Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 24

Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 24
24 Leikhúsmál riðum, heldur af því að í þeim er skemmmtileg sögu- leg tillíking og útfærzlan gleður augað. Leikstjórnin sem þáttur úr sviðsetningunni er hér líka, enda þótt hið stóra leiksvið hafi freistað leikstjór- ans til þess að stækka sumar hreyfingar, sem þoldu það tæp- lega. Að sjálfsögðu skila nokkr- ir leikendur drjúgu innleggi eins og Friðfinnur, Gunnþór- unn og Þorsteinn Ö. Stephen- sen. Það er sannreynt, að þetta fólk kann að leika sitt eigið þjóðlíf. Við hliðina á þessu fólki slær nokkruni fölva á leikaðferð Haralds Björnssonar í sama hlutverki Arnesar, en hann verður samt talinn réttu megin sökum yfirburða á leik- sviðinu í þriðja þætti leiksins, spurningin er, hvort ekki verði bætt úr 'brotalöm, sem virðist vera á hlutverkinu frá hendi höfundar, milli tveggja fyrstu þáttanna og hins þriðja, með því að leika Arnes sem jafn- aldra Kára að útliti. Lárus Ing- ólfsson skilar Arngrími holds- veika í vandlega hugsaðri út- færzlu, hóflega ýktri, hvað Jón bóndi snertir gervi, en með dáltíið tildurslegu raddfæri, varla nógu hrjúfur og dimmur. Þá eiga og hér innlegg nokkrir fleiri leikendur þó í smáu sé. Anna Guðmundsdóttir og Wilhelm Norð- fjörð eru góð vinnuhjú í sveit á íslandi og forðast „sveitamennskusniðið“, sem sumir aukaleikendanna í öðrum þætti halda augsýnilega eigi við um íslenzkt sveitafólk. Og litla stúlkan Kristín Waage (Tóta) var yndislegt barn. Nú er ekki sagt, að allt sé vandlega fært til bókar, en hinum mégin, eða í skuld við sviðsetningu, í senn hefðbundna og þjóðlega, listræna og áhrifaríka, verða fyrst og fremst leiktjöldin (Sigfús Halldórsson) ekki af því að þau séu ljót og leiðinleg, heldur fyrir kona hans (Friðf. Guðj.s. og; Gunnþórunn Halldórsd.). hófleysi í línum og litum. Kaldranalegasta ljósmynd eða glansmynd af íslenzku lands- ’lagi væri hundrað sinnum betri en þetta ósamstæða safn af „brekkum“, „fossum“, „jöklum“ og „gjám“. Og hér er einmitt spurn- ingin borin upp í fyrsta sinn, athyglisverð í sambandi við þessa sýningu á þjóðlegu leik- riti. Er unga kynslóðin, málarinn og sumir leikenda, utanveltu við íslenzkt þjóðlíf? (Out of tune, fyrir þá, sem ekki skilja íslenzku). Þá og aðeins þá er ástæða til þess að taka Fjalla-Eyvind og önnur þjóðleg leikrit til gagngerðrar endurskoðunar og rannsóknar. Verk eins og Fjalla-Eyvind má rýna ofan í kjölinn á margvíslegan hátt. Vafalaust er hin hefðbundna leikaðferð, að skipa Höllu

x

Leikhúsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.