Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Blaðsíða 42
38 -
ÆÐARANNS ÓKNIR
Angiocardiografia - Aortografia
Selectiv arteriografia
Cavografia - Spleno-portografia
Þessar rannsóknir útheimta stundum lyfjaforgjöf
(premedicineringu), sem ákvöröuð er i samráöi viö
röntgenlækninn í hvert skipti.
Undirbúningur er aö ööru leyti samkvæmt undirbúnings-
leiöbeiningum.
Nákvaanar upplýsingar þurfa aö vera fyrir hendi um
sjúklinga, sem eru, eða hafa verið, á segavarnarlyfjum
(anticoagulantia). Ennfremur þarf aö kanna
hugsanlega ofnæmissögu sjúklinga.
Lymfografia
Lymfografia er skuggaefnisrannsókn á lymfuæðum og lyfmueitlum
með oliuleystu skuggaefni.
Tækni: Litarefni er dælt inn á milli tánna til aö hægt sé
að sjá lymfubrautirnar. Þetta litarefni getur
gefiö sjúklingnum bláleitan eöa grænleitan lit upp
eftir fætinum. Ennfremur getur þvagiö orðiö blátt
og þaö getur staöiö í 1-2 daga. há er um örmjótt rör
dælt inn skuggaefni.
Sjálf inndælingin er óþægindalaus, en þaö er algengt.,
aö sjúklingur fái hita sama dag eöa næsta morgun, sem
talinn er standa í sambandi við nokkra útrás efnisins
í lungnavef, en þessi svörun hverfur venjulega á
einum sólarhring.
Undirbúningur:
Sjúklingur skal koma hreinsaöur samkvæmt hreinsunar-
leiðbeiningum um urografiu. Báðir fætur vel þvegnir
meö sápuvatni, neglur á tám hreinsaðar og klipptar.
Rannsóknin sjálf tekur mjög langan tíma (inndælingin
sjálf 4-7 klst.), og þvi er mælt meö, aö sjúklingur hafi
með sér eitthvaö lestrarefni.
Útlimsphlebografia
Undirbúningur undir þessa rannsókn er enginn sérstakur.
Framkvæmd hennar er í samráði viö röntgenlækni í hvert
skipti.