Leikhúsmál - 01.06.1950, Side 40
40
Leikhúsmál
4
Á Þingvöllum 17. júní.
Frá vinstri: Guðl. Rósinkranz. Benna L. Brundin. Per Álbin Johannsson. Frú Görlin. Hjör-
dis Schymberg. A. Hilton. Vilhj. Þ. Gíslason.
Joel Berglund söng Figaró þrisvar. Hann
gerði hlutverkinu góð skil sem vænta mátti.
Tók við af honum ungur óperusöngvari Sven
Erik Jacobsson, hjá honum fylgdist að, leik-
andi æskufjör, heillandi söngur, ágætur leik-
ur og fallegt útlit, munu áhorfendur lengi
minnast hans.
Sigurd Björling var tignarlegur, karl-
mannlegur og þróttmikill í Almaviva greifa,
bæði í söng og leik, og Helga Görlin skilaði
hlutverki greifafrúarinnar með miklum glæsi-
leik. Minnisstæðastur verður manni söngur
hennar í þriðja þætti.
Sú pérsóna, sem vakti samt einna mesta
aðdáun var Benna Lemon-Brundin í hlut-
verki Cherubins. Æskufegurð, léttleiki,
glettni, dásamleg plastik og fagur söngur,
gerði þennan unga svein, sem frúin sýndi, að
einni hugðnæmustu persónu þessa fagra og
fræga söngleik Mozarts.
Hið unga, yndislega danspar, Maria Or-
lando og Gunnar Randin dönsuðu einn dans
í höll greifans í þriðja þætti, svo unun var
að. Þar gátu íslenzkir leikhúsgestir séð hvað
í raun og veru er listdans.
Göta Allard var bráðskemmtileg bæði í
söng og leik í hlutverki Marcellinu, og Folke
Jonsson hreif tilheyrendur með hinni fögru,
stórkostlegu bassarödd og ágætum leik. Gösta
Björling var mjög skemmtilegur sem söng-
kennarinn og Simon Edwardsen lék dómar-
ann af lifandi kýmni, Florence Widgren mun
hafa verið yngst af þessum listamönnum, og
ekki sungið þetta hlutverk áður, en óhætt er
að segja, að hún hafi unnið stóran sigur.
Bertil Alstergárd lék minnsta hlutverkið, en
gerði því góð skil. Söngvararnir, sem aðstoð-
uðu við sýninguna, voru allir úr kór kon-
unglega leikhússins í Stokkhólmi. Issay Do-
browen var leikstjóri sýningarinnar í Sví-