Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 5

Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 5
Leikhúsmál 5 Byggingarnefnd, Þjóðleikhússins. Frá vinstri: lngimar Jónsson. Hörður Bjarnason, form. og Jónas Jónsson. Þá gekk formaður byggingar- nefndar hússins, Hörður Bjarna- son skipulagsstjóri, upp á leik- sviðið. I ræðu sinni rakti hann að nokkru byggingarsögu hússins. Minntist hann byggingarmeistar- ans Guðjóns Samúelssoanr pró- fessors, sem nú lægi á sjúkrahúsi, og gæti bví ekki auðnazt, að vera viðstaddur vígslu þess verks, er hannn hafði tekið mestu ástfóstri við. Fyrir hönd byggingarnefndar, afhenti hann ríkisstjórninni Þjóð- leikhúsið. Björn Ólafsson menntamála- ráðherra gekk þá fram á svið- ið og sagðist veita viðtöku þessari virðulegu byggingu fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar. Þakkaði ráðherrann bygging- amefndinni og öðrum, sem unnið höfðu fyrir málið. „Sérstaklega þakka ég þeim mönnum, lífs og liðnum“, mælti hann, „sem í öndverðu höfðu forgöngu þessa máls, og misstu aldrei trúna á það, að þessi hugsjón þeirra ætti eftir að rætast. Ég veiti viðtöku þessu húsi, og afhendi þjóðinni það til eignar, með þeirri ósk, að hér megi hún skoða sjálfa sig í skuggsjá listarinnar, — og að hér megi jafnan loga sá helgi eldur menningar og mannvits, sem hverju þjóðfélagi er nauðsyn til sannra framfara.“ — .... Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri tók því næst til máls. Hneig ræða hans að til- gangi leikhússins fyrir þjóðina. Talaði hann um hið fórnfúsa starf leikaranna á umliðn- um áratugum, og um hinn mikla árangur af starfi þeirra. Taldi hann þjóðina standa í mikilli þakkarskuld við þessa brautryðjend- ur, og þá skuld yrði leikhúsið að gjalda, með því að halda hátt merki leiklistarinnar. Hann minntist á hinn frábæra áhuga leikhúsgesta, verk leikritahöfundanna og leikleiðbeinend- anna, allir þessir aðilar hefðu haft samstarf um þróun þessarar listar. „Höfuðhlutverk ábyrgs leikhúss, hlýtur fyrst og fremst að vera, að sýna áhorfendunum inn í djúp mannssálarinnar, og skýra á listrænan hátt sem flest viðfangsefni mannlegs lífs. .... Ef vér öll, leikhúsgestir, leikarar, rithöfundar og stjórnendur, sameinumst um, að gera veg Þjóðleikhússins sem mestan, megum vér vera þess fullviss, að starfsemi þess markar tíma- mót í menningarsögu þjóðar vorrar.“ .... Er leikhússtjórinn hafði lokið máli sínu, lék hljómsveitin hátíðaforleik, saminn af Páli ísólfssyni, vegna vígslu Þjóðleikhússins. Höf- undurinn stjórnaði. Að því loknu flutti Tómas Guðmundsson skáld forljóð, er hann hafði ort í tilefni af vígslunni. Öllum þessum byrjunaratriðum leikhús- vígslunnar, var tekið með miklum fögnuði vígslugesta. — Þá hófst forleikur að vígsluleiksýningunni, saminn af Árna Björnssyni. Dr. V. Urbant- schitsch stjórnaði, og síðan hófst sýning á Nýársnóttinni eftir Indriða Einarsson, undir stjórn Indriða Waage. Að lokinni leiksýningu voru leikendur hylltir mjög af áhorfendum. Þá las leikhússtjóri símskeyti frá forseta íslands svo hljóðandi: „Innilegar árnaðaróskir yður, leikhúsinu, starfsmönnunum og þjóðinni. Sveinn Björnsson.“ (Forseti var sjúkur erlendis, og gat því ekki verið viðstaddur vígsluna). Nú voru fluttar kveðjur innlendra manna. Gekk fyrstur inn á sviðið Valur Gíslason

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.