Fréttablaðið - 19.11.2022, Side 44

Fréttablaðið - 19.11.2022, Side 44
Lyftaramaður – Akureyri Útgerðarfélag Akureyringa leitar að vönum lyftaramanni til starfa á Akureyri Lyftaramaður Starfssvið Alhliða lyftaravinna á framleiðslusviði ÚA Menntun Lyftarapróf og reynsla af störfum á lyftara Annað Metnaður fyrir framleiðslu Geta til að starfa sjálfstætt Jákvæðni að fyrirrúmi Nánari upplýsingar veitir Jakob Atlason í síma 660 9110 Útgerðarfélag Akureyringa er dótturfyrirtæki Samherja hf. Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með fjölbreytta starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum fiskvinnslum í landi. Samherji hefur á undanförnum árum fjárfest í landvinnslu í Eyjafirði og byggt þar upp tvær af fullkomnustu fiskvinnslum landsins. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við nýjar áskoranir í heimi sjálfvirkni og tækniframfara. Vinsamlega skilið skriflegum umsóknum til Önnu Maríu Kristinsdóttur, Starfsmannastjóra Samherja hf, Glerárgötu 30, 600 Akureyri eða með tölvupósti á netfangið anna@samherji.is fyrir 9. desember 2022 kopavogur.is Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum í starf deildarstjóra framkvæmdadeildar. Um er að ræða stjórnunarstarf á framkvæmdadeild sem hefur umsjón með öllum nýframkvæmdum Kópavogsbæjar. Viðkomandi þarf að hafa metnað og reynslu til að stýra stórum framkvæmdum á vegum sveitafélagsins. Helstu verkefni og ábyrgð · Yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar og greiðsluáætlunar vegna framkvæmda og reksturs framkvæmdadeildar. · Yfirumsjón með undirbúningi og hönnun framkvæmda. · Yfirumsjón með eftirliti framkvæmda og útboðsverka. · Yfirumsjón með kostnaðarstýringu hönnunar og framkvæmda. · Sér um útboðslýsingar vegna verkframkvæmda framkvæmdadeildar. · Gerð samninga vegna verkframkvæmda framkvæmdadeildar og hefur yfirumsjón með samningum við hönnuði og verktaka. · Mótun og uppfærsla verkferla framkvæmdadeildar. · Yfirumsjón með úttektum framkvæmda sem undir hann heyra og ákveður hvenær verksamningar eru uppfylltir og verki lokið. · Ábyrgð á að mæli- og hæðablöð séu rétt. · Ábyrgð á að landupplýsingakerfi sé uppfært og í samræmi við það sem í raun er. Menntunar- og hæfniskröfur · Háskólanám (Dipl. Ing í verkfræði, byggingatæknifræði eða sambærilegt) · Reynsla í rekstri og verkefnastjórnun. · Góð verkkunnátta og víðtæk reynsla í að stjórna stærri framkvæmdum. · Góð leiðtogahæfni · Góð tölvukunnátta · Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð · Þekking á lögum og reglum sem starfinu tilheyra · Góð mannleg samskipti og samstarfshæfni. · Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og norrænu tungumáli. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttafélags. Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, í síma 441-0000. Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á vef Kópavogsbæjar í gegnum ráðningarkerfið Alfreð. Umsóknarfrestur er til 28. nóvember 2022. Deildarstjóri framkvæmdadeildar Forstöðumaður Íþróttamið- stöðva Fjallabyggðar Fjallabyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðu- manns Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar. Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að leiða starfsemina. Forstöðumaður hefur umsjón með húsnæði íþróttamiðstöðva, tækjum og innanstokksmunum. Starfsstöðvar eru á Siglufirði og í Ólafsfirði. Í Ólafsfirði er íþróttahús, líkamsrækt og 25m útisundlaug og á Siglufirði er íþróttahús, líkamsrækt og 25m innisundlaug. Forstöðumaður heldur utan um daglegan rekstur og manna- hald, skipuleggur vaktir fyrir starfsmenn og sinnir öðrum tilfallandi verkefnum. Forstöðumaður annast fjárhagslegt eftirlit íþróttamiðstöðva, áritun reikninga, eftirlit með út- gjaldaliðum og ber ábyrgð á því að reksturinn fari ekki fram úr áætlun. Hann tekur virkan þátt í fjárhagsáætlunargerð og sér um skil á skýrslum og uppgjöri rekstrar. Næsti yfirmaður forstöðumanns er deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála. Starfshlutfall er 100%, þar af 40% í skipulögðum vöktum á starfsstöðvum íþróttamiðstöðva. Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun sem nýtist í starfi s.s. háskólamenntun, iðnmenntun eða önnur menntun. • Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði, skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og metnaður í starfi. • Góð kunnátta í íslensku. • Reynsla, þekking og stjórnun á sviðinu er kostur. • Góð tölvukunnátta og hæfni til að innleiða tæknibreytingar s.s. sjálfvirk kerfi. • Þekking á stýribúnaði sundlauga og búnaði tengdum íþróttamiðstöðvum er kostur. • Bílpróf. Viðkomandi þarf að gefa heimild til upplýsingaöflunar í sakaskrá. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2023. Nánari upplýsingar um starfið gefur Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála, netfang: rikey@fjallabyggd.is s. 464 9116 og 844 5819. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsferil og nöfnum tveggja umsagnaraðila (starfsferilskrá) ásamt kynningarbréfi um viðkomandi skal skilað rafrænt, á Rafræn Fjallabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2022. Öllum umsóknum er svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðu sveitar- félagsins https://www.fjallabyggd.is/ og á Fjallabyggð fagnar þér https://www.fagnar.is/ intellecta.is RÁÐNINGAR Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. 12 ATVINNUBLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.