Fréttablaðið - 19.11.2022, Page 80
Tónlistin var ágætlega
heppnuð. Hún var
mjög rytmísk til að
byrja með.
TÓNLIST
Skemmtilegt er myrkrið
tónleikhús eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur
Kaldalóni í Hörpu
laugardaginn 12. nóvember
Þátttakendur: Ásta Sigríður
Arnardóttir, Jón Svavar Jósefsson,
Matthildur Anna Gísladóttir,
Sigurður Halldórsson og Frank
Aarnink
Danhöfundur: Asako Ichiashi
Leikmynd og búningar: Eva
Bjarnadóttir
Leikstjórn: Bergdís Júlía
Jóhannesdóttir
Jónas Sen
Ég sat við hliðina á litlum dreng
sem virtist lifa sig inn í tónleikhúsið
Skemmtilegt er myrkrið. Það var sýnt
í Kaldalóni í Hörpu síðasta laugardag
og var eftir Elínu Gunnlaugsdóttur.
Sum atriðin voru að vísu þannig að
drengurinn varð hræddur, en svo
birti til og sagan hlaut farsælan endi.
Verkið var pantað af Töfrahurð.
Það er félag um starfsemi sem er
helguð tónleikum og útgáfu og hefur
að markmiði að opna heim tónlistar-
innar, bæði ný verk og gömul, fyrir
börnum. Hér var blandað saman
tónlist, leik og dansi, og var verkið
unnið með Listdansskóla Íslands.
Fjórar ungar stúlkur dönsuðu og
gerðu það af áhrifamiklum yndis-
þokka.
Vel dulbúnir
Þrír hljóðfæraleikarar spiluðu á
píanó, slagverk og selló, og ýmislegt
annað á borð við sleifar, langspil og
dótapíanó. Þeir eru þekktir úr tón-
listarlífinu, en voru svo vel dulbúnir
í kostulegum klæðum að þeir voru
nánast óþekkjanlegir. Þetta voru þau
Matthildur Anna Gísladóttir, Frank
Aarnink og Sigurður Halldórsson.
Til að höfða til barnanna var
sagan skondin, og ófáir brandarar
flugu. Persónurnar voru tvær, Ása
Signý og frændi hennar, Jón Árni. Í
þeim mættust gamall heimur og nýr.
Frændinn trúði á drauga og forynjur
en Ása Signý ekki á neitt. Yfirskilvit-
legir atburðir í sögunni, leikur álfa
og huldufólks, dansandi nykur og
hvaðeina, gerði þó að verkum að hún
þurfti að endurskoða afstöðu sína.
Flippaður hryllingur
Draugagangurinn var skemmtilega
útfærður. Stúlkurnar úr Listdans-
skólanum léku t.d. nykurinn, sem er
hulduhestur með öfuga hófa. Hann
var dálítið hrollvekjandi á f lipp-
aðan hátt: útkoman var annarleg
en um leið fyndin. Leikmyndin var
líka mögnuð og gerði að verkum að
maður datt enn betur inn í söguna.
Textar sönglaganna samanstóðu
af gömlum vísum og ljóðum, en texti
lokalagsins var þó saminn sérstak-
lega fyrir verkið af Þórarni Eldjárn.
Tónlistin var ágætlega heppnuð. Hún
var mjög rytmísk til að byrja með,
jafnvel hörkuleg á fremur einstreng-
ingslegan hátt. Maður saknaði þess
að fá ekki að heyra meira af grípandi
laglínum. Það eru jú melódíurnar
sem höfða svo til barnanna, eins og
óteljandi barnalög eru til vitnis um.
Mætti vera fyrirferðarmeiri
Aðeins í einu atriðinu fékk ljóðrænan
að njóta sín, það var fagur söngur við
framandi undirleik og kom prýðilega
út. Engu að síður var tónlistin í heild
áheyrileg og flott á sinn hátt, og hún
var líka mjög vel flutt, af skýrleika og
nákvæmni.
Ása Signý og Jón Árni voru leikin
af Ástu Sigríði Árnadóttur sópran
og Jóni Svavari Jósefssyni baríton.
Þau voru sannfærandi í leiknum og
söngurinn var frambærilegur. Söng-
ur hljómar aldrei mjög vel í Kalda-
lóni vegna hljómburðarins, sem er
ákaflega þurr. En það sem á vantaði
í sönginn bættu leikararnir upp með
ærslafengnum leik og manni leiddist
aldrei, heldur þvert á móti. n
NIÐURSTAÐA: Líflegt tónleikhús
sem féll greinilega í kramið hjá
börnunum.
Hverju skal trúa
Hátíðarfundur Litlu systur
verður haldinn í Iðnó í dag
á Reykjavík Dance Festival.
Litla systir er menningarskóli
fyrir unglinga stofnaður af
Ásrúnu Magnúsdóttur.
tsh@frettabladid.is
Menningarskólinn Litla systir, sem
er teymi skipað tíu ungmennum á
aldrinum 13-18 ára, tók yfir Iðnó
í þessari viku í tilefni Reykjavík
Dance Festival. Litla systir er hugar-
fóstur danshöfundarins Ásrúnar
Magnúsdóttur en með henni í
verkefninu eru Anna Margrét Ólafs-
dóttir og Marta Ákadóttir.
„Þetta heitir Litla systir af því í
raun er þetta litla systir Reykjavík
Dance Festival. Listrænu stjórnend-
urnir, Pétur Ármannsson og Brogan
Davison, vildu halda áfram að vinna
með ungu fólki og unglingum en
það er eitthvað sem ég hef verið að
gera þannig við sameinuðum krafta
okkar og stofnuðum þennan „skóla“
sem Litla systir er,“ segir Ásrún.
Framúrstefnulegur skóli
Litla systir er framúrstefnulegur
og óhefðbundinn skóli fyrir ungt
fólk sem vill uppgötva heiminn í
gegnum listir og aktívisma. Nem-
endurnir fá að móta námið sjálf og
velja sína eigin kennara sem hitta
þau og segja frá sínu starfi.
„Við höfum fengið alls konar fólk
inn. Til dæmis Andrean Sigurgeirs-
son, sem er dansari hjá Íslenska
dansflokknum og mikill aktívisti,
Jón Gnarr, DJ Dóru Júlíu, Perlu Gísla-
dóttur umhverfisaktívista, fólk frá
Andrými og Svikaskáld. Þetta er
alls konar, ekki bara sviðslistir eða
dans,“ segir Ásrún.
Undanfarna viku hafa meðlimir
Litlu systur staðið fyrir umfangs-
mikilli dagskrá í Iðnó á Reykjavík
Dance Festival sem nær hápunkti
sínum nú á laugardag.
„Það var verk á miðvikudag sem
heitir Feminískt reif eftir Önnu
Kolfinnu Kuran, það er verk sem
þau framleiddu og skipulögðu sjálf.
Síðan vorum við með vinnusmiðjur
í vikunni með listamönnum sem
þau vildu fá. Það var til dæmis leir-
keragerð frá FLÆÐI og tónsmíða-
námskeið með stelpum úr hljóm-
sveitinni Gróu,“ segir Ásrún.
Þenkjandi ungt fólk
Í dag, laugardag, verður svo hátíðar-
fundur Litlu systur haldinn í Iðnó
á milli 2 og 4. Fundurinn er opinn
öllum þeim sem vilja kynnast
starfsemi Litlu systur, fullorðnum,
börnum og unglingum.
„Þar er fólki boðið að koma og
kynnast Litlu systur og hvað þau
standa fyrir. Meðlimir Litlu systur
eru mjög þenkjandi ungt fólk sem
lætur sig málefni líðandi stundar
varða, þannig að það er mjög gaman
að tala við þau. Þau hafa hvert og
eitt valið sér umfjöllunarefni sem
þau ætla að tala um.“
Ásrún hvetur ungt fólk sem hefur
áhuga á að taka þátt í starfsemi Litlu
systur til að mæta, sem og fullorðna.
„Ég vinn oft með unglingum og
fullorðið fólk er stundum að segja
mér að það sé hrætt við unglinga.
Þannig að ég vil skora á fólk að
horfast í augu við óttann og mæta.
Svo er þetta náttúrlega bara líka
mjög gaman fyrir aðra unglinga að
koma og setjast niður og spjalla,“
segir hún.
Hver sem er getur sótt um
Geta allir sem eru á aldrinum 13 til
18 ára verið með í Litlu systur?
„Já, hver sem er getur sótt um að
vera með. Það er hægt að finna mig á
Instagram, hringja í mig, senda mér
tölvupóst eða hvað sem er og vera
með.“
Hvað er svo næst á döfinni hjá
Litlu systur?
„Við ætlum að fara í smá umhverf-
isverndarpælingar, setjast niður og
pæla í því. Það er einn fundur fyrir
jól og svo er bara frí. Síðan ætlum
við bara að halda áfram að gera það
sem við höfum verið að gera. Ekki
framleiða, heldur bara að vinna
fyrir okkur. Svo viljum við komast
til útlanda og finna einhverja sam-
starfsaðila erlendis. Þannig að það
er margt í gangi.“
Á sr ú n Mag nú sdóttir hef u r
unnið mikið með unglingum í sínu
starfi, til að mynda í sýningunum
grrrrrls, Teenage Songbook of Love
and Sex og Hlustunarpartý. Spurð
hvort henni finnist skemmtilegra
að vinna með unglingum en full-
orðnum segir hún:
„Nei, mér finnst það ekkert endi-
lega skemmtilegra en mér finnst
það mjög skemmtilegt. Ég er bara
mjög forvitin um fólk þannig að
mér finnst gaman að vinna með alls
konar fólki. Það svona sem drífur
mig svolítið áfram er hverjum vil ég
kynnast. Ég hef ótrúlega gaman af
að vinna með ungu fólki en ég tek
það ekkert endilega fram yfir full-
orðna, það eru bara allir góðir á sinn
hátt.“ n
Fullorðnir stundum hræddir við unglinga
Litla systir sýndi verkið Feminískt reif eftir Önnu Kolfinnu Kuran í Iðnó
síðasta miðvikudag á vegum Reykjavík Dance Festival. MYND/OWEN FIENE
Skemmtilegt er myrkrið er tónleikhús eftir Elínu Gunnlaugsdóttur.
MYND/EYÞÓR ÁRNASON
Ásrún Magnús-
dóttir, stofnandi
menningarskól-
ans Litlu systur
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Ný bók prýdd fjölda mynda
eftir verðlauna höfundinn
Sigrúnu Eldjárn.
DULARFULL
OG SPENNANDI
48 Menning 19. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 19. nóvember 2022 LAUGARDAGUR