Fréttablaðið - 17.12.2022, Blaðsíða 16
3Z hefur prófað blóð-
þrýstingslyf á sebra-
fiskum gegn ADHD.
Sebrafiskar, mammútsungi,
nanó-vélmenni og rörsýni
úr íslenskum stöðuvötnum.
Fréttablaðið leit yfir nokkra af
helstu viðburðum vísindanna
á árinu, bæði á erlendum og
innlendum vettvangi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
O k t ób e r Un nu r Þ or s t e i n s -
dóttir, framk væmdastjóri hjá
Íslenskri erfðagreiningu og forseti
Heilbrigðis vísindasviðs Háskóla
Íslands, var útnefnd áhrifamesta
vísindakona Evrópu og sú fimmta
áhrifamesta í heiminum, á lista sem
vefurinn Research.com tók saman.
Fram kemur á Research.com að til-
vitnanir í rannsóknir sem Unnur
hefur komið að séu hátt í 190 þús-
und og birtingar hennar rúmlega
460, á því tímabili sem liggur til
grundvallar listanum.
Unnur hefur hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir störf sín og fékk
meðal annars riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu fyrir framlag á
vettvangi erfðarannsókna og vís-
inda árið 2017.
Lesa náttúrusögu af vatnasýnum
Júlí Gagnasöfnun í einni stærstu
vatnarannsókn heims lauk hér
á Íslandi. Tekin voru sýni úr 52
stöðuvötnum sem verða greind til
að finna erfðaefni dýra og plantna
allt að 14 þúsund ár aftur í tímann.
Setlögunum er safnað í stór rör, frá
tveggja til tíu metra löngum.
Setlögin úr stöðuvötnunum
geta sagt okkur hvernig lílfríkið og
loftslagið var í fortíðinni. Wesley
Farnsworth, nýdoktor við Háskóla
Íslands og Kaupmannahafnar-
háskóla, leiðir rannsóknina. Hún er
unnin á vegum Rannsóknaseturs
Margrétar II. Danadrottningar og
Vigdísar Finnbogadóttur, um haf,
loftslag og samfélag, ROCS.
Sebrafiskar me ð ADHD
Nóvember Rannsókn vísinda-
manna sprotafyrirtækisins 3Z lofar
góðu hvað varðar lyfjagjöf fyrir
þá sem eru með ADHD. Hafa þeir
prófað stór lyfjasöfn á sebrafiskum
til að finna þau lyf sem henta best.
Í dag er metýlfenídat notað gegn
ADHD. Það er örvandi, hefur miklar
aukaverkanir og því fylgir hætta
á misnotkun. Auk þess virkar það
aðeins fyrir um 65 prósent sjúkl-
inga.
Helstu niðurstöður 3Z eru þær að
fjögur áður þekkt lyf og eitt nýtt lyf
gefi góða svörun gegn ADHD. Þessi
Stór stökk í vísindum á árinu
áður þekktu lyf eru í dag notuð
gegn of háum blóðþrýstingi. Þau
hafa verið lengi á markaði, hafa
litlar aukaverkanir og ekki er hætta
á misnoktun.
Greind barna tengist joðneyslu
Desember Ingibjörg Gunnars-
dóttir, prófessor í næringarfræði við
Háskóla Íslands, hefur rannsakað
neyslu landsmanna á joði.
Eitt þúsund barnshafandi konur
hafa tekið þátt í rannsókninni, þar
sem þvag- og blóðprufur hafa verið
teknar til að sýna næringarástand
þeirra, en einnig hefur verið fylgst
með þróun á þarma f lóru fjölda
barna þeirra kvenna sem þátt tóku
í rannsókninni.
Rannsóknarteymi Ingibjargar
hefur einkum horft til þess hvaða
næring hefur helst áhrif á heilsu
móður og barns og hvað skortur á
ákveðnum bætiefnum getur haft
í för með sér. Lítið joð hjá barns-
hafandi konum hefur verið tengt
við lakari frammistöðu barna á
greindarprófum. n
16 Fréttir 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðiðAnnáLL VísinDi Fréttablaðið 17. desember 2022 LAUGARDAGUR
Heimildir og myndir: Ríkisstjórn Yukon, Frumuatlas mannslíkamans, NASA, Northwestern-háskóli, People’s Daily
2022: Árið í vísindum
Júlí: NASA birtir fyrstu ljósmyndirnar frá
James Webb geimsjónaukanum, samstarfsverkefni
evrópsku og kanadísku geimferðastofnananna.
Þetta landslag glitrandi stjarna eru útmörk
svæðis þar sem ný stjarna er að myndast,
sem kallast NGC 3324 í Carina-stjörnuþokunni.
MYNDIR AF ÁÐUR ÓSÉÐUM HEIMI
ALZHEIMER – BYLTING Í LYFJAÞRÓUN
Nóvember: Nýtt tilraunalyf hægir á heilaskemmdum
hjá Alzheimer-sjúklingum, en Alzheimer er algengust
heilabilana.
ÍSALDARMAMMÚTUR
Júlí: Námuverkamenn á Yukon-svæðinu í norðvesturhluta
Kanada nna frosinn mammútsunga í sífreranum.
Lecanemab er mótefni
sem ræðst á prótein sem
kallast beta-mýlildi sem
byggist upp á milli tauga-
frumna í heilanum.
Taugafruma
Mýlildi
(amyloid)
Jarðfræðingar við
Calgary-háskóla
hafa greint dýrið
sem kvenkyns
og meira en
30 þúsund ára
gamalt, með
fullkomlega
varðveittar
táneglur, húð,
rana og hár.
September: Kínverskir vísindamenn tilkynna uppgötvun
steinefnisins changesít-(Y) en það nnst í tunglgrjóti
sem inniheldur helíum-3. Talið er að nýta megi efnið
í orkuframleiðslu.
Maí: Verkfræðingar við Northwestern-háskólann í Chicago
sýna minnsta vélmenni heims sem getur gengið,
aðeins 0,5 millimetrar að breidd og lítur út eins og krabbi.
Rannsóknir verkfræðinganna
færa þjarkavísindin skrenu
nær því að að gera örþjarka
færa um að leysa verkefni í
þröngum aðstæðum.
Örþjarkar gætu gert viðgerðir
á smávélum eða verið til
aðstoðar við skurðaðgerðir,
svo sem í að hreinsa stí£aðar
kransæðar eða ¤arlægja
krabbameinsæxli.
Aðeins 100 tonn af
helíum-3 samsætunni gætu
knúið heiminn í heilt ár.
Deutríum
Róteind Nieind
Helíum-3
Venjulegt helíum
Orka
Róteind
HELÍUM-3 UNNIÐ ÚR TUNGLINU MINNSTA VÉLMENNI HEIMS
September: Prófun DART, kers þróaðs af NASA til að
ýta smástirnum og lo¦steinum af braut til Jarðar, tekst.
DART er fyrsta eiginlega geimvarnarker Jarðar.
DART keyrir inn í 160 metra breiða
smástirnið Didymos í um 11 milljón
kílómetra ¤arlægð frá Jörðinni. Flaugin
klessir á Didymos á 22.530 kílómetra
hraða á klukkustund og ýtir
smástirninu af braut sinni.
VARNIR JARÐAR
Maí: Yr 2.300 rannsakendur í 83 löndum búa til atlas yr
frumur mannsins. Staðsetning rúmlega einnar milljónar
frumna er kortlögð í 33 líªærum.
GRÍÐARMIKLAR UPPLÝSINGAR Í LÍFVÍSINDUM
Takmark atlassins er að kortleggja allar frumutegundir
í mannslíkamanum til að stóre£a þekkingu á mannlegri
heilsu og sjúkdómum.
© GRAPHIC NEWS
FRUMU-
ATLAS
MANNS-
LÍKAMANS
Haraldur
Þorsteinsson,
einn af stofn-
endum 3Z
Ingibjörg
Gunnarsdóttir,
prófessor í
næringarfræði
við HÍ
Wesley
Farnsworth,
nýdoktor við HÍ
og Kaupmanna-
hafnarháskóla
Unnur Þor-
steinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri hjá
Íslenskri
erfðagreiningu,
var útnefnd sú
áhrifamesta í
Evrópu.
Mynd/Jón
gústafsson