Leikhúsmál - 01.06.1950, Blaðsíða 26

Leikhúsmál - 01.06.1950, Blaðsíða 26
26 Leikhúsmál Sigurður Grímsson: ÍSLANDSKLUKKAN eftir Halldór Kiljan Laxness. Leikstjóri: Lárus Pálsson. Eitt þeirra þriggja leikrita, sem Þjóðleik- húsið tók til sýningar, er það hóf starfsemi sína, var íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness. Hin voru, sem kunnugt er, Nýárs- nóttin eftir Indriða Einarsson og Fjalla-Ey- indur Jóhanns Sigurjónssonar. Af leikritum þessum vakti íslandsklukkan mesta athygli og eftirvæntingu sem við var að búast, því að það var nýtt af nálinni og höfundur þess eitt víðfrægasta og mikilvirkasta skáld þjóð- arinnar fyrr og síðar. Aðsókn að leiknum varð líka mjög mikil, því það var sýnt 24 sinnum á þeim tæpum tveimur og hálfum mánuði, sem leikhúsið starfaði þessu sinni. íslandsklukkan er samin upp úr sagnabálki skáldsins um Jón Hreggviðsson, er út kom í þremur bindum á árunum 1943—46. Er það mikið verk og glæsilegt, þó að ekki verði það talið með allra fremstu ritverkum höfundar- ins. Ritið var þegar mikið keypt og lesið og hlut að verðleikum mikið lof, enda verður ekki um það deilt, að Kiljan hefur yfir að ráða frábærri tækni og stílsnilld og er gædd- ur mikilli skáldgáfu, þó að mönnum finnist í sýslumanninum og Anna Guðmundsdóttir og Edda Kvaran voru sunnudagsbúnar vinnu- konur. Frá því sjónarhveli, sem hér hefur verið haft, leynir sér ekki, þrátt fyrir nokkur af- vik í einstaka atriði, að íslenzkt leiksvið á nú arfgengar leikvenjur (tradition) í a. m. k. einu leikriti. Þetta er vissulega að þakka leik- stjóranum, Haraldi Björnssyni, sem staðizt hefur skírslburðinn. Annað mál er svo það, hvort gagngerð texta-endurskoðun sé ekki tímabær, hvað Fjalla-Eyvind snertir, og þá um leið tilreynandi að líta einu sinni á gang málanna frá sjónarhveli Kára, karlmannsins í leiknum. L. S. Jón Hreggviðsson (Brynjólfur Jóhannesson). á stundum, að þeir þurf að vaða aurinn full djúpt til þess að handsama perlurnar í skáld- skap hans. íslandsklukkan er að mörgu leyti gott verk, en á því eru þó mjög augljósir og veigamiklir gallar. Samtölin eru oft fjörmikil og leiftr- andi og höfundinum hefur tekizt undravel að setja á leikritið svipmót þeirra tíma, sem það gerist á, bæði um málfar persónanna, háttu þeirra og hugarfar. En verkið er flaust- urslega unnið. Höfundurinn hefur reynt að koma fyrir í leikritinu sem mestu af hinu yfirgripsmikla efni sögunnar, en ekki tekizt það svo vel fari. Atburðarás leikritsins er slitrótt og hin fjölmörgu atriði þess ekki í eðlilegum tengslum hvert við annað. Leik- ritið vantar því heildarsvip og það er um of háð stuðningi sögunnar. — Af því sem nú hefur verið sagt, er það ljóst að hér er ekki um leikrit að ræða, er lúti venjulegum dramatiskum lögmálum, heldur ótal svip- myndir, er höfundurinn bregður upp fyrir áhorfandanum, líkt og kvikmyndum á tjaldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Leikhúsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.