Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 29
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 19. nóvember 2022
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Ísabella Leifsdóttir stýrir kerta-
smiðju í dag á Bókasafni Garðabæjar.
starri@frettabladid.is
Bókasafn Garðabæjar býður upp
á kertasmiðju í dag þar sem fjöl-
skyldur geta sameinast um að gera
falleg kerti, bæði til heimilisnota
og í jólapakkann.
Ísabella Leifsdóttir sér um
að leiðbeina þátttakendum en
hún hefur lengi gert kerti undir
merkinu Pink Upcycling. Hún segir
kertagerðina vera afar gefandi
verkefni.
„Það gefur mér mikið að sjá
rusl verða að gulli. Eins og sjá má
á Instagram-síðu Pink Upcycling
þá uppvinn ég ýmislegt, allt frá
því að gera listaverk úr plastrusli
yfir í að gera upp brotna gull- og
silfurskartgripi. Ég geri bæði inni-
og útikerti en það er yndislegt að
horfa á útikertin loga í skamm-
deginu.“
Kertagerðin í dag er fremur
einfalt verkefni. „Við bræðum
kertastubba og höfum til ílát og
kveiki sem við hellum vaxi í. Þátt-
takendur þurfa í sjálfu sér ekki að
koma með neitt með sér en það
er velkomið að taka með sér ílát,
potta, glös og dósir og svo auðvitað
kertastubba ef þeir eru til heima
við.“
Ísabella mun sýna kertin sín
og aðrar vörur á jólamarkaði sem
haldinn verður á Garðatorgi 26.
nóvember ásamt fleira handverks-
fólki.
Kertasmiðja hefst klukkan 13 og
stendur til 14.30 og er opin öllum.
Bókasafn Garðabæjar er staðsett
við Garðatorg í Garðabæ. n
Rusl verður gull
Fimmta þáttaröðin af hinum geysivinsæla þætti Leitin að upprunanum er nú í sýningum á Stöð 2 og hefur fengið fólk bæði til að brosa og gráta. Margt óvænt
hefur gerst í þáttunum. MYND/VILHELM GUNNARSSON
DNA-próf gjörbreytti leitinni
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur nóg fyrir stafni um þessar mundir. Þættir hennar, Leitin að
upprunanum, hafa vakið mikla athygli en tveir eru eftir í þessari þáttaröð. Næsta föstudag
hefst síðan Idolið á Stöð 2 þar sem Sigrún er kynnir ásamt Aroni Mola. 2