Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1982, Qupperneq 20
16
Liggi á annaó borð fyrir ljós og rökstudd læknisfræðileg
ábending (indikatio) um að röntgenrannsókn skuli gerð, þá
eru geislunarhætturnar hverfandi, miðað við hugsanlegar
hættur heilsu sjúklings, væri rannsóknin ekki gerð.
Þess hefur áður verið getið, að röntgenrannsóknir eru dýr
þáttur í heilbrigðisþjónustunni. Fyrir margar röntgen-
rannsóknir þarf að undirbúa sjúklinginn til þess að full-
nægjandi árangur náist. Vegna rannsókna í kviðarholi,
lumbalhrygg og pelvis þarf sjúklingurinn að laxera. Lyfja-
forgjöf er æskileg við ýmsar sérhæfðar æðarannsóknir og aðrar
rannsóknir. 1 mörgum tilfellum þarf sjúklingur að vera
fastandi og fyrir æðarannsóknir þarf að hafa upplýsingar um
blæðingar- og storkunartíma. Mjög þýðingarmikill hluti
undirbúningsins eru upplýsingar til sjúklingsins af hálfu
læknisins, sem sendir hann, eða starfsliðs á deildinni, þar
sem sjúklingurinn liggur,ef hann er á spítala. Það kemur
alltof oft fyrir, að sjúklingar koma til röntgendeildar án
þess að hafa hugmynd um, hvað gera skal, og það er auðvitað
ekki nægilega gott. Verjið því góðum tíma í að skýra fyrir
sjúklingnum, hvað eigi að gera, hvers vegna og hvernig
rannsóknin er framkvæmd. Ábendingar og leiðbeiningar um
undirbúning sjúklinga eru mismunandi á mismunandi röntgen-
deildum, og þvi er mjög nauðsynlegt að kynna sér hverjar
leiðbeiningar gilda á þeirri röntgendeild, sem hugsað er að
senda sjúklinginn til rannsóknar á.