Fréttablaðið - 17.12.2022, Side 26
Svo varð þetta bara
risastórt, sprakk alveg.
Benedikt Freyr Jónsson
Öll stærstu
sjávarút-
vegsfyrir-
tæki lands-
ins gera
upp í
erlendri
mynt.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
BIRNADROFN@FRETTABLADID.IS
Í viðtali í Markaðnum á Hringbraut
í vikunni lýsti Þórunn Reynisdóttir,
forstjóri Úrvals-Útsýnar, því hvernig
það væri eins og rússnesk rúlletta
að reka fyrirtæki í ferðaþjónustu í
krónuhagkerfinu.
Áætlanagerð hér á landi til lengri
tíma en nokkurra daga er ágiskun
ein vegna þess að enginn veit hvert
gengi krónunnar verður eftir mánuð,
hvað þá eftir hálft eða heilt ár.
Í vikunni kom fram að um 250
íslensk fyrirtæki hafa fengið undan-
þágu til að færa bókhald og gera
upp í öðrum gjaldmiðli en íslensku
krónunni. Flest stærstu fyrirtæki
landsins, líka ríkisfyrirtæki, gera upp
í erlendum gjaldmiðlum. Öll stærstu
sjávarútvegsfyrirtæki landsins gera
upp í erlendri mynt.
Þessi fyrirtæki eru komin út
úr krónuhagkerfinu og búa til að
mynda við allt önnur vaxtakjör en
litlum fyrirtækjum og almenningi í
landinu standa til boða.
Kostnaður þjóðarbúsins vegna
notkunar íslensku krónunnar er
talinn nema um 300 milljörðum
króna á ári. Þessi kostnaður kemur
til af ýmsu. Mikið af honum er vegna
kostnaðar við að skipta krónum í
gjaldeyri og gjaldeyri í krónur vegna
utanríkisviðskipta. Þetta er bæði
beint tap þjóðarbúsins og tilflutn-
ingur á fjármagni frá almenningi og
fyrirtækjum til fjármálastofnana.
Krónan lokar okkur út úr við-
skiptasamfélagi heimsins, er helsta,
jafnvel eina, ástæða þess að erlendir
bankar og tryggingafélög starfa ekki
hér á landi. Of mikil áhætta er falin
í krónunni.
Þetta leiðir til þess að íslenskir
bankar og tryggingafélög njóta
verndar til að okra á viðskiptavin-
Íslenska krónan verndar okur hér á landi
um sínum. Ofurhagnaður banka og
tryggingafélaga stafar af þeirri vernd
sem krónan veitir þeim frá alþjóð-
legri samkeppni. Þetta er á kostnað
lífskjara hér á landi.
Krónan er ástæða þess að íslensk
fyrirtæki eru ekki samkeppnishæf á
alþjóðamarkaði. Krónan er ástæða
þess að miklu dýrara er að versla í
matinn á Íslandi en annars staðar á
byggðu bóli.
Krónan er þjóðarböl – þjóðar-
böl sem gagnast óheilbrigðu fjár-
málakerfi og fjármagnseigendum á
kostnað heildarinnar. n
Hin aldræmdu partíkvöld
Pabbahelgar snúa aftur í
kvöld. Benni B-Ruff og Gísli
Galdur lofa góðri stemning-
um á Sunset.
birnadrofn@frettabladid.is
Þetta verður geggjuð stemn-
ing,“ segir plötusnúðurinn
Benedikt Freyr Jónsson,
betur þekktur sem Benni
B-Ruff. Hann og Gísli
Galdur Þorgeirsson endurvekja í
kvöld hina alræmdu Pabbahelgi
sem þekkt var sem svakalegt partí-
kvöld fyrir rúmum áratug.
„Ég og Gísli Galdur kynntumst
þegar ég var sextán ára og hann
fimmtán ára. Hann spurði hvort
hann mætti taka eina syrpu á DJ-
græjunum mínum og ég sagði já.
Komst að því strax þá að hann væri
frábær og við höfum verið vinir
síðan og spilað mikið saman,“ segir
Benni en Gísli Galdur er einnig
plötusnúður.
„Svo eignuðumst við báðir börn
árið 2009, hann stelpu og ég strák.
Við héldum áfram að spila í orlofinu
og úr varð konseptið Pabbahelgar,“
segir Benni.
Þeir Gísli Galdur héldu Pabba-
helgar á Kaffibarnum í Bergstaða-
stræti einu sinni í mánuði. „Svo varð
þetta bara risastórt, sprakk alveg,“
segir Benni.
„Það varð alltaf biðröð á Kaffi-
barinn alveg lengst niður á Laugaveg
Loksins aftur pabbahelgi
Gísli Galdur og Benni B-Ruff með börnin árið 2010 þegar Pabbahelgar voru haldnar einu sinni iímánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Benni hefur
unnið sem
plötusnúður í
áraraðir, hér er
hann við græj-
urnar árið 2015.
og færri komust að en vildu, og þeir
sem komust inn fóru ekkert út, þau
voru bara þangað til við lokuðum.
Þetta var bara brjáluð stemning í
fjóra til fimm tíma,“ segir hann.
Í kvöld verður Pabbahelgi á
Sunset á Edition-hótelinu. Benni
segist búast við fjölmörgum gestum
og lofar trylltri stemningu. „Við
búumst við mjög fjölbreyttum
hópi en við höfum líka heyrt af
mörgum sem voru á Pabbahelgum
á Kaffibarnum sem ætla að koma
núna. Þetta var þéttur og ótrúlega
skemmtilegur hópur svo það verður
geggjað. Svo fá hundrað fyrstu frían
drykk,“ segir Benni hlæjandi.
„Við byrjum klukkan ellefu og
lokum klukkan þrjú og hvetjum
bara sem flesta til að mæta af því við
vitum ekkert hvenær næsta Pabba-
helgi verður,“ segir hann. n
Katrín Ólafsdóttir ræðir um rannsóknir sínar
á ofbeldi í þessu tölublaði en Katrín hefur
rannsakað hvernig og hvers vegna ofbeldi
þrífst í samfélaginu. Það gerir hún meðal
annars með því að ræða við gerendur.
Hún segir nauðsynlegt að fjölga úrræðum fyrir
gerendur og að mikilvægt sé að úrræðin séu fjölbreytt.
Samtalsmeðferð geti hjálpað gerendum og jafnvel
spornað við því að þeir brjóti af sér aftur. Slík meðferð
taki mörg ár og hún sé erfið en hún virki.
Þá segir hún að með því að breyta áherslum í
menntakerfinu sé hægt að draga úr ofbeldishegðun.
Til þurfi samstillt átak þar sem menntun kennara,
námskrá og námsgögn eru meðal þess sem er skoðað
og breytt.
Þetta eru gleðifréttir í mín eyru. Að það sé í
alvörunni hægt að minnka ofbeldishegðun í sam-
félaginu og hjálpa þeim sem beitt hafa aðra ofbeldi að
gera það ekki aftur. Það hlýtur að vera markmiðið sem
við vinnum að.
Katrín er doktor í menntavísindum, hún lagði stund
á gagnrýnin fræði. Hún lagði stund á það í æðstu
menntastofnun landsins hvernig horfa skuli á alla
þætti samfélagsins gagnrýnum augum. Hún leggur til
leiðir til að draga úr ofbeldishegðun, ég legg til að við
hlustum á hana. n
Legg til að við hlustum
Það eru
gleðifréttir í
mín eyru.
Að það sé í
alvörunni
hægt að
minnka
ofbeldis-
hegðun í
samfélag-
inu.
Við mælum með
Samloku á Kaffibrennslunni
Kaffibrennslan á horni Laugavegs
og Klapparstígs er fyrir löngu orðin
flestum Reykvíkingum kunn. Þar er
gott að setjast niður með kaffibolla
og spjalla, en það sem kannski ekki
allir vita er að þar eru á matseðli
geggjaðar samlokur. Við mælum
sérstak lega með Spicy Túna,
Kjúllaloku og Veganlokunni. Ekki
skemmir fyrir á hversu góðu verði
samlokurnar eru.
Ali Baba shawarma
Shawarma á Ali Baba er ótrúlega
góð máltíð bæði í hádeginu og
á kvöldin en á Ali Baba er boðið
upp á arabískan mat. Á kjúklinga-
vefjunni er kál, kjúklingur, laukur
og Ali Baba sósa og mælum við sér-
staklega með henni. Einnig mælum
við með Falafel shawarma sem er
einstaklega bragðgóð og vegan. n
26 Helgin 17. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 17. desember 2022 LAUGARDAGUR