Leikhúsmál - 01.06.1950, Síða 29
Leikhúsmál
29
V.
íslandsklukkan. Bókasafn Arnæusar i Kaupmannahöfn. Frá vinstri: Jón Hreggviðsson (Br. Jóh.). Metta
(Regína Þórðard.) Arnæus (Þorst. Ö. Stephensen).
henni veigamikil hlutverk. Rödd hennar er
einkar viðfeldin, framburðurinn skýr og
hreyfingar hennar og látbragð með ágætum.
Annað aðalhlutverkið, Jón Hreggviðsson,
lék Brynjólfur Jóhannesson. —. Jón Hregg-
viðsson minnir um margt á nafna sinn í
Gullna hliðinu, sem Brynjólfur lék á sínum
tíma af frábærri snilld. Ég var því hálf-
smeykur um að þessir tveir heiðursmenn
mundu verða nokkuð svipaðir í meðferð
Brynjólfs. Sú varð þó ekki raunin á. Brynj-
ólfur hafði komið auga á ættarmótið og séð
við hættunni. Jón Hreggviðsson varð í hönd-
um hans ný persóna, er skipar virðulegan
sess í hinu fjölbreytta safni Brynjólfs af slík-
um kjörgripum.
Þorsteinn Ö. Stephensen lék assessor Ar-
nas Arnæus, hinn tiginmannlega og hóg-
væra lærdómsmann. Hann er fremur bragð-
daufur frá hendi höfundarins og hefur Þor-
steinn ekki bætt úr því. En leikur Þorsteins
er öruggur og áferðargóður, og gervið gott.
Gestur Pálsson fór með hlutverk Magnúsar
í Bræðratungu, eiginmanns Snæfríðar. Magn-
ús er olnbogabarn höfundarins, er gerir hann
að slíku úrþvætti, að yfir tekur. Gestur fer
mildari höndum um Magnús, gerir hann
mannlegri en höfundurinn vill vera láta, og
fer vel á því. Annars er hlutverkið allvanda-
samt, og er leikur Gests yfirleitt mjög góður.
Dómkirkjuprestinn, séra Sigurð Sveinsson,
lék Jón Aðils. Er það allmikið hlutverk og
leysir Jón það vel af hendi.
Lárus Pálsson fór með tvö hlutverk í leikn-
um, — gamla manninn í byrjun fyrsta þáttar
og Jón Guðmundsson Grinvicensis aðstoðar-
mann Amæusar. Leysir hann bæði þessi hlut-
verk vel af hendi. Einkum er leikur hans í