Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 12

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 12
JOEBOXER.IS | KRINGLAN 4-12 (1. HÆÐ) | 103 REYKJAVÍK | S. 5332009 Kínverski efnahagurinn hefur ekki séð jafn drjúgan vöxt í marga áratugi og atvinnu- leysi í landinu hefur aukist til muna. Hagfræðingar spá því að næstu mánuðir verði sérstaklega erfiðir á meðan þjóðin reynir að komast aftur í eðlilegt horf. helgisteinar@frettabladid.is KÍNA Atvinnuleysi í Kína hefur auk- ist í kjölfar harðra sóttvarnaaðgerða sem stjórnvöld framfylgdu síðast- liðna mánuði. Hagfræðingar spá því að efnahagur landsins muni ná sér á endanum en búast ekki við skjótum gróða á næstunni. Ástandið á vinnumarkaðnum er verst meðal farandverkamanna, það er að segja verkamanna sem hafa flust frá landsbyggðinni til stórborga í leit að verksmiðjuvinnu og öðrum þjónustustörfum. Í gegnum tíðina hefur þessi hópur verið eitt mikil- vægasta tannhjólið í kínverska efna- hagnum, en í nóvember voru rúm- lega sex prósent þeirra án vinnu. Atvinnuleysi á landsvísu hefur einnig hækkað upp í 5,7 prósent og hefur atvinnuleysi ekki verið það hátt síðan í maí síðastliðnum þegar öllu var skellt í lás í stórborginni Sjanghæ. Ef litið er á 31 stærstu borg landsins er atvinnuleysi komið upp í 6,7 prósent. Iðnaðarframleiðsla jókst aðeins um 2,2 prósent, sem er rúmlega helmingi minna en hún var í októ- ber. Fasteignamarkaðurinn dróst einnig saman um 9,8 prósent á fyrstu ellefu mánuðum ársins, en sá mark- aður sér fyrir rúmlega 30 prósentum af allri landsframleiðslu Kína. Stjórnvöld í Kína afléttu nýlega ströngustu sóttvarnareglum í land- inu í kjölfar mikillar mótmælaöldu um allt land síðustu vikur. Mikil reiði hefur verið á meðal Kínverja, sem margir hverjir voru sendir í einangr- unarbúðir eftir að upp komst um smit eða lentu í því að gæludýrum þeirra var lógað af heilbrigðisstarfs- fólki. Hagvöxtur í Kína hefur ekki verið svona drjúgur síðan Mao Zedong lést árið 1976 og byrjað var að opna hagkerfi landsins. Hagfræðingar spá því að vöxtur í Kína muni haldast í kringum 2,8 til 3,2 prósent á næstu mánuðum. Skyndileg ákvörðun stjórnvalda um afléttingar á sóttvarnareglum hefur valdið ákveðnu uppnámi í landinu og eru margir Kínverjar Kína glímir við mjög sársaukafulla enduropnun eftir sóttvarnaaðgerðir Atvinnuleysi í Kína er komið upp í 5,7 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA © GRAPHIC NEWSHeimildir: Bloomberg, CNN Mynd: Newscom 4 5 6 7 des 2021 jan 2022 feb mar apr maí jún júl ágú sept okt nóv 6,0% 6,7% Atvinnuleysi í Kína (%) Farandverkamenn 31 stærsta borgin Á landsvísu 5,7% Mars 2022: Atvinnulaus farandverkamaður sefur úti á götu í miðjum faraldri. Á meðan stjórnvöld í Kína a“étta sóttvarnaaðgerðum hefur atvinnuleysi í landinu stóraukist og þá sérstaklega á meðal farandverkamanna. Atvinnuleysi í Kína eykst hræddir um að smitast af Covid-19. Mikil truflun hefur verið í atvinnu- lífinu og er algengt að sjá auða veit- ingastaði og tómar verslunargötur. Verksmiðjur í landinu glíma einn- ig við skort á bæði starfsfólki og birgðum. Hagfræðingar japanska fjármála- risans Nomura telja að efnahags- ástandið hafi líklega verið helsta ástæða þess að kínversk stjórnvöld breyttu skyndilega um stefnu og afléttu sóttvarnareglum en benda á að næstu mánuðir verði afar erfiðir fyrir kínverska efnahaginn. „Við spáum því að það verði mikil útbreiðsla á Covid-smitum í kring- um kínverska nýárið í lok janúar þegar fólk byrjar að ferðast um landið og mun það hafa mikil áhrif á efnahagslífið. Við höldum áfram að vara fólk við því að enduropnun kín- verska hagkerfisins verði mjög erfið og sársaukafull.“ n helgisteinar@frettabladid.is PERÚ Að minnsta kosti fjórtán mót- mælendur hafa látið lífið í óeirðum í Perú. Stjórnvöld eru búin að lýsa yfir neyðarástandi í kjölfar mikilla mótmæla sem hófust eftir að Pedro Castillo, fyrrverandi forseti lands- ins, var handtekinn. Ríkisstjórn Perú kynnti neyðar- lög á miðvikudaginn og sagði að lögin myndu gilda í 30 daga. Perúski herinn hefur verið sendur á götur landsins og hafa stjórnvöld meðal annars bannað mótmæli og fjölda- samkomur. Mótmælin hafa sameinað marga ólíka hópa í landinu, þar á meðal verkalýðsfélög og frumbyggja úr Amazon-regnskóginum. Fólkið segist líta á nýjan forseta Perú, Dinu Boluarte, sem valdaræningja og hefur kallað eftir því að hún segi af sér og að Pedro Castillo verði komið aftur fyrir á valdastóli. Utanríkisráðherrann hefur einn- ig tilkynnt að sendiherrar Perú í Argentínu, Kólumbíu, Mexíkó og Venesúela verði kallaðir heim, þar sem ríkisstjórnir þessara ríkja hafa ekki viðurkennt Boluarte sem for- seta. Margir ferðamenn eru einnig strandaglópar við ferðamannastað- inn Machu Picchu. Eina leiðin inn og út af svæðinu er með lest sem hefur verið skemmd af mótmælendum og hafa embættismenn meðal annars beðið um þyrlur til að hjálpa við að flytja ferðamenn út af svæðinu. n Óeirðir halda áfram í Perú Mikil mótmæli hafa staðið yfir í Perú seinustu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Iðnaðarframleiðsla jókst aðeins um 2,2 prósent. Mótmælin hafa sam- einað marga ólíka hópa í landinu, þar á meðal verkalýðsfélög og frumbyggja úr Ama- zon-regnskóginum. 12 Fréttir 17. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.