Fréttablaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 88
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
ERTU AÐ
FLYTJA?
FÖNN Ullarúlpa 44.990,-
SNORRI lopapeysa 24.990,-
ESTHER angóru sokkar 1.750,-
SÓLA zip-o göngubuxur 17.990,-
ÞÍN ÚTIVIST
ÞÍN ÁNÆGJA
icewear.is
Jólabókavertíðin fer hraðfari þessa
dagana. Vongóðir rithöfundar
lesa upphátt úr bókum sínum í
verslunum. Blöðin eru full af fimm
stjörnu ritdómum enda leynast
víða snillingar. Flestir eru bjart-
sýnir og láta sig dreyma um bók-
menntaverðlaun forsetans og frægð
og frama í erlendum þýðingum.
Ekki eru þó allir jafnánægðir.
Ég hitti Sturlu Þórðarson (f.
1214) sagnaritara í bókaverslun
Eymundssonar. Hann var að kynna
nýútkomið verk um ævi og örlög
Sturlunga, Íslendingabók. Bókin
fékk misjafna dóma: „Þetta rit er of
langt, með alltof mörgum nöfnum
og ósannfærandi bardagalýsing-
um.“ Sturla var dapur í bragði. „Það
hefur enginn áhuga á ættingjum
mínum lengur nema ruglaður
geðlæknir í Reykjavík. Hann segist
reyndar vera frændi minn en ég
þekki manninn ekki neitt.“
Snorri Sturluson (f. 1179), frændi
hans, var að árita Egilssögu annars
staðar í búðinni. Hún hafði fengið
afleita dóma í fjölmiðlum. „Bókin
er beinlínis kvenfjandsamleg og
upphefur feðraveldið. Glötuð per-
sónusköpun þar sem algjörlega
vantar fulltrúa minnihlutahópa.
Hvar eru fatlaðir eða samkyn-
hneigðir í sögunni?“ Snorri stundi
þungan og sagðist hættur við að
skrifa Heimskringlu. „Það hefur
enginn áhuga á norsku konungs-
fjölskyldunni nema einhverjir
vitleysingar með konungablæti.“
Hann sagðist líka kannast við
þennan geðlækni sem snobbaði
fyrir Agli Skallagrímssyni og kallaði
hann afa sinn.
Verslunarstjórinn kom aðvífandi
og sagði þeim frændum að fara
heim. „Það vill enginn lesa þessar
bækur. Getið þið ekki farið að skrifa
sakamála- eða hamfarasögur? Það
er það eina sem selst.“ Þeir tróðu
bókunum í stóra Adidastösku
og gengu þungum skrefum út úr
sögunni. n
Jólabækur
Ný Nettó
verslun
að Selhellu
Velkomin
á Vellina
Opið 09-21
alla daga