Fréttablaðið - 19.11.2022, Qupperneq 58
Grandagarði 13 Glæsibæ, 5.hæð eyesland.is
Þú finnur úrval af fallegum sólgleraugum í verslunum Eyesland
frá m.a. Jimmy Choo, Isabel Marant, Ray Ban og Gigi Studios.
Skoðaðu úrvalið á eyesland.is
Sólgeraugu
í jólapakkann
Grandagarði 13 Gl sibæ, 5.hæð eyesland.is
Nú er kominn tími til að
skipuleggja alla föstu liðina
sem fylgja jólaföstunni.
brynhildur@frettabladid.is
Mörg eru byrjuð að leggja drög að
aðventukrönsum og brátt koma
súkkulaðidagatölin sívinsælu í
búðir, oftar en ekki með tann-
kremi áfestu til að draga aðeins úr
foreldrasamviskubitinu sem fylgir
því að úða súkkulaði í börn fyrir
morgunmat.
Að telja niður dagana frá fyrsta
desember til jóla hefur verið gert
svo árhundruðum skiptir í Þýska-
landi, fyrst með því að merkja
hvern dag með krítarstriki á vegg
og seinna með myndum sem
tengjast fæðingu Krists.
Á átjándu öld var farið að nota
sérstök jólakerti til að mæla tím-
ann, skipta því í 24 hluta og brenna
bara einn hluta á dag og er sá siður
við lýði enn í dag. Fyrsta jóladaga-
talið er frá árinu 1851 og það var
úr tré og skartaði 24 myndum úr
jólaguðspjallinu.
Farið var að prenta dagatöl árið
1902 en árið 1920 var það Gerhard
Lang sem fann upp á því að setja
hurðir eða glugga sem hægt er að
opna og sjá hvaða mynd leyndist
bak við. Þá voru einnig stundum
biblíuvers við hlið myndanna.
Í kreppunni og alveg fram yfir
seinni heimsstyrjöld var skortur
á pappír svo dagatalsframleiðsla
lagðist að mestu af. En í kringum
1950 tók maður að nafni Richard
Sellmar í Stuttgart upp þennan
sið og hóf útflutning á mynda-
dagatölum til Bandaríkjanna auk
þess að sinna eftirspurn í Evrópu.
Súkkulaðið bættist svo við árið
1958 og síðan hafa jóladagatöl
markað hátíðleika aðventunnar og
stytt börnum stundir í myrkrinu í
desember.
Síðan um aldamótin síðustu
hefur ekki eingöngu verið hægt
að fá dagatöl með myndum eða
súkkulaði heldur hafa stærstu
leikfangaframleiðendur einnig
stokkið á vagninn og nú er hægt
að fá dagatöl frá Legó, Playmó
eða Disney svo dæmi séu tekin.
Og nú geta fullorðnir einnig talið
dagana niður til jóla því úrvalið af
dagatölum sem eru ætluð þeim er
jafnvel enn meira en fyrir börnin.
Þar kennir ýmissa grasa, snyrti-
vöruframleiðendur láta gera litlar
útgáfur af sínum vörum og steypa
utan um falleg dagatöl, áfengis-
framleiðendur einnig, einkum gin
og viskíframleiðendur og hægt er
að fá dagatöl með 24 mismunandi
tepokum eða kaffihylkjum.
Þá má fá dagatöl með litlum
sultukrukkum, smáköku fyrir
hvern dag og jafnvel mismunandi
ostum eða þurrkuðu kjöti en
þau dagatöl þarf væntanlega að
geyma í kæli. Aðdáendur ilmkerta,
kandí floss og framandi krydda
geta líka fengið dagatöl við hæfi og
fylgja gjarna uppskriftir með þeim
síðastnefndu.
Bjóraðdáendur fá oft mis-
munandi bjóra frá sínum nánustu
og ekki má gleyma kynlífshjálpar-
tækjadagatölunum sem hafa notið
gríðarlegra vinsælda hérlendis
undanfarin ár.
Löngum hafa fjölskyldur saum-
að eða föndrað eigin jóladagatöl,
einhvers konar grind með pokum
eða hólfum sem eru merkt með
númerum, þar sem lítill glaðning-
ur birtist á hverjum degi og getur
sá bæði verið í formi sælgætis eða
lítilla leikfanga. Einhverjar fjöl-
skyldur baka piparkökudagatal,
þar sem 24 mismunandi pipar-
kökur eru skreyttar númerum og
snæddar í réttri röð og aðrar bjóða
upp á nýja tegund af morgunkorni
á hverjum morgni í desember.
Margar fjölskyldur hafa einnig
tekið upp samverudagatal þar
sem tekinn er frá tími dag hvern
til að gera eitthvað saman eins
og að baka, föndra, fara á skauta
eða eitthvað annað
skemmtilegt. Öll
eiga dagatölin það
sameiginlegt að
efla hátíðleika
aðventunnar og
gera það bæri-
legra að þurfa að
rífa sig á fætur í
svartasta skamm-
deginu. n
Ostar, kynlífstæki og kandífloss
Sumar fjölskyldur föndra sín eigin dagatöl. Hér er fallegt jólatré úr klósett-
rúlluhólkum sem auðvelt er að lauma einhverju í. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jóladagatöl bæta líf og glæða geð i
drunganum í desember.
Piparköku-
dagatöl svíkja ekki
enda piparkökur
með því jólalegra
sem fyrirfinnst.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA
Þjáist af liðverkjum og stirðleika?
Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur?
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótar-
fæði og notuð til bóta á mörgu meini.
Vítamín D:
• Stuðlar að eðlilegri upptöku kalsíums
og fosfórs.
• Stuðlar að viðhaldi beina, tanna
og vöðva.
• Stuðlar að bættri starfsemi ónæmis-
kerfisins.
• Eining hefur D-vítamín hlutverki
að gegna við frumuskiptingu.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
6 kynningarblað A L LT 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR