandair
Vildarbörn Icelandair
Vildarbörn Icelandair
Ellefu börn og fjölskyldur
þeirra fengu ferðastyrk
Vildarbarna Icelandair
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum
og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar,
sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður
Icelandair Group. Peggy hefur um árabil unnið sem
sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt
fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti.
Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður
formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari
sjóðsins.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum
sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til
þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin
börnunum bíómiða.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi
Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair
sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar
um borð í flugvélum Icelandair og söfnunarbaukum á
Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair. Einnig koma
til frjáls framlög og viðburðir.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og
fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur: flug, gisting,
dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem
barnið óskar sér.
Vildarbörn 2022