Leikhúsmál - 01.06.1950, Page 57
Leikhúsmál
57
Ágúst Kvaran.
sjónleikurinn „Piltur og stúlka“ eftir Emil
Thoroddsen, saminn upp úr sögu Jóns Thor-
oddsen, samnefndri. Leikstjóri var Jón Norð-
fjörð. Er hann svo kunnur leikari og leik-
stjóri, að óþarfi er að kynna hér starfsemi
hans frekar. Leikurinn var mjög vel sóttur,
urðu alls 15 sýningar á honum, sem er meðal
því fjölsóttasta eftir því sem hér gerist. Yfir-
leitt tókst sýningin, eftir atvikum, vel. Fylgir
og hér með hópmynd af leikendum og að-
stoðarfólki. Talið frá vinstri:
Fremsta röð sitjandi: Indriði á Hóli (Sveinn
Kristjánsson) Barn úr forleiknum Sigríður
í Tungu (Bergrós Jóhannsdóttir) (þar næst
barn úr forleiknum) 1. vermaður (Tryggvi
Kristinsson).
Önnur röð, sitjandi: Gróa á Leiti (Sigur-
jóna Jakobsdóttir) Ingibjörg á Hóli (Jónína
Þorsteinsdóttir) Ingveldur í Tungu (Freyja
Antonsdóttir) Leikstjórinn, Jón Norðfjörð,
Maddama Ludvigsen (Sigríður Pálína Jóns-
dóttir) Stína (Matthildur Olgeirsdóttir).
Þriðja röð standandi: Rósa (Ingibjörg Sig-
urðardóttir) Guðrún (Matthildur Sveinsdótt-
ir) Stína (Sigríður Hermannsdóttir) Val-
gerður (Oddný Laxdal) Kristján (Hólmgeir
Pálmason. 2. vermaður (Vignir Guðmunds-
son) Séra Tómas (Halldór Jónsson) Sigurður
(Jón Kristinsson) Jón (Jón Ingimarsson) Guð-
mundur á Búrfelli (Benedikt Hermannsson)
Levi (Júlíus Ingimarsson) Bárður á Búrfelli
(Björn Sigmundsson) Þorsteinn matgoggur
(Elías Kristjánsson). Raðirnar þar fyrir aftan
eru af ýmsum starfsmönnum leiksins, nema
einn leikandinn Möller (Sigurður Kristjáns-
son) er annar maður í öftustu röð. Yzt til
hægri í næst öftustu röð er formaður L. A.
(Guðmundur Gunnarsson). Leiktjöldin í báða
leikina málaði Haukur Stefánsson.
Akureyri, 12. marz 1950.
Hallgr. Valdimarsson.
Síðasta leikrit L. A., á þessu leikári, var
„Uppstigning“ eftir Sigurð Nordal prófessor.
Leikstjóri var Ágúst Kvaran. Aðalhlutverkin
voru leikin af þessum leikurum: Sr. Helgi:
Guðm. Gunnarsson. Frú Herdís: Björg Bald-
vinsd. Jóhanna Einars: Matthildur Sveinsd.
Frk. Johnson: Margrét Steingrímsd. Frú
Skagalín: Jónína Þorsteinsd. Frú Davíðsen:
Sigr. Jónsdóttir. Dulla: Bergrós Jóhannsd.
Konsúllinn: Þórir Guðjónsson.
Eftir leikdómum Akureyrarblaðanna, virð-
ist einkar vel hafa verið til þessarar sýningar
vandað, og leikendur leyst hlutverk sín mjög
vel af hendi. Má segja, að L. A. hafi verið
allathafnasamt á þessu leikári, og er það vel
farið. —
iti
þjóðleÍkhúsið
í
Leikskóli Þjóðleikhússins
mun taka til starfa um miðjan október. —
Kennsla fer fram síðari hluta dags. Nemend-
ur skulu hafa lokið gagnfræðaprófi eða hlotið
einhverja hliðstæða menntun. — Inntökupróf
verður í framsögn og leikhæfni. Umsóknir
ásamt afriti af prófskírteini og meðmælum,
sendist Þjóðleikhússtjóra fyrir 20. sept. n.k.
Þjóðleikhússtjóri.