Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 31

Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 31
Leikhúsmál 31 Metta (Regína Þórðardóttir). Steinunn Bjarnadóttir lauk einnig í fyrra prófi við sama skóla í London. Hún hefur unnið við Þjóðleikhúsið í vetur, og leikið Mjöll í Nýársnóttinni, einnig hafði hún hlutverk í íslandsklukkunni, og tók við hlutverki Guðbjargar Þorbjarnardóttur, er hún byrjaði að leika Snæfríði eftir Her- dísi Þorvaldsdóttur. Baldvin Halldórsson lauk prófi í fyrravor við Royal Academy of Dramatic Arts í London. Hann hefur starfað hér við Þjóðleikhúsið í vetur, og meðal ann- ar.s leikið í íslandsklukkunni og Jón í Ný- ársnóttinni. Þorgrímur Einarsson hefur unnið í vetur við norska leikhúsið í Oslo, bæði sem nemandi og leikari. Allir hafa ... - i þessir leikarar verið í leikferðum í sumar hérlendis, eins og getið er um annars staðar í bláðinu. Haukur Óskarsson hefur stundað nám við leiklistarskóla í Salzburg í Austurríki, frá nýári s.l. Lagði hann og stund á söngnám, hjá hinum beztu kennurum. Hann er nú kominn heim fyrir nokkru, og hefur ferðazt um landið í sumar, og leikið með umferðaleikflokknum „Sumar- gestir“. Haukur er Reykvíkingum að góðu kunnur sem söngvari, og einnig eftir leik sinn og söng í Vermlendingunum hér fyrir nokkrum árum. Gunnar Eyjólfsson kom heim í vor frá Svíþjóð. Hafði hann verið við starf og nám í klg. dramatiska leik- húsinu í Stokkhólmi. Metta og Arnœus.

x

Leikhúsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1739

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.