Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 83

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 83
Silja Bára og Bergur Ebbi ræddu um nokkur af helstu fréttamálum ársins. Fréttablaðið/ anton brink Á meðan Trump er áfram með þennan málflutning þá er hann ekki að fara að laða að sér jafn mikið fylgi. Silja Bára Ómarsdóttir það og dómurinn styrkir Demó- krata gríðarlega. Hann hristir út fólk sem myndi alltaf kjósa Repúblikana en trúir samt á rétt fólks til þess að ráða yfir eigin líkama. Á meðan að Trump er áfram með þennan málf lutning þá er hann ekki að fara að laða að sér jafnmikið fylgi og hefur ekki eins mikla vigt og áður. Að einhverju leyti þá er hann bara að fara að sprikla, en ég mun mögulega þurfa að éta þetta ofan í mig eftir eitt ár. Loftslagsváin Varðandi frekari óeiningu þá hafa verið mótmæli víðs vegar um heim- inn og sérstaklega í Íran. Þarna er verið að safnast í kringum píslar- vottinn Mahsa Amini. Silja: Það sem mér fannst áhuga- vert í því er hvernig líkamar eru not- aðir. Að það megi ekki sjást í hárið og annað og að þú þurfir að vera með þessa slæðu. Mahsa Amini verður einmitt að píslarvætti, en ef við horfum aðeins dýpra þá er hún ekki bara kona heldur líka Kúrdi. Þetta er flóknara. Það sem uppruna- lega snerist um líf og frelsi kvenna er orðið meira líf og frelsi almennt. Þetta er orðið lýðræðistengt. Svar klerkaveldisins er svo að taka út sið- gæðislögregluna. Með því er verið að svara kvennahliðinni, en þeir eru ekki að ná að svara því sem er orðið stóra lýðræðismálið. Mannfjöldi heimsins nær 8 millj- örðum í ár og við stefnum hröðum skrefum að því að hlýnun verði meiri en 1,5°C. Misstum við athyglina á loftslagsmálum þetta árið? Bergur: Ég held að á þessu ári hafi ákveðnum teningum verið kastað, sérstaklega vegna orkukrísunnar. Þetta getur leitt til mikillar þróunar til hins betra en það getur líka leitt til hins gagnstæða. Þetta þvingar okkur að ákveðnu leyti á Vesturlöndum, að Íslandi utanskildu, til þess að leita nýrra leiða við orkuöflun. Silja: Það sem mér finnst gerast á þessu ári er að það er gríðarleg með- vitund meðal ungs fólks og það er talað mikið um það. Það sem kom út úr COP27-ráðstefnunni er aðal- lega þessi viðbragðssjóður sem borga á fyrir skemmdir í fátækari löndum sem orðið hafa vegna lofts- lagsbreytinga. Ef við eigum að fá fátækari ríkin með í að draga úr losun þá þarf að veita þeim tækni til þess að sleppa ákveðnum þáttum sem ríkari lönd hafa farið í gegnum í sinni þróun. Það sem er þó að gerast og það sem ég óttast, er þetta bak- slag. Það er verið að tala um að opna aftur kjarnorkuver og það er til umræðu að nota kolaver í Bretlandi. Bergur: Til þess að reyna að horfa á eitthvað jákvætt þá er þetta árið þar sem fólk í Evrópu áttar sig á því hversu dýru verði orka er keypt. Það er sagt að við munum ekki byrja að berjast gegn hlýnun fyrr en við finn- um á eiginn skinni loftslagsbreyt- ingarnar sjálfar og það er byrjað að gerast að einhverju leyti. Það gæti verið upptaktur að einhverju stærra og meira, til þess að horfa aðeins á björtu hliðarnar. n Jólagjafir fyrir útivistarfólk Fornix MIPS kr. 29.490 Fovea Clarity frá kr. 29.490 Zonula Clarity frá kr. 32.990 Bakbrynjur fyrir börn og fullorðna frá kr. 16.490 Fjallaskíðabakpokar margar gerðir frá kr. 32.990 POCito barnahjálmar frá kr. 21.990 Obex MIPS kr. 29.490 Nexal Clarity frá kr. 34.490 POCito barnagleraugu frá kr. 11.490 Hjóla-/útivistargleraugu frá kr. 27.490 trollveggen Thermal Pro millilag dömu/herra kr. 28.990 falketind down750 dúnúlpa dömu/herra kr. 45.990 pureUll ullarnærföt dömu/herra margir litir frá kr. 14.990 lofoten/lyngen ullarsokkar margar gerðir/litir frá kr. 5.990 /29 ullarhúfur margir litir kr. 7.990 lyngen down850 dúnúlpa dömu/herra frá kr. 59.990 Peloton ehf • Klettagarðar 23 • www.peloton.is • 666-1199 Opið11-18 laugardag Helgin 47LAUGARDAGUR 17. desember 2022 Fréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.