Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Page 7
3
b) vera snjall í túlkun á rannsóknarniðurstöðum, hafa
skilning á gagnsemi þeirra við að flýta greiningu og
meta árangur meðferðar, en jafnframt gera sér grein
fyrir takmörkunum þeirra og þeim kostnaði, sem
rannsóknum er samfara. NÚtíma læknisfræði býður upp
á mjög nákvaanar, en oft á tíðum dýrar rannsóknir og
því er lækninum nauðsynlegt að þroska með sér góða
dómgreind i þessu tilliti".
Við þessi orð er ekki miklu að bæta. Kennsla og þjálfun
almennra lækna í röntgenfræðum og skyldum greinum verður
að beinast að þeim atriðum, sem ofangreindir höfundar drepa á,
meir en tilraunum til að kenna stúdentum að túlka röntgen-
myndir á allt of stuttum námskeiðum.
Það sem að mínu viti skiptir mestu máli, er að varúð i meðferð
raraisóknaraðferða, sem eru bæði kostnaðarsamar og geta haft
liffræðilega óæskileg áhrif, verður að aukast. Læknar, kennarar
þeirra og aðrar heilbrigðisstéttir, verða að temja sér ðgun,
rökvisi og kiiniska skynsemi i notkun og túlkun dýrra og stundum
hættulegra hjálpargagna. Ég vona að þessi litla bók
megi verða einhverjum að gagni, en tilgangi mínum tel ég náð,
þótt aðeins eitt atriði einhversstaðar úr textanum verði einum
lesanda að gagni i eitt skipti'