Leikhúsmál - 01.06.1950, Qupperneq 30

Leikhúsmál - 01.06.1950, Qupperneq 30
30 Leikhúsmál Eydalín lögmaður (Valur Gíslason). hlutverki Jóns Grinvicensis afbragðsgóður. Gervi hans og látbragð er í hnitmiðuðu sam- ræmi við persónuna, þennan auðtrúa og hrekklausa gamla mann, sem er orðinn vis- inn og skorpinn eins og bókfellin í kringum hann. Heilsteypt mynd og leikur sem aldrei skeikar. Haraldur Björnsson lék Jón Marteinsson, „þann auma skálk“ og erkióvin Jóns Grinvi- censis. Er leikur Haralds í hlutverki þessu hinn prýðilegasti, bráðfjörugur og skemmti- legur og gervið ágætt. Frú Regína Þórðardóttir lék Mettu, konu Arnæusar. Er það vandasamt hlutverk, þótt ekki sé það mikið að vöxtum. Leysir frúin það ágætlega af hendi, með mikilli smekk- vísi og gætir þess réttilega, að stilla leiknum svo í hóf, að ekki halli um of á þessa konu. í'.sri icgye.' Valur Gíslason lék Edalin lögmann af góð- Snæfríður íslandssól (Herdís Þorvaldsdóttir). íílfi, *> inA um skilningi og með þeim höfðingsbrag, er sæmir slíkum valdsmanni. Önnur hlutyerk eru smá, og er þau öll vel af hendi leyst. Þrátt fyrir þá annmarka, sem eru á íslands- klukkunni frá hendi höfundarins, var sýn- ingin á henni mikill leiklistarviðburður, fyrst og fremst vegna þess hversu vel hún var sett á svið og einnig vegna hinnar miklu tækni, sem Þjóðleikhúsið á yfir að ráða. Hólmfríður Pálsdóttir. Þessi unga stúlka, sem er stúdent, og hef- ur lokið heimspekiprófi við háskólann hér, fyrir nokkrum árum, er nú komin heim eftir 4 ára leiknám. Fyrst í Skandinavíu, og nú síðast 3 ár í London, þar sem hún í sumar lauk leiklistarprófi með ágætum á Royal Academi of Dramatic, Arts.

x

Leikhúsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.