Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 36
Umsjón með umsóknum hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og
Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Um er að ræða lifandi og skemmtilegan
vinnu stað sem leggur áherslu á fjölskyldu
vænt og öruggt vinnuumhverfi. BSRB,
Sameyki, Póstmannafélag Íslands, Lands
samband lögreglumanna og Styrktarsjóður
BSRB eru með skrifstofur í húsnæðinu ásamt
ráðgjöfum frá Virk starfsendurhæfingu. Auk
skrifstofuaðstöðu eru fundarsalir, mötuneyti
og samkomusalur sem nýtast almennt til
námskeiða og funda. Að jafnaði starfa hátt í
50 starfsmenn í BSRBhúsinu.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu.
Þjónusta og umsjón
í BSRB-húsinu
Við leitum að drífandi og þjónustuliprum einstaklingi sem vill koma og starfa sem umsjónarmaður
í BSRB-húsinu, Grettisgötu 89. Starfið felur m.a. í sér þjónustu, eftirlit með húsi og aðgengi og
daglegu viðhaldi ásamt öðrum tilfallandi störfum.
Starfssvið:
• Þjónusta og samskipti við starfsfólk hússins.
• Umsjón með öryggiskerfi.
• Umsjón með fjarfundabúnaði og fundarsölum.
• Innkaup rekstrarvara og samskipti við birgja.
• Umsjón með viðhaldsverkefnum innanhúss.
• Samskipti við verktaka.
• Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
• Handlagni og lausnamiðuð nálgun á verkefni.
• Mjög góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sveigjanleiki.
• Góð almenn tölvukunnátta.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar G.
Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Garðar
Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Með sameiningu Inkasso-Momentum varð
til annað stærsta fyrirtækið á sviði kröfu-
stjórnunar hérlendis.
Fyrirtækið umbreytir innheimtuþjónustu
á Íslandi, gerir hana manneskjulegri og
stuðlar að hugarfarsbreytingu gagnvart
innheimtuferlinu hjá öllum sem það snertir
með sérstakri áherslu á upplifun greiðenda
og rafrænar lausnir. Fyrirtækið hefur
sett sér skýr markmið þegar kemur að
sjálfbærnimálum og vinnur að heilindum að
því að hafa jákvæð áhrif í íslensku samfélagi.
Hjá Inkasso starfar fagfólk í innheimtu
sem sér um yfir 70 þúsund kröfur í hverjum
mánuði fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum
og sveitarfélögum landsins. Fyrirtækið
er í sókn og ætlar sér stóra hluti á sviði
kröfustjórnunar og fjártækni á næstu árum.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarlegt
kynningarbréf og starfsferilsskrá þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Fjármála- og rekstrarstjóri
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum aðila sem vill taka þátt í spennandi
uppbyggingu Inkasso – Momentum en félagið er annar stærsti aðilinn á sínu sviði á Íslandi.
Fjármála- og rekstrarstjóri ber ábyrgð á fjármálum og daglegum rekstri Inkasso - Momentum.
Viðkomandi mun eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins og taka virkan þátt í stefnumótun
og framfylgni á henni ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu umbótaverkefnum. Fjármála- og
rekstrarstjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Viðkomandi ber ábyrgð á:
• Yfirumsjón með daglegum rekstri og þróun á innri þjónustu.
• Framkvæmd og eftirfylgni markmiðasetningar og áætlanagerðar.
• Reikningshald, mánaðarleg uppgjör, árshluta- og ársuppgjör ásamt samskiptum
við endurskoðendur.
• Greiningar á sviði fjármála, viðskipta og á hagræðingartækifærum í rekstri.
• Samningagerð við þjónustuaðila og birgja.
• Ábyrgð á regluvörslu og samskiptum við Fjármálaeftirlit Seðlabankans.
• Yfirsýn með fjárfestingum.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
• Háskólamenntun á sviði endurskoðunar, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Árangursrík stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
• Reynsla af störfum hjá endurskoðunarfyrirtæki eða af fjármálasviði, reynsla af
sambærilegu starfi er æskileg.
• Mikil færni á sviði fjármála og rekstrar.
• Færni í markmiðasetningu, áætlanagerð sem og af umbótaverkefnum.
• Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
• Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.