Fréttablaðið - 19.11.2022, Síða 44
Lyftaramaður – Akureyri
Útgerðarfélag Akureyringa leitar að vönum lyftaramanni til starfa á Akureyri
Lyftaramaður
Starfssvið
Alhliða lyftaravinna á framleiðslusviði ÚA
Menntun
Lyftarapróf og reynsla af störfum á lyftara
Annað
Metnaður fyrir framleiðslu
Geta til að starfa sjálfstætt
Jákvæðni að fyrirrúmi
Nánari upplýsingar veitir Jakob Atlason í síma 660 9110
Útgerðarfélag Akureyringa er dótturfyrirtæki
Samherja hf. Samherji er eitt öflugasta
sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með fjölbreytta
starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að
skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og
stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum
aflaheimildum og fullkomnum fiskvinnslum í landi.
Samherji hefur á undanförnum árum fjárfest í
landvinnslu í Eyjafirði og byggt þar upp tvær af
fullkomnustu fiskvinnslum landsins. Við leitum að
metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að
takast á við nýjar áskoranir í heimi sjálfvirkni og
tækniframfara.
Vinsamlega skilið skriflegum umsóknum til Önnu Maríu Kristinsdóttur,
Starfsmannastjóra Samherja hf, Glerárgötu 30, 600 Akureyri
eða með tölvupósti á netfangið anna@samherji.is fyrir 9. desember 2022
kopavogur.is
Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum í starf deildarstjóra framkvæmdadeildar. Um er að ræða
stjórnunarstarf á framkvæmdadeild sem hefur umsjón með öllum nýframkvæmdum Kópavogsbæjar.
Viðkomandi þarf að hafa metnað og reynslu til að stýra stórum framkvæmdum á vegum sveitafélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlunar og greiðsluáætlunar vegna framkvæmda og reksturs
framkvæmdadeildar.
· Yfirumsjón með undirbúningi og hönnun framkvæmda.
· Yfirumsjón með eftirliti framkvæmda og útboðsverka.
· Yfirumsjón með kostnaðarstýringu hönnunar og framkvæmda.
· Sér um útboðslýsingar vegna verkframkvæmda framkvæmdadeildar.
· Gerð samninga vegna verkframkvæmda framkvæmdadeildar og hefur yfirumsjón með samningum við
hönnuði og verktaka.
· Mótun og uppfærsla verkferla framkvæmdadeildar.
· Yfirumsjón með úttektum framkvæmda sem undir hann heyra og ákveður hvenær verksamningar eru
uppfylltir og verki lokið.
· Ábyrgð á að mæli- og hæðablöð séu rétt.
· Ábyrgð á að landupplýsingakerfi sé uppfært og í samræmi við það sem í raun er.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólanám (Dipl. Ing í verkfræði, byggingatæknifræði eða sambærilegt)
· Reynsla í rekstri og verkefnastjórnun.
· Góð verkkunnátta og víðtæk reynsla í að stjórna stærri framkvæmdum.
· Góð leiðtogahæfni
· Góð tölvukunnátta
· Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
· Þekking á lögum og reglum sem starfinu tilheyra
· Góð mannleg samskipti og samstarfshæfni.
· Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og norrænu tungumáli.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttafélags.
Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, í síma 441-0000.
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á vef Kópavogsbæjar í gegnum ráðningarkerfið Alfreð.
Umsóknarfrestur er til 28. nóvember 2022.
Deildarstjóri
framkvæmdadeildar
Forstöðumaður Íþróttamið-
stöðva Fjallabyggðar
Fjallabyggð auglýsir laust til umsóknar starf forstöðu-
manns Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar.
Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til
að leiða starfsemina. Forstöðumaður hefur umsjón með
húsnæði íþróttamiðstöðva, tækjum og innanstokksmunum.
Starfsstöðvar eru á Siglufirði og í Ólafsfirði. Í Ólafsfirði er
íþróttahús, líkamsrækt og 25m útisundlaug og á Siglufirði
er íþróttahús, líkamsrækt og 25m innisundlaug.
Forstöðumaður heldur utan um daglegan rekstur og manna-
hald, skipuleggur vaktir fyrir starfsmenn og sinnir öðrum
tilfallandi verkefnum. Forstöðumaður annast fjárhagslegt
eftirlit íþróttamiðstöðva, áritun reikninga, eftirlit með út-
gjaldaliðum og ber ábyrgð á því að reksturinn fari ekki fram
úr áætlun. Hann tekur virkan þátt í fjárhagsáætlunargerð og
sér um skil á skýrslum og uppgjöri rekstrar.
Næsti yfirmaður forstöðumanns er deildarstjóri fræðslu-
frístunda- og menningarmála.
Starfshlutfall er 100%, þar af 40% í skipulögðum vöktum á
starfsstöðvum íþróttamiðstöðva.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. háskólamenntun, iðnmenntun eða önnur menntun.
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum
og metnaður í starfi.
• Góð kunnátta í íslensku.
• Reynsla, þekking og stjórnun á sviðinu er kostur.
• Góð tölvukunnátta og hæfni til að innleiða tæknibreytingar
s.s. sjálfvirk kerfi.
• Þekking á stýribúnaði sundlauga og búnaði tengdum
íþróttamiðstöðvum er kostur.
• Bílpróf.
Viðkomandi þarf að gefa heimild til upplýsingaöflunar
í sakaskrá.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2023.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Ríkey Sigurbjörnsdóttir
deildarstjóri fræðslu- frístunda og menningarmála, netfang:
rikey@fjallabyggd.is s. 464 9116 og 844 5819.
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsferil og
nöfnum tveggja umsagnaraðila (starfsferilskrá) ásamt
kynningarbréfi um viðkomandi skal skilað rafrænt, á Rafræn
Fjallabyggð.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2022.
Öllum umsóknum er svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Upplýsingar um Fjallabyggð er að finna á heimasíðu sveitar-
félagsins https://www.fjallabyggd.is/
og á Fjallabyggð fagnar þér https://www.fagnar.is/
intellecta.is
RÁÐNINGAR
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
12 ATVINNUBLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR