Leikhúsmál - 01.06.1950, Síða 20
20
Leikhúsmál
Guðjón Samúelsson,
prófessor.
verið gert annarsstaðar, og verður gert síðar.
Hjá þeim, sem bezt þekktu húsameistarann,
og lengst áttu með honum samstarf, verður
hans minnzt sem óvenjulegs afkastamanns,
frumlegs og stórhuga listamanns, er ruddi
nýjar brautir, enda þótt á stundum andaði
köldu, og uppskeran væri oft á tíðum skiln-
ingsleysi og sleggjudómar. Guðjón Samúels-
son lét slíkt aldrei á sig fá, og grandvarari
mann í annarra garð hef ég fáa hitt, og var
það eitt af sönnum aðalsmerkjum hans.
Störf húsameistara ríkisins náðu til mestr-
ar byggðar landsins, en hér í höfuðborginni
auðnaðist honum að skapa óbrotgjarna minn-
isvarða, og hefur öllum öðrum fremur mót-
að þann svip Reykjavíkur, er gerir hana að
höfuðborg.
Guðjón Samúelsson átti sæti í skipulags-
nefndinni frá upphafi. Lagði hann jafnan
mikla rækt við þau störf. íslendingar voru í
hópi fyrstu þjóða á Norðurlöndum, er settu
fullkomna skipulagslöggjöf, en þar var einnig
brautryðjendastarfið lagt á herðar húsmeist-
aranum og samstarfsmanna hans. Þótt margt
hafi að sjálfsögðu tekið breytingum síðan
fyrsti skipulagsuppdráttur var gerður af
Reykjavík, og allar aðstæður og þróun orðið
önnur en þá var unnt að sjá fyrir, verður
eigi móti mælt, að grundvöllurinn sem þá
var lagður, sýndi mikla framsýni, og var þar
margt framar en á síðari árum.
Á þessu sviði byggingarmálanna í Reykja-
vík, sem þá var ónuminn akur, komu hæfi-
leikar húsameistarans að góðu gagni. Vissu-
lega var margt það í skipulagsmálunum, sem
betur mátti fara, og æskilegra hefði verið.
Hygg ég að engum hafi verið það ljósara en
einmitt honum, en allt frumstarf skipulags-
ins var háð margvíslegum og óviðráðanleg-
um atvikum, sem ör þróun í byggingarmál-
um og breyttum aðstæðum skapaði. Þó býr
Reykjavík enn í dag um margt að fyrstu gerð
í þessum efnum, sem á engan hátt stendur
að baki því, sem reynslan hefur sannað, að
réttast sé.
Þótt húsameistari ríkisins hafi þannig tekið
virkan þátt í því, að leggja gnmdvöllinn
undir byggðina síðustu þrjá áratugina, ber
þó meira á því, sem af grunni hefur risið af
hendi hans sem húsameistara,-----einstakar
byggingar hans, er settu svip á bæinn.
Um það bil, sem hann lauk námi erlendis,
gerði hann byggingar, svo sem Eimskipafé-
lagshúsið og núverandi Reykjavíkurapótek.
Hvortveggja stórbyggingar í þá daga, og eru
raunar enn.
Fyrstu starfsárin teiknaði hann fjölda íbúð-
arhúsa, — sum þeirra með áður óþekktum
glæsibrag, og með áhrifum þeirrar menning-
ar, er um það leyti var ríkjandi í byggingar-
háttum nágrannaþjóðanna.
Guðjón Samúelsson varð fljótlega mikil-
virkur, eftir að hann tók við embætti húsa-
meistara. Flest var þá ógert í byggingarmál-
um hins opinbera. Þegar á fyrstu árunum
tók hann að vinna að ýmsum þeim stórbygg-
ingum hér í bænum, sem halda munu á lofti
nafni hans, og lofa meistara sinn um ókomin
ár.
Þrjár öndvegisbyggingar ber þar hæst, en
það eru Landsspítalinn, Háskólinn og Þjóð-
leikhúsið. Munu þessi þrjú stórvirki ætíð
talin með merkustu byggingum, sem þjóðin
hefur reist, og út af fyrir sig nægilegt til
þess að halda uppi hróðri húsameistarans,
þótt eigi hefðu verið fleiri.
Aðrar byggingar hans, sem byggðar voru