Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 106

Fréttablaðið - 17.12.2022, Page 106
- ómissandi með steikinni Árið var að vanda viðburðaríkt í heimi heims- fræga fólksins. Svo virtist sem margir væru komnir með fiðring af ýmsum mis-skynsam- legum toga eftir samkomutakmarkanir síðustu tveggja ára og því var af nógu að taka fyrir blaðamann. Það er ógjörningur að gera öllu skil, en við lítum á nokkur eftirminnileg dæmi. ninarichter@frettabladid.is Heimsfræg með skæting og skandala árið 2022 Elon Musk kaupir Twitter Allt ætlaði um koll að keyra þegar auðjöfurinn Elon Musk keypti Twitter á fjörutíu milljarða Bandaríkja- dala sem er ágætis summa. Stjörnur létu sig hverfa af miðlinum og margir spáðu endalokum forritsins og var Elon sjálfur í þeim hópi. Hann tók sig til og rak þorra starfsfólks og setti blátt staðfestingarmerki miðilsins á útsölu, aðeins 8 dollara fyrir hvern sem er.  Svo virðist sem rekstrartengdar ákvarðanir Elons rati í heimsfréttirnar vikulega. Hann stefnir á frekari breytingar á komandi ári, þar á meðal að fjölga mögulegum stafabilum í hverju tísti í rúmlega fjögur þúsund. Fjölskyldumeðlimir Elons rötuðu einnig í heims- fréttirnar, en í sumar var sagt frá því að faðir Elons Musk hefði feðrað barn með upp- eldisdóttur sinni, sem hafði búið hjá honum frá fjögurra ára aldri. Þær fregnir bárust síðan í desember að Elon Musk væri ekki lengur ríkasti maður heims, eftir að ítalski listaverka- salinn og lúxus-keðjueigandinn Bernard Arnault skaust fram úr honum. Kjólafíaskó og Kim Kardashian Frægasta Kardashian-systirin var vinsæll gestur á síðum slúðurblaðanna, sem og fyrri ár. Kim, sem er ein hæst þénandi stjarna skemmtanabransans vestra, sagði í viðtali við Variety: „Ég er með besta ráðið fyrir konur í viðskiptalífinu. Standið upp af fjárans rassgatinu og farið að vinna. Það er eins og enginn vilji vinna nú til dags.“ Kim sló sér upp á árinu með Pete Davidson og mætti á MET gala, stórhátíð tískubransans í Banda- ríkjunum, í sögulegum kjól af kvikmyndastjörnunni Marilyn Monroe. Kjóll- inn er skilgreindur sem safngripur og ekki leist öllum jafn vel á uppátækið. Kim var einnig gagnrýnd af líkamsvirðingaraktívist- um fyrir að svelta sig til að passa í kjólinn. Hann pass- aði þó ekki betur en svo að hún lét gera eftirlíkingu sem hún klæddist þegar af rauða dreglinum var komið. Þegar Kim skilaði kjólnum aftur á safnið var hann rifinn á nokkrum stöðum. Will Smith fer í Óskarsbann Will Smith varð einn umtalaðasti gestur Óskarsverð- launanna í mars þegar hann gaf skemmtikraftinum Chris Rock einn á lúðurinn uppi á sviði í beinni út- sendingu. Áhorfendur vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið en fljótlega kom í ljós að um reiðikast var að ræða, en ekki uppstilltan leikþátt. Tilefnið sem Will Smith gaf voru ummæli Rock um eiginkonu Wills, Jada Pinkett Smith. Will Smith hlaut í kjölfarið bann á Óskarsverðlaunahátíðinni, þó að hann geti enn verið tilnefndur og unnið verðlaunin. Hann má bara ekki mæta á staðinn. Heit umræða skapaðist í tengslum við málið um eitraða karlmennsku í Holly- wood og ofbeldismenningu. „Hafðu engar áhyggjur, elskan“ Upphaf málsins má rekja til ósættis leikstjórans Oliviu Wilde og leik- konunnar Florence Pugh. Florence lék aðalhlutverkið í kvikmynd Oliviu, „Don‘t Worry Darling“, sem mætti þýða sem „Engar áhyggjur, elskan.“ Ósættið sneri að hvarfi Shia LaBeouf úr leikhópi myndar- innar sem Olivia reyndist opinber- lega tvísaga um, auk baktals Oliviu og Shia um Florence, þar sem vísað var til hennar sem Miss Flo. Florence lét hvergi sjá sig á spurt-og-svarað panel á Kvik- myndahátíðinni í Feneyjum og haft var eftir viðstöddum að stemningin hafi verið skrýtin. Harry Styles, leikari og tónlistar- maður sem átti í ástarsambandi við Oliviu á þessum tíma, sat við hliðina á Chris Pine á forsýning- unni. Þá spruttu upp samsæris- kenningar á samfélagsmiðlum um að Chris Pine hefði hrækt á Harry Styles á viðburðinum, og mynd- band birt því til meints stuðnings. Enginn veit nákvæmlega hvað fór fram en einhver fótósjoppaði glæsilega geit inn á myndbandið, sem Chris virðist henda í fangið á Harry, og það rammar málið ágæt- lega inn. Búningabannið á Harry prins Árið var erfitt hjá bresku krúnunni. Þegar Elísabet drottning Breta andaðist þann 8. september flaug Harry prins frá Kaliforníu til að vera viðstaddur konunglega útför ömmu sinnar. Þar sem Harry er ekki lengur starfandi meðlimur konungsfjölskyldunnar fékk hann ekki að klæðast viðhafnaremb- ættisbúningi eins og aðrir með- limir fjölskyldunnar. Þetta kom þó í bakið á skipu- leggjendum, því myndir frá við- burðinum komu út eins og Harry væri mikilvægasti maðurinn á svæðinu, með fylgdarliði embætt- ismanna. Því var ákvörðunin dregin til baka. Þá hefur Harry gegnt 10 ára herþjónustu fyrir hönd bresku krúnunnar. Buckingham-höll bauð Harry og Megan Markle til konung- legrar móttöku í tengslum við út- förina, og afbauð þeim síðan aftur. Vandræðagangurinn endar ekki hér, heldur frumsýndi Netflix í desember heimildarþætti um Harry og Meghan þar sem þau segja sína hlið á Mexit-málinu svokallaða og konungsfjölskyldan kemur ekki heldur neitt æðislega vel út úr þeirri frásögn. Guðmóðir Vilhjálms krónprins og háttsettur meðlimur hirðarinn- ar sagði af sér í nóvember eftir að hafa verið gripin við rasísk ummæli í veislu. Nína Richter ninarichter @frettabladid.is 70 Lífið 17. desember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.