Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 84
Goðavíg
& bleikir belg ir
Árið var ansi gott fyrir
alla sem elska sögu-
drifin ævintýri. Souls-
leikirnir svokölluðu
hafa á undanförnum
misserum unnið sér inn nafn sem
einhvers konar níðþung mann-
dómsvígsla og biðu aðdáendur í
ofvæni þegar þeir heyrðu að leti-
bikkjan George R.R. Martin myndi
taka þátt í gerð handritsins að Elden
Ring. Leikurinn hefur réttilega feng-
ið frábæra dóma þar sem skotheld
spilun og fallegur og áhugaverður
söguheimur tvinnast saman.
Ferðalag Kratos til Norðurlanda
í God of War frá 2018 var draumur í
dós fyrir ævintýrafólk þar sem mátti
sjá talsvert meiri metnað í persónu-
sköpun fýlda Spartverjans en áður.
Framhaldið God of War Ragnarök
uppfærði nánast allt það sem forveri
þess gerði gott – nema þá kannski
íslenskuna, sem er bjagaðri en 2010
Google Translate.
Drepsóttir hafa verið ansi heitar
á liðnum árum og í dag ætti fólk í
miðbæ Reykjavíkur að tengja all-
hressilega við systkinin í A Plague
Tale: Requiem, sem þurfa ekki
einungis að takast á við pláguna –
heldur rotturnar sem henni fylgja.
Það hefur svo lengi verið vöntun
á kattarhermum og svaraði Stray
þeirri eftirspurn glæsilega í staf-
rænni dystópíu þar sem hægt er að
reka upp gestaspjót í neón-lýstri
Blade Runner-borg. Mjá takk!
Skot á mark?
Hið svokallaða framhald af Over-
watch kom „loksins“ út nýlega og
voru viðtökurnar við Overwatch
2 vægast sagt blendnar. Blizzard
hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir
markaðssetningu leiksins, sem er
í grunninn nákvæmlega sami fjöl-
spilunarleikurinn, en nú er boðið
upp á samvinnudrifin borð. En samt
ekki strax. Þótt leikurinn sé ókeypis
ótengt forvera sínum eru valkvæðu
kaupin ekki jafn valkvæð og áður
og þykir mörgum peningaplokkið
komið út fyrir öll velsæmismörk.
Call of Duty: Warzone 2.0 brot-
lenti svo inn á Battle-Royale mark-
aðinn og virtust gagnrýnendur og
hinn almenni spilari ósammála um
gæðin þar að baki. Einhverjir vildu
meina að um ferska uppfærslu á
upprunalega leiknum væri að ræða
en aðrir að leikurinn væri stútfullur
af tæknilegum erfiðleikum og að
hjálpardekk þeirra sem nota fjar-
stýringu fram yfir mús og lyklaborð
væru ósanngjörn.
Hérna koma nokkrir belgir
Zelda-þyrst fólk þarf að bíða áfram
enn um sinn en Nintendo sat þó
Elden Ring skipar sér verðugan sess hjá mörgum sem leikur ársins 2022.
Í God of War Ragnarök gefst tækifæri á að hitta Grýlu.
Fánan í Pokémon Scarlet & Violet er kostuleg. Kynja
skepna sem er í laginu eins og bifhjól? Hvað nú, Darwin?Kirby er alltaf jafnkrúttlegur þrátt fyrir myrka undirtóna.
Gósentíðin í tölvuleikjum er svo taumlaus að það er ómögulegt
að gera grein fyrir heilu ári af leikjafréttum á einni síðu. Hér
verður þó gerð einhvers konar tilraun til þess með þeim fyrir-
vara að ekki kemst allt fyrir.
arnartomas@frettabladid.is
Kisu er eitthvað ómótt í framtíðar
dystópíunni Stray.
Shredder’s Revenge er afturhvarf í það sem sumir kalla
gullöldina.
ekki auðum höndum á árinu. Pen-
ingaprentun Game Freak náði
nýjum hæðum þegar fyrirtækið
gaf út tvo nýja stóra Pokémon-leiki
fyrir Switch á árinu. Í Pokémon
Legends Arceus var reynt að brjóta
aðeins upp formúluna með ágætum
árangri á meðan Scarlet og Violet
svöruðu eftirspurn íhaldssamra
sem vilja ekki að neitt breytist í
heimi vasaskrímslanna. Það er svo
spurning hvort það þurfi ekki að
fara að hægja aðeins á framleiðslu
miðað við að Pokémon-leikirnir
eru á köflum nánast óspilandi hvað
varðar tæknilegu hliðina.
Óseðjandi belgurinn Kirby sneri
aftur í stærsta leik um hann hingað
til – Kirby and the Forgotten Land.
Bleika krúttið hefur venjulega skilað
sínu og gerir það áfram í þessu nýja
hoppi & skoppi. Þótt yfirbragðið sé
krúttlegt þá er mannlaus borgin vís-
bending um fall siðmenningarinnar
og áminning um að við hverfum til
betri vegar, eða eitthvað.
Mario Strikers: Battle League er
svo nýjasta viðbótin í Super Mario
Strikers seríuna. Frábær boltaleikur
sem er auðvelt að koma sér inn í en
erfitt að ná fyllilega tökum á. Ein-
spilunin er ansi dræm svo það er
eiginlega skilyrði að spila hann í
gegnum netið eða með vinum og
þar til gerðum vandamönnum.
Indíslegt ár
Indísenan er að mati margra þar
sem töfrar tölvuleikja fá í alvöru að
skína í gegn með nýjum og ferskum
hugmyndum. Vampire Survivors,
sem lítur í grunninn út eins og
leikur á Super Nintendo eða Flash,
varð mest spilaði leikurinn á Steam.
Verðmiðinn er varla túkall en það
er augljóst hvers vegna leikurinn
er jafnvinsæll og raun ber vitni.
Hefur þig einhvern tímann langað
til að drepa tugþúsundir á innan við
hálftíma? Þá er þetta leikurinn fyrir
þig. Instant klassík sem hefur strax
skapað slatta af eftirhermum.
Sértrúarsöfnuðir hafa aldrei verið
jafnkrúttlegir og í Cult of the Lamb
þar sem leikmenn gera sitt besta til
að gera myrkum guði sínum til geðs.
Leikurinn lítur út eins og barnabók
með ansi myrku yfirbragði en spil-
unin ætti að hitta í mark hjá öllum
þeim sem kunna að meta góðan
roguelike.
Það var svo frábært afturhvarf að
gefa óþokkum á kjammann í Teen-
age Mutant Ninja Turtles: Shredd-
er’s Revenge. Skjaldbökurnar hafa
verið fjarverandi frá leikjamarkaðn-
um allt of lengi og þessi er líklega sá
besti sem hefur verið gerður síðan
skriðdýrin gerðu garðinn frægan í
Turtles in Time. n
48 Helgin 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
17. desember 2022 LAUGARDAGURAnnáLL TöLvULeikiR Fréttablaðið