Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 17.12.2022, Qupperneq 96
Við fjölskyldan vorum öll orðin leið á þessu borgarbasli og að slást við skólakerfi sem nærði okkur lítið. Orri Jónsson hætti í meistara- námi og flutti með fjölskyld- una til Mexíkó. Hann hefur nú sent frá sér ljósmyndabók sem varð til á því tímabili. tsh@frettabladid.is Ljósmyndarinn Orri Jónsson hefur sent frá sér nýja ljósmyndabók sem ber heitið Fangið þitt er svo mjúkt það er eins og lamba ull. Ljós- myndirnar voru teknar yfir rúma þrjá áratugi og mynda eins konar fjölskyldusögu þar sem tíminn er óræður og staðsetningar á reiki. „Myndirnar spanna 32 ár sirka og eiga það sameiginlegt að þær voru ekki teknar með það fyrir augum að enda í einhverri bók,“ segir Orri. Átti bara ritgerðina eftir Orri byrjaði að gera bókina undir lokin á meistaranámi í ljósmynd- un og heimildavinnslu í Ryerson háskólanum í Toronto, sem hann fór í fyrir nokkrum árum. „Það sem talað er um sem list- ljósmyndun hefur í gegnum tíð- ina oftast verið byggt á fyrirfram gefnum hugmyndum, ljósmyndin er oft notuð sem miðill til að mynd- skreyta einhverja hugsun. Algengt er að fólk afmarki einhverja hug- mynd, leggist svo í rannsóknar- vinnu og framkvæmi síðan þá hug- mynd eftir einhverjum leiðum sem auðvelt er að færa rök fyrir með orðum. Mig langaði að nálgast þetta akkúrat öfugt, í fyrsta lagi að vinna með mótíf sem skipti mig hjartans máli og vinna með efnið sjónrænt, út frá innsæi og tilfinningu frekar en rökhyggju,“ segir hann. Árið 2016, þegar Orri átti aðeins meistararitgerðina eftir, ákvað hann þó að venda sínu kvæði í kross og hætti í náminu. „Við fjölskyldan vorum öll orðin leið á þessu borgarbasli og að slást við skólakerfi sem nærði okkur lítið, það var fyndið að vera 45 ára og upplifa sama skólaleiðann og 7 ára og 18 ára synir okkar. Í staðinn fyrir að eyða nokkrum mánuðum í að skrifa ritgerð þar sem ég hefði reynt að útskýra með orðum það sem ég hefði annars sagt með myndum, þá fórum við fjölskyldan til Mexíkó í eina önn. Við leigðum okkur hús í litlu þorpi og vorum þar bara í svona heimanámi og að endurstilla okkur. Þar varð kjarninn að þessari bók til,“ segir Orri. Þurfti fjarlægð frá efninu Bók Orra er mjög persónuleg enda samanstendur hún mestmegnis af ljósmyndum af fjölskyldu hans í gegnum árin, konu hans, Þórdísi, og fjórum börnum þeirra, í bland við borgar- og landslagsmyndir frá stöðum þar sem þau hafa búið. Orri segir það nokkuð sérstakt að vinna með svo persónulegt efni. „Ég fann f ljótt að ég þurfti fjar- lægð frá þessu efni til að geta umgengist það og unnið með það svolítið frjálst. Það er rosa auðvelt að tengjast tilfinningalega augnablik- unum þegar þú tókst myndirnar og þá ertu kominn í svolítil vandræði, ef þú ert farinn að vinna efnið út frá því. Maður þarf einhvern veginn að geta stigið frá þessu og unnið með myndirnar úr ákveðinni fjarlægð til þess að þær meiki einhvern sens í stærra samhengi og eigi sér rödd utan fjölskyldualbúmsins,“ segir hann. Eins og áður sagði spannar bókin langt tímabil en myndunum er þó ekki raðað í tímaröð og reyndi Orri þess í stað að búa til öðruvísi þráð í gegnum hana. „Þegar ég byrjaði fyrst að vinna með þetta þá svona að gamni byrjaði ég að raða þessu í tímaröð, til þess að átta mig sjálfur aðeins á tímanum og þessari tímalínu. En ég fann það mjög fljótt að það væri alltof einfalt og grunnt að vinna með þetta alveg í tímalínu. Vegna þess að maður skynjar tímann á alls konar hátt og auk þess þá skoðar fólk ljósmyndabækur mjög sjaldan í harðri tímalínu frá blaðsíðu eitt og að lokum.“ Ekki algengt viðfangsefni karla Hvaðan kemur titill bókarinnar Fangið þitt er svo mjúkt það er eins og lamba ull? „Hann kemur frá yngsta syni okkar. Þetta muldraði hann eina nóttina þegar ég var að bera hann fram á klósett þegar hann þurfti að pissa. Titillinn kom í raun mjög seint, ég var búinn með bókina og var ekki með neinn titil, en öðru hverju hafði ég mátað einhverja titla og fannst þeir ómögulegir,“ segir Orri. Hann bætir því við að vinkona hans, Ingibjörg Birgisdóttir, hafi sannfært hann um að nota þennan titil þegar þau unnu bókarkápuna saman. Orri segir svona persónuleg ljós- myndaverkefni eiga sér ýmsar fyrir- myndir en það hefur þó ekki verið algengt að karlkyns ljósmyndarar noti fjölskyldur sínar sem viðfangs- efni. „Í gegnum ljósmyndasöguna þá hefur það verið viðurkennt að kven- ljósmyndarar hafa verið ófeimnar við að nota fjölskyldu sína og mynd- ir af börnum í stærri verkefni af ein- hverri alvöru en það hefur vantað mikið hjá karlljósmyndurum. Það eru auðvitað mýmörg dæmi um að karlljósmyndarar hafi gert seríur, kannski yfir langt tímabil, af konunum sínum en þeir virðast lítið hafa velt fyrir sér fjölskyldunni af einhverri alvöru í sínum verkum.“ n Ljósmyndaði fjölskyldu sína í rúma þrjá áratugi Myndirnar í bók Orra eru að mestu teknar af fjölskyldu hans yfir 32 ára tímabil. Mynd/Orri JónssOn Orri segir það ekki algengt að karlljósmyndarar noti fjölskylduna sína sem efnivið í stærri verkefni. Fréttablaðið/Ernir Upplýsingar um sölustaði er að finna á glediskruddan.is glediskruddan glediskruddan Höfundar: Marit & Yrja. Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. „Ég mæli einlæglega með Gleðiskruddunni sem er frábær bók til að virkja börn í að efla vellíðan, bjartsýni og þrautseigju“ -Bryndís Jóna, Núvitundarsetrinu- menning 17. desember 2022 LAUgARDAgUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.