Fréttablaðið - 28.12.2022, Síða 11
16. árgangurM I ÐV I KU DAG U R 28. D e s e M be R 2022
arkaðurinn
f y l G I R I t f R é t tA b l A Ð s I n s U M V I Ð s K I p t I o G fj á R M á l
Fréttablaðið/ernir
Salan á Tempo best heppnuð
2 Stjórnendur Origo þóttu sýna
klókindi við söluna á hug-
búnaðarfyrirtækinu Tempo á
árinu. Viðskiptin skiluðu gríðar-
legum verðamætum fyrir hluthafa.
Hélt hárrétt á spöðunum
4 Orri Hauksson leiddi til lykta
söluna á Mílu til franska
fjárfestingasjóðsins Ardian á
árinu. Fyrir það valdi dómnefnd
Markaðarins Orra viðskiptamann
ársins.
Útboð sem olli vonbrigðum
6 Skráning fjarskiptafélagsins
Nova á hlutabréfmarkað voru
valin verstu viðskipti ársins.
Prýðileg viðskipti fyrir seljendur
en mikil vonbrigði fyrir kaupendur
að mati dómnefndar.
Vongóð eftir krefjandi ár
8 Stríðið í Úkraínu setti sterkan
svip á árið hjá stjórnendum
íslenskra fyrirtækja. Eftir
krefjandi tíma ríkir þó mikil bjart-
sýni í atvinnulífinu.
Tilheyrir engri klíku
20Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri segist ekki
skulda neina greiða í
starfi. Hann lítur á það sem sinn
helsta styrk að tilheyra engri sér-
stakri valdablokk.
Viðskiptamaður ársins
Orri Hauksson, forstjóri Símans,
þótti sýna fádæma seiglu þegar
hann leiddi til lykta risasölu á
innviðafyrirtækinu Mílu á árinu.
Allt leit út fyrir að viðskiptin
væru að renna út í sandinn vegna
strangra skilyrða Samkeppnis-
eftirlitsins. ➤ 12
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.