Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 56
56
Leikhúsmál
Hallgr. Valdimarsson:
Leikstarfsemi á Akureyri
Af því það er meðal annars tilgangur þessa
eina leiklistarblaðs, Leikhúsmála, er gefið er
út hér á íslandi, að fá sem gleggstar upplýs-
ingar um leikstarfsemi víðsvegar á landinu,
þá vil ég fara nokkrum orðum um það, sem
í þessum málum hefur gerzt hér á Akureyri
það sem af er leikárinu 1949—’50. í haust
sem leið, tók Leikfélag Akureyrar til sýn-
ingar leikritið „Kappar og vopn“ eftir Bern-
ard Shaw. Fékk félagið hinn unga og efni-
lega leikara, Einar Pálsson frá Reykjavík til
þess að hafa á hendi leikstjórn á þessum leik.
Taldi félagið það mikið happ að hafa fengið
hann til þessa starfs, reyndist Einar duglegur
og hugkvæmur leikstjóri. Sýningar á „Kapp-
ar og vopn“ urðu 9, sem voru að vísu sumar
fremur fásóttar af áhorfendum. Það virtist
svo sem mörgum þeirra geðjaðist ekki efni
leiksins að öllu leyti, en samt sem áður tókst
sýning hans vel, frá hlið leikstjóra og leik-
enda. Fylgir hér með hópmynd af leikend-
um, leikstjóra og nokkrum starfsmönnum.
Taldir frá vinstri:
Fremsta röð, sitjandi: Raina (Björg Bald-
vinsdóttir) Katrín Petkoff (Sigurjóna Jak-
obsdóttir) Louka, þjónustustúlka (Hólmfríð-
ur Hólmgeirsdóttir).
Aftari röð, standandi: Leikstjórinn, Einar
Pálsson, Sergius Saranoff (Baldur Hólm-
geirsson) Rússneskur foringi (Sigurður Krist-
jánsson) Friðrik Ketilsson, senumaður. Þor-.
móður Sveinsson, hvíslari. Signý Sigmunds-
dóttir, saumakona, Páll Petkoff höfuðsmaður
(Júlíus Oddsson, María Sigurðardóttir, hár-
greiðslukona, Guðjón Eymundsson, ljósamað-
ur, Nicola, þjónn (Hólmgeir Pálmason)
Bluntschli foringi (Guðmundur Gunnarsson).
Nokkru eftir að hætt var sýningum á
„Kappar og vopn“, var tekinn til meðferðar