Fréttablaðið - 17.12.2022, Side 100

Fréttablaðið - 17.12.2022, Side 100
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri árið 1978. Mynd/Aðsend Í samræmi við úrslit kosninganna ákvað Kristján Eldjárn strax 5. desember að veita Steing r ími Hermannssyni fyrstum umboð til stjórnarmyndunar, en hann hafði þá nýlega tekið við formennsku í Framsóknarf lokknum af Ólafi Jóhannessyni. Hóf hann strax til- raunir til að endurreisa vinstri stjórn Framsóknar, Alþýðuf lokks og Alþýðubandalags undir sínu forsæti. Jafnframt lýsti Steingrímur því yfir skömmu eftir að hann fékk umboðið að hann útilokaði sam- starf við Sjálfstæðisf lokk. Með þessu þrengdi hann möguleika til stjórnarmyndunar verulega því að skipting þingsæta eftir kosningar var þannig háttað að án þátttöku Sjálfstæðisf lokks var ekki kostur á neinum öðrum starf hæfum þriggja f lokka meirihluta en vinstri stjórn og engum tveggja f lokka. Eftir að hafa haldið áfram samningaum- leitunum sínum um vinstri stjórn án árangurs í næstum tvær vikur var því ekki um annað a en skila umboðinu aftur til forseta. Nú varð hlé á viðræðum vegna jólahalds til 27. desember en þá fól forseti Geir Hallgrímssyni umboð til stjórnarmyndunar. Á pappírn- um virtist staða Sjálfstæðisf lokks- ins allsterk þar sem hann hafði þingstyrk til að mynda tveggja f lokka stjórn með hverjum hinna þriggja f lokkanna sem var. Hér var þó ekki allt sem sýndist, Steingrím- ur hafði þegar útilokað samstarf við Sjálfstæðismenn og samkomu- lag við Alþýðuf lokk var ólíklegt, bæði vegna andstöðu Benedikts Gröndal formanns gegn nýrri Við- reisnarstjórn og vegna tæps meiri- hluta á sameinuðu Alþingi. Þriðji kosturinn, samstarf Sjálfstæðis- flokks og Alþýðubandalag, var ekki heldur árennilegur þrátt fyrir nægi- legan þingstyrk. Þessir andstæðu pólar í íslenskum stjórnmálum höfðu aðeins einu sinni verið saman í stjórn, þ.e. í nýsköpunar- stjórn Ólafs Thors 1944-47, fyrir daga kalda stríðsins. Nú gerðist það hins vegar að Styrmir Gunn- arsson, ritstjóri Morgunblaðsins, skrifaði grein þar sem hann hvatti til þess að reynt væri að ná því sem hann kallaði "sögulegum sáttum" milli þessara tveggja f lokka. Þótt nokkrar þreifingar, sem mér þóttu áhugaverðar og hvatti Geir til að athuga í alvöru, ættu sér síðan stað, kom brátt í ljós að kalda stríðs við- horfin voru enn of sterk til að þetta gæti orðið að veruleika. Í stað þess taldi Geir vænlegra að leita fyrir sér um myndun þjóðstjórnar en fyrir því reyndist ekki heldur nægur áhugi. Hann skilaði því umboði sínu 14. janúar. Var nú komið að því að Kristján Eldjárn kallaði Lúðvík Jósepsson formann Alþýðubandalagsins til að taka að sér stjórnarmyndun, hann baðst hins vegar undan því þar sem hann hygðist bráðlega draga sig í hlé frá stjórnmálum. Kom það því í hlut Svavars Gestssonar að leysa Lúðvík af hólmi og tók hann við umboði forseta 15. janúar. Lagði hann, eins og Steingrímur, megináherslu á endurreisn vinstri stjórnar en það bar lítinn árangur. Þegar hér var komið sögu var Kristján Eldjárn farinn að hafa þungar áhyg gjur þar sem ekki virtist miða neitt í samkomulag- sátt milli f lokkanna. Hann taldi því nauðsynlegt að búa sig undir að geta skipað utanþingsstjórn, ef allt um þryti. Mánudaginn 21. janúar bað svo Kristján mig um að koma á fund til sín. Sagðist hann vera að hugsa um að skipa utanþingsstjórn og spurði mig hvort ég væri tilbúinn að taka að mér forsæti í henni. Sagðist ég fús til þess. Skýrði hann mér fyrst frá því hve erfið staðan virtist vera og lýsti því hvernig hún leit út frá hans sjónarhóli. Svo vildi til að fyrr um daginn hafði Gunnar Thoroddsen komið á fund forseta að eigin ósk. Hafði Gunnar þá lýst þeirri skoðun sinni að helst virtust möguleikar á að mynda þriggja f lokka stjórn Sjálfstæðis-, Alþýðu- og Framsóknarflokks, en það kynni að stranda á því hver skyldi gegna embætti forsætisráðherra. Gæti þá lausn vandans verið fólgin í því að einhver annar en einn formanna þessara f lokka tæki það að sér. Nefndi hann sem dæmi að Stein- grímur Steinþórsson hefði gegnt embætti forsætisráðherra í stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisf lokks 1950-53 þegar hvorki Ólafur Thors né Hermann Jónasson gátu sætt sig við forsæti hins. Ekki gerðum við okkur grein fyrir því á þessu stigi, hvað hér bjó undir. Við Kristján ræddum síðan all- lengi um myndun hugsanlegrar utanþingsstjórnar. Hér var að sjálf- sögðu um allt annað og vandasam- ara verkefni að ræða en myndun bráðabirgðastjórnar til þriggja mánaða eins og við höfðum rætt um í október. Nú væri hins vegar um að ræða ríkisstjórn sem þyrfti að marka stefnu í efnahagsmálum og f leiri sviðum til langs tíma og eiga framgang mála undir samkomulagi við þingheim. Auk þess að velja ein- staklinga eftir þekkingu þeirra og reynslu þyrftu tilvonandi ráðherrar einnig að hafa áhrif sem gætu auð- veldað tengsl við stjórnmálaf lokk- ana, svo sem Helga Bergs, fyrrver- andi þingmann Framsóknarflokks, og Inga R. Helgason, áhrifamann í Alþýðubandalaginu. Einnig var haft samband við Ásmund Stef- ánsson, Jón Sigurðsson, Ármann Snævarr, Jónas Haralz og Huldu Valtýsdóttur. Kristján Eldjárn var þeirrar skoðunar að hann þyrfti innan skamms að set ja for mönnum stjórnmálaf lokkanna tímamörk um að komast að niðurstöðu um myndum starf hæfrar stjórnar, ella myndi hann skipa utanþingsstjórn. Eftir þetta lét hann mig fylgjast með því helsta sem gerðist í samskiptum hans við forystumenn stjórnmála- f lokkanna næstu daga. Daginn eftir fund minn með forseta skilaði Svavar Gestsson umboði sínu og Benedikt Gröndal tók við því staðinn. Þegar hér var komið virtist ljóst orðið að aðeins væru eftir tveir kostir til mynd- unar meirihlutastjórnar, annars vegar með Alþýðu-, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki og hins vegar með Alþýðubandalagi, Framsóknar- og Sjálfstæðisf lokki. Margt var þó hér enn til fyrirstöðu og þá einkum andúð Steingríms Hermannssonar og Svavars Gestssonar á samvinnu við Sjálfstæðisf lokkinn, sem yrðu sterkasta af lið í slíkri samstjórn. Í þessari erfiðu stöðu kom nú hins vegar Gunnar Thoroddsen til skjal- anna og bauðst til að koma, ásamt fáeinum öðr um þing mönnum Sjálfstæðisf lokksins, til samstarfs við Framsóknarf lokk og Alþýðu- bandalag þannig að nægjanlegur þingstyrkur fengist til að tryggja starf hæfan meirihluta, enda yrði ríkisstjórnin þá að vera undir for- sæti hans. Þótt þreifingar Gunnars hefðu staðið um hríð og ættu sér alllang- an aðdraganda varð það ekki heyr- inkunnugt fyrr en miðvikudaginn 30. janúar en þá höfðu viðræður hans um stjórnarmyndun staðið í nokkra daga og málefnasamningur nærri tilbúinn. Gunnari hafði þó ekki tekist að fá þá tvo til þrjá þingmenn Sjálfstæðisf lokksins til stuðnings við sig sem þurfti til að hafa meirihluta til stjórnarmynd- unar. Til þess að ná því yrði hann að leita stuðnings þingf lokksins. Þetta ákvað hann nú að gera á fundi þingf lokksins næstkomandi föstudag, fyrsta febrúar. Ég beið því spenntur eftir fréttum af því sem þar mundi gerast. Hafði ég samband við Eyjólf Konráð Jóns- son, góðvin minn og öf lugan stuðn- ingsmann Geirs Hallgrímssonar. Hann var sannfærður um að Gunn- ar Thoroddsen væri rúinn trausti og mundi fara hina mestu sneypu- för á fund þingf lokksins. Fyrstu fréttir sem ég fékk virtust staðfesta þetta. Gunnar hafði ekkert viljað tjá sig eftir fundinn og horfið á braut þungur á brún, en fundurinn hafði mótatkvæðalaust samþykkt að Geirs Hallgrímsson hefði áfram umboð til að halda áfram viðræð- um um stjórnarmyndun. Frá öllu þessu var skýrt í sjónvarpsfréttum um kvöldið, en síðan var viðtal við Gunnar þar sem hann sýndi allar sínar bestu hliðar. Flutti mál sitt af ró og yfirvegun og lýsti nauðsyn þess að allir legðust á árar til að koma á löglegri stjórn í landinu og forða Alþingi frá þeirri niðurlæg- ingu að hér verði skipuð utanþings- stjórn. Hafði þessi frammistaða hans mikil áhrif á fólk sem var orðið þreytt á sífelldum þrætum stjórnmálanna og greiddi þannig fyrir þeirri atburðarás sem fram- undan var. Ég hringdi því í Eyjólf Konráð til að fá frekari fréttir af fundinum. Hann var hæstánægður og sagði að Gunnar hefði verið ofurliði borinn og ætti sér ekki viðreisnar von. Ég spurði hann þá, hvort á fundinum hefði aðeins verið samþykkt trau- styfirlýsing á Geir, en engin mót- mæli gegn eða athugasemdir við samningamakk Gunnars Thor- oddsen. Þá svaraði Eyjólfur: “Við spörkum ekki í liggjandi mann“. Sannleikurinn er sá að Geir og fylgismenn hans vanmátu ætíð styrk og vinsældir Gunnars og því fór sem fór. Þótt Gunnar hafi vafa- laust orðið fyrir vonbrigðum á fundinum hélt hann strax daginn eftir áfram að vinna að stjórnar- myndun. Enn var þó allt í óvissu um hvort hún myndi takast, og kallaði Kristján Eldjárn því á mig til þess við færum yfir skipun utanþingsstjórnar sem hugsan- lega þyrfti að skipa allra næstu daga. Þess gerðist þó ekki þörf því að næsta dag, sem var sunnudagur, fengu Gunnar og Geir í hendur yfirlýsingu frá Albert Guðmunds- syni þar sem sagði að hann mundi með atkvæði sínu verja ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen falli, ef til vantrausts kæmi. M á n u d a g s m o r g u n i n n fé k k Kristján Eldjárn bréf frá Gunn- ar Thoroddsen þar hann skýrði frá því að hann hafi stuðning 31 þingmanns af 60 til að til að gera tilraun til myndunar meirihluta- st jór nar, þar af 28 þing menn Alþýðubandalags og Framsóknar- f lokks, auk alþing ismannanna Eggerts Haukdal og Alberts Guð- mundssonar og svo hans sjálfs. Kristján Eldjárn þurfti nú að velta fyrir sér hvort öll skilyrði væru fyrir hendi til þess að hann gæti veitt Gunnari Thoroddsen umboð til þess að reyna stjórnar- myndun. Þótt Gunnar hefði nú tryggt sér nægilega marga þing- menn til að verja stjórnina falli væri sá meirihluti mjög naumur og ekki fyrir hendi í báðum deildum þingsins. Auk þess var ekki loku fyrir það skotið að aðrir mögu- leikar til stjórnarmyndunar væru enn fyrir hendi, svo sem minni- hlutastjórn Sjálfstæðisf lokks með stuðningi Alþýðuf lokks. Eftir að hafa kannað þetta í samráði við lögfróða ráðgjafa sína komst Krist- ján að þeirri niðurstöðu að hann hlyti að veita Gunnari umboðið. Gerði hann það þegar daginn eftir, 5. febrúar 1980. n Stjórnmál á villigötum Lifað með öldinni Fréttablaðið birtir kafla úr nýrri bók Jóhannesar Nordal, Lifað með öld- inni. Þótt Jóhannes Nordal væri einn helsti áhrifamaður landsins bak við tjöldin tók hann aldrei beinan þátt í stjórnmálum. Veturinn 1979–1980 munaði þó litlu að svo færi þegar forseti Íslands, Kristján Eldjárn, bað hann að mynda utanþingsstjórn. Hér segir Jóhannes í fyrsta sinn frá þessum atburðum. 64 Menning 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.