Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 27

Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 27
Leikhúsmál 27 íslandsklukkan: Inni í Bæðratungu. Gestur Pálsson sam Magnús. — Herdís Þorvaldsdóttir sem Snæfríður. og flestar eru myndir þessar svo stuttar og bregður svo fljótt fyrir, að ég gæti trúað að ýmis atriði leikritsins fari fyrir ofan garð og neðan hjá þeim, sem sjá það og ekki hafa áður kynnt sér efni sögunnar. Og þó er það einmitt þessi hraði í leik og sviðskiptingu, sem heldur leikritinu saman. Án hans mundi það vissulega falla í mola. Efni leikritsins verður ekki rakið hér, enda ekki rúm til þess. Höfundurinn leiðir okkur í aldir aftur, til hinna verstu niðurlægingar- tíma í lífi íslenzku þjóðarinnar, er böðulsvald Bessastaðaherranna stóð í algleymingi og refsidómar, limlestingar og líflát vofðu yfir hverjum manni í landi hér fyrir litlar sakir eða engar. Þó er það ekki hin hatramma ádeila höfundarins á hina dönsku valdhafa, sem athyglisverðust er í leikriti þessu, heldur miklu fremur hin þungu varnaðarorð hans, er hann lýsir því hversu fara mundi fyrir varnarlausri smáþjóð, ef hún játaðist undir tröllsvernd erlends stórveldis og gerðist lepp- þjóð þess. Er sú hugvekja höfundarins vissu- lega tímabær eins og nú horfir í heiminum og ætti að vera því áhrifaríkari sem vitað er að hann er ef til vill kunnugri þessum mál- um en margur annar. Lárus Pálsson setti leikritið á svið og ann- aðist leikstjórnina. Hefur það án efa verið erfitt verk og vandasamt og gert hinar ítr- ustu kröfur til leikstjórans. En Lárus leysti það afbragðsvel af hendi, með hugkvæmni og dirfsku kunnáttumannsins og öruggum, listrænum skilningi á viðfangsefninu. Hefur Lárus átt hvað mestan þátt í því hversu góðu gengi leikritið hefur átt að fagna meðal leikhúsgesta og má með réttu segja að hann hafi unnið þar giæsilegan sigur sem leikstjóri. Þó ber að geta þess, að sá sigur hefði ekki verið unninn nema fyrir gott samstarf leik- stjórans við leiksviðsstjórann Yngva Thor- kelsson, leiktjaldamálarann, Lárus Ingólfsson

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.