Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 70
Við
vildum að
til yrði
svæði þar
sem fólk
myndi
sækja í
gæðavöru
og þjón-
ustu.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Hafnartorgssvæðið er
nýtt og nútímalegt borgar-
hverfi sem nær alveg frá
Lækjartorgi og að Hörpu. Á
svæðinu er blandað saman
íbúðarhúsnæði, skrifstofum,
hótelum, glæsilegum versl-
unum og gæðaþjónustu
ásamt menningartengdri
starfsemi.
Reginn fasteignafélag er eigandi
verslunar- og þjónustuhúsnæðis
á Hafnartorgssvæðinu. Finnur
Bogi Hannesson, þróunarstjóri
Hafnartorgs, hefur unnið að þróun
svæðisins frá árinu 2017 og segir
að hvað Regin varði megi skipta
verkefninu í þrennt.
„Fyrsti áfanginn hófst með
opnun H&M og H&M Home á
haustmánuðum 2018, en síðan þá
hefur rekstraraðilum á svæðinu
fjölgað nokkuð jafnt og þétt. Í
þessum fyrsta áfanga hefur sér-
stök áhersla verið lögð á glæsilegt
framboð af alþjóðlegri tískuvöru
í bland við vinsæla afþreyingu,
bæði meðal Íslendinga og erlendra
gesta. Rekstraraðilar á þessu svæði
eru nú þegar orðnir 13 talsins,“
segir hann.
„Auk H&M verslananna opnuðu,
í þessum fyrsta áfanga, tískuvöru-
verslanir á borð við COS, Col-
lections, GK Reykjavik, Levi‘s og
Michelsen 1909 með Rolex vöru-
merkið í broddi fylkingar.“
Annar áfanginn í þróun
Hafnartorgssvæðisins var opnun
Hafnartorgs Gallery. Þegar það
var opnað bættust við 11 nýjar
rekstrareiningar við flóru verslana
og þjónustu á svæðinu.
„Það má segja að á árinu 2022
hafi orðið ákveðinn vendipunktur
á svæðinu með þessari opnun.
Húsnæðið hýsir glæsilegar lífsstíls-
verslanir og fjölmarga veitinga-
staði. Stuttu áður en Hafnartorg
Gallery var opnað, var fyrsta fimm
stjörnu hótelið á Íslandi opnað,
Reykjavík Edition, í næsta húsi.
Það má segja að þessum öðrum
áfanga muni svo ljúka með til-
færslu nýrra höfuðstöðva Lands-
bankans á svæðið ásamt utan-
ríkisráðuneytinu,“ upplýsir Finnur
Bogi.
„Þá verða ríflega 1.000 starfs-
menn starfandi á svæðinu svo það
verður mjög líflegt þar alla daga.
Þriðji og jafnframt síðasti áfang-
inn í þessu skemmtilega verkefni
eru eignir sem Reginn festi nýlega
kaup á við Hafnarstræti. Þar hafa
nú þegar nokkrir mjög öflugir
Eins og að vera í erlendri stórborg
Finnur Bogi Hannesson, þróunarstjóri Hafnartorgs, segir spennandi áfanga fram undan í þróun svæðisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Svæðið er blanda af íbúðum, verslunum, þjónustu og menningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nýja verslunarsvæðinu hefur verið vel tekið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
rekstraraðilar bæst við undir hatt
Hafnartorgs, meðal annars
Reykjavik Konsúlat hótelið, Lyfja
og BioEffect. Næst á dagskrá er svo
þróun og opnun á Hafnarstræti 18
sem er enduruppbygging á sögu-
frægu húsi sem mun tengja svæðið
skemmtilega við gamla miðbæinn
og Lækjartorg.“
Gæði í vörum og þjónustu
Grunnhugmyndin við þróun
svæðisins var, að sögn Finns
Boga, að velja inn rétta blöndu af
rekstraraðilum á svæðið. Rekstrar-
aðilum sem myndu styrkja svæðið
og miðborgina.
„Við vildum að til yrði svæði þar
sem fólk myndi sækja í gæðavörur
og þjónustu, en áherslurnar hafa
vissulega verið aðeins mismun-
andi eftir því hvar á svæðinu við
höfum verið. Eins og ég kom að
áðan var mikil áhersla á alþjóðleg
tískuvörumerki í fyrsta áfang-
anum, það hefur verið grunnstefið
okkar. En í öðrum áfanganum
hefur verið lögð meiri áhersla á
lífsstílsverslanir, til dæmis North
Face, 66°Norður og Casa, ásamt
því besta sem borgin hefur upp á
að bjóða í mat og drykk,“ útskýrir
hann.
„Eins og ég sagði áðan þá
markaði árið 2022 mikil tímamót
í þessu þróunarverkefni, en nú er
ljóst að árið 2023 verður ekki síður
spennandi. Við erum nú þegar
búin að skrifa undir samninga við
nýja og öfluga rekstraraðila sem
munu bætast við á næsta ári. Þar á
meðal er ný lúxusvöruverslun sem
kemur erlendis frá og mun eflaust
vekja mikla athygli. Sú verslun
mun bjóða upp á lúxusvörumerki
í fatnaði og fylgihlutum sem hafa
ekki áður fengist á Íslandi.“
Finnur Bogi segir að enn sé ekki
ákveðið hvaða starfsemi verði í
endurbyggingu hins sögufræga
húss á Hafnarstræti 18, en verið sé
að skoða möguleikana þar.
„Það verður klárlega starfsemi
sem styrkir svæðið. Við erum að
skoða að hafa hugsanlega ein-
hverjar hönnunarbúðir eða lífs-
stílsverslanir þar, sem passa við
svæðið. En það kemur betur í ljós
með vorinu,“ segir hann.
„Nú þegar er heildarfjöldi
rekstraraðila á svæðinu orðinn rétt
tæplega 30 talsins en það má gera
ráð fyrir að þeir verði á fimmta
tug á komandi árum með tilkomu
nýrra verslana við Hafnarstræti
og aukningu á þéttleika verslana.
Við fjárfestum í vörumerkinu og
leggjum mikla áherslu á að það
tengi svæðið vel saman og standi
fyrir gæði í verslun, veitingum og
menningu.“
Listir og menning í forgrunni
Tenging við menningu, listir og
hönnun hefur verið markviss
í þróun Hafnartorgssvæðisins.
Hafnartorg hefur til að mynda
verið einn af lykilsamstarfsaðilum
Hönnunarmars undanfarin ár.
„Þungamiðja hátíðarinnar
hefur farið fram hér á Hafnartorgi,
en við höfum auk þess sett upp
margar mjög flottar sýningar hér
á svæðinu í samvinnu við lista-
fólk. Fyrr í haust var frumflutt nýtt
margmiðlunarverk, Óratorinn,
eftir Högna Egilsson og Karlsson-
wilker og núna í desember eru til
dæmis tvær mjög flottar sýningar
á svæðinu. Annars vegar sýning
Sigurjóns Sighvatssonar kvik-
myndaframleiðanda, Becoming
Richard, en hann sýnir undir lista-
mannsnafninu COZY BOY. Hins
vegar er Elísabet Ásberg með nýja
listsýningu með fjölbreytt úrval
verka þar sem hún notast mikið
við silfurskúlptúra, sem eru glæsi-
legir,“ segir Finnur Bogi.
„Það hefur verið stefna okkar að
vinna með og styðja við menningu
og listir í miðborginni. Það hefur
verið einn af lyklunum í þess-
ari þróun að leyfa fólki að njóta
svæðisins í gegnum fjölbreytta
menningu.“
Finnur Bogi bætir við að aðgengi
á svæðinu sé einstaklega gott fyrir
mismunandi starfsemi, bæði fyrir
gangandi, hjólandi og bílaumferð.
„Svæðið hentar íslenskum
aðstæðum mjög vel, hvorki bíla-
stæði né veðrið eru hindrun
hér, enda er stærsti bílakjallari
landsins undir svæðinu, sem
nær alla leið frá Hafnarstræti og
undir Hörpu. Fólk getur keyrt inn
í bílakjallarann frá þremur mis-
munandi stöðum og gengið upp
á mörgum stöðum, meðal annars
með lyftum og rúllustigum, beint
upp á göngugöturnar og verslunar-
svæðin,“ segir hann.
Finnur Bogi segir að viðtökurnar
við þessu nýja svæði hafi verið
góðar, bæði hjá Íslendingum og
erlendu ferðafólki.
„Vissulega tekur allt tíma í svona
stóru þróunarverkefni. En fólk sem
hefur séð gæðin í vöru og þjónustu
hjá okkur hefur verið mjög ánægt
og svæðið hefur verið vel sótt. Fólk
er ánægt með að það séu komnar
svona stórar og flottar verslanir í
miðbæinn, með vörum sem ekki
hefur verið hægt að fá hérlendis
áður. Við höfum svolítið fundið
fyrir því að fólki finnst eins og
það sé í erlendum stórborgum
þegar það heimsækir svæðið,
vegna úrvalsins af verslunum
og þjónustuaðilum. Við finnum
líka aukinn meðbyr eftir opnun
Hafnartorgs Gallery og erum
spennt fyrir framhaldinu.“ n
14 kynningarblað 17. desember 2022 LAUGARDAGURHafnartorg