Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Side 5
formáli
Efni þessa kvers er tvíþætt:
1) ± 1.-7. kafla er greint stuttlega frá nokkrum undir-
stöðum; ákvarðanatöku, eðlisfræði, geislalíffræði, geisla-
vörnum og kostnaði.
í 8. kafla eru nokkrum myndgreiningar-rannsóknaraðferðum,
öðrum en "vanalegu röntgen", gerð nokkur skil.
2) SÍðari hluti bókarinnar eru ýmis ráð og leiðbeiningar
sem ég hefi tekið saman, annarsvegar vegna kennslu
stúdenta og röntgentækna, en hinsvegar vegna nauðsynlegrar
fræðslu og upplýsingaflæðis milli röntgendeilda og hinna
klinisku deilda og starfsmanna þeirra. Þar vil ég aðeins
vísa til efnisyfirlitsins, sem fylgir næst á eftir þessum
orðum.
í viðauka eru nokkur ljósrit úr heimildaritum af textum, sem
ég vil vekja sérstaka athygli á.
Ég hefi ekki tekið með nema tiltölulega fáar lesefnistilvitnanj.
en vil sérstaklega benda á hina einstaklega ágætu bók "Röntga
lagom" eftir Staffan Cederblom (3), en efniviður er hér á
köflum mjög likur þeirri bók. Einnig vil ég benda þeim, sem
kynnu að hafa frekari áhuga á þessum efnum á fræðslurit IRCP,
Internationai Commission on Radiological Protection (5,6) sem
mjög voru notuð við gerð þessa texta, svo og bók David Suttons
Radiology for Medical Students (15). Þeim, sem e.t.v. vildu
sökkva sér enn meira niður í einstök efni, bendi ég á aðrar
greinar og bækur í heimildaskrá. Starfsbróður mínum, Kristjáni
Sigurjónssyni, þakka ég margar góðar ábendingar um gerð
bókarinnar.
Ásmundur Brekkan