Fréttablaðið - 17.12.2022, Síða 46
Hafnartorg Gallery er nýr
og glæsilegur áfangastaður
í miðbæ Reykjavíkur. Um
er að ræða einstakt fjöl-
nota upplifunarrými sem
er helgað mat, verslun og
menningu.
jme@frettabladid.is
Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir er
rekstrarstjóri Hafnartorgs Gallery.
„Mestan hluta míns starfsferils hef
ég unnið í veitingageiranum en
það er eitthvað við hasarinn í þeim
bransa sem á vel við mig,“ segir Ást-
hildur, sem er með MA í mannauðs-
stjórnun og BA í mannfræði. „Ég
vann á Hananum nokkurn veginn
frá því hann opnaði og fékk að
taka þátt í mótun verkferla í rekstri
staðarins. Einnig starfaði ég sem
veitingastjóri á Roadhouse.
Ég hef öðlast dýrmæta reynslu
sem hefur nýst vel frá því ég tók
við rekstrarstjórastöðu Hafnar-
torgs Gallery í mars á þessu ári.
Þetta hefur verið skemmtilegur og
lærdómsríkur tími á meðan fram-
kvæmdir voru í gangi og veitinga-
staðir voru í hönnunarferli. Það
koma margir að svona verkefni
og ýmislegt þarf að gerast áður en
formlegur rekstur fer í gang. Mun
fleira en flestum hefði dottið í hug,“
segir Ásthildur.
Matur, menning, verslun
Í Hafnartorgi Gallery má finna
breitt úrval verslana með alþjóðleg
vörumerki, vandaða hönnun,
munað og nytjahluti. Meðal annars
eru þar Casa Boutique, 66°Norður
og The North Face. „Hér gefst tæki-
færi til að njóta lífsins frá morgni
til kvölds við hvaða tilefni sem er.
Hingað er tilvalið að kíkja í hádegis-
mat á bæjarröltinu, í snarl eða
drykk áður en haldið er út á lífið
eða á tónleika á tónleikastöðum
miðbæjarins.“
Sex veitingabásar deila glæsilegu
veitingasvæði í kjarna Hafnartorgs
Gallery. Black Dragon, Brand vín
og grill, Fuego, Neó og La Trattoria.
Í jaðri Hafnartorgs Gallery er svo
veitingastaðurinn Akur þar sem
frönsk-norræn stemning með árs-
tíðabundnum afurðum fær að njóta
sín við bryggjuna.“
Veitingasvæðið, sem er eitt glæsi-
legasta veitingarými landsins og
veitingastaðirnir, eru hannaðir af
Basalt arkitektum. „Hér er mikið
lagt upp úr gæðum svo að gestir
njóti sín sem allra best. Sætin eru
þægileg, rýmið er fallega upplýst,
hljóðvistin er góð og öflug loftræst-
ing kemur í veg fyrir að salurinn
fyllist af matarlykt og brælu. Hér er
vandlega hugsað út í allra smæstu
smáatriði sem gleymast gjarnan við
opnun nýrra staða.“
Veitingasalurinn er listarými
með níu stafrænum skjáum þar
sem verkum ákveðins listamanns
er varpað hverju sinni. „Skjáirnir
virka eins og gluggar og skapa ein-
staklega notalega og skemmtilega
stemningu fyrir gesti og gangandi.“
Sérstakt svæði í salnum er svo til-
einkað viðburðahaldi. „Við höfum
nú þegar haldið nokkra vel heppn-
aða viðburði og má sérstaklega
nefna fría tónleika með Bríeti og
Högna um daginn. Andrúmsloftið
var vægast sagt magnað. Desember
hefur verið viðburðaríkur og í dag
snúa Aðventukransarnir plötum og
spila jólalög. Svo verða jólasveinar á
vappi um Hafnartorgið.
Eitthvað við allra hæfi
Hver veitingastaður og verslun í
kjarnanum hefur sína sérstöðu og
sjarma og voru sérvaldir úr hópi
umsækjenda. „Við lögðum mikið
upp úr gæðum í vali á rekstrarað-
ilum. Hér er enginn sem við höfum
ekki fulla trú á og gerum miklar
væntingar til. Þetta eru ólíkir aðilar
sem hafa gríðarlegan metnað og
hafa sannað að þeir viti hvað þeir
eru að gera. Verslun og matur er
af afar fjölbreyttum toga, allt frá
götubita upp í fínni veitingar. Sama
gildir um verslanir Hafnartorgs.
Það er því óhætt að segja að öll
ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi í mat og drykk, sem og
verslun, á Hafnartorgi.“
Lúxus staðsetning
Hafnartorg Gallery er staðsett
fyrir ofan bílastæðakjallarann
sem gerir til að mynda tónleika-
ferð í Hörpu einstaklega þægilega
þegar vindar blása. „Bílnum er lagt
í kjallaranum og lyftan tekin upp
í Hafnartorg Gallery. Eftir að fólk
hefur gætt sér þar á girnilegum
veitingum er svo hægt að ganga
yfir í Hörpu í gegnum bílastæða-
kjallarann. Þetta er alger lúxus
þegar kalt og blautt er úti, en það
er í raun sama í hvaða erinda-
gjörðum fólk er í miðbænum, við
erum alltaf vel staðsett,“ segir
Ásthildur.
„Við lögðum upp úr því að gera
þetta að upplifunarrými sem fólk á
öllum aldri gæti heimsótt og notið
sín. Aðgengi er frábært og inn-
gangar eru á öllum hliðum hússins.
Þetta er því ekki síður vinsæll
áfangastaður fyrir hjólastólanot-
endur og fólk með barnavagna.
Hér er nóg pláss og feikinóg af bíla-
stæðum. Viðtökurnar hafa vægast
sagt farið fram úr björtustu vonum
og ég hvet þau sem ekki hafa heim-
sótt okkur enn eindregið til þess
að skella sér í Hafnartorg Gallery
og upplifa þennan nýja áfangastað
höfuðborgarinnar. Við hlökkum
til að sjá ykkur,“ segir Ásthildur að
lokum. n
Hittu miðborgina beint í hjartastað
Ásthildur segir veitingarýmin vel hönnuð og að hugsað hafi verið út í smæstu
smáatriði til að gera þau eins og best verður á kosið. Fréttablaðið/Valli
ACNE STUDIOS
DIEMME
FILIPPA K
AXEL ARIGATO
HELMUT LANG
PAUL SMITH
ROYAL REPUBLIQ
C.P. COMPANY
SAMSØE SAMSØE
TIGER OF SWEDEN
FLOTT HERRA MERKI
ÞÚ FÆRÐ FILIPPA K
HERRAFATNAÐ
HJÁ OKKUR
HAFNARTORG
Þú finnur
jólagjöfina
hjá okkur
6 kynningarblað 17. desember 2022 LAUGARDAGURHafnartorg