Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 38
Jólin eru
hátíð
barnanna
og jólatréð
okkar er
fullt af alls
konar
dýrum og
fuglum.
Svana Lovísa á ótrúlega fallegt heimili i Hafnarfirði. Hún skreytir afar fallega með fjölbreyttu skrauti og leggur skemmtilega á jólaborðið. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Svana er með mikið af fuglum úr ýmsum áttum á jólatrénu sínu.Græni kransinn sem Bjartur föndraði.
Svana notar sælgætisjólastafi sem skraut á jólaborðið.
Hönnuðurinn og bloggarinn
Svana Lovísa Kristjánsdóttir
er mikill fagurkeri og jóla-
barn. Hún byrjar snemma að
skreyta með jólaskrauti sem
hún hefur sankað að sér úr
ýmsum áttum.
Svana Lovísa Kristjánsdóttir,
hönnuður og bloggari, er
mikið jólabarn og byrjar
snemma að skreyta fallegt
heimili sitt í Hafnarfirði. „Ég
heillast mikið af litríku, persónu-
legu og skemmtilegu jólaskrauti,“
segir Svana.
„Jólin eru hátíð barnanna og
jólatréð okkar er fullt af alls konar
dýrum og fuglum og þar hangir
mikið af skrauti sem Bjartur sonur
minn hefur búið til, ég elska að setja
það á tréð,“ segir Svana, sem á tvö
börn með eiginmanni sínum, Bjart
Elías, átta ára og Birtu Katrínu,
tveggja ára.
„Það er notaleg fjölskyldustund
þegar við skreytum tréð og þau fá
að raða skrautinu á, ég endurraðaði
reyndar aðeins skrautinu eftir Birtu
litlu, það hékk allt á neðstu grein-
unum,“ segir Svana.
Spurð að því hvað sé hennar
u pp á h a ld s jól a sk r aut
nefnir Svana tvennt.
„Grænn k rans úr
h r í s g r jónu m o g
glimmeri sem Bjart-
ur bjó til er í algjöru
uppáhaldi,“ segir
hún.
„Svo er ég með
óvanalega mikið
af fuglum á jóla-
trénu og það er
eitthvað sem var
alltaf hjá ömmu, ég
fékk nokkra af hennar
fuglum sem eru orðnir
mjög sjú skaðir og
gamlir og þannig var
það líka hjá henni.
Ég elska það og
f innst það svo
skemmtilegt,“ segir Svana.
Heillast af litríku jólaskrauti
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Fallegt jólaborð
Svana lagði fallega á borð áður
en ljósmyndara Fréttablaðsins
bar að garði, hún notar til dæmis
sælgætis jólastafi sem skreytingar.
„Ég, systir mín, foreldrar mínir
og fjölskyldur höfum alltaf verið
saman og skipst á að vera hjá hvert
öðru,“ segir hún. „Núna eigum við
eftir að ákveða hvort við verðum
hjá mér eða systur minni, en ég var
búin að segja við hana að sú vinnur
sem er með meira jólaskraut, við
verðum þar sem verður jólalegra
á aðfangadag,“ bætir Svana kímin
við. n
Svana,
Bjartur Elías og
Birta Katrín.
38 Helgin 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið