Fréttablaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 14
54 Stjórnendur og sér- fræðingar úr viðskipta- lífinu. Orri Hauksson, forstjóri Símans og viðskiptamaður ársins að mati dómefndar Markaðarins, ásamt Guðmundi Gunn- arssyni, fréttastjóra Markaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Samkvæmt dómnefnd Markaðarins, sem er skipuð forstjórum og sérfræðingum úr viðskiptalífinu, sýndi Orri Hauksson, viðskiptamaður ársins, fádæma seiglu þegar á móti blés og allt leit út fyrir að risasala á innviðafyrir- tækinu Mílu væri að renna út í sandinn. ggunnars@frettabladid.is Viðskiptamaður ársins árið 2022 er Orri Hauksson, forstjóri Símans, fyrir að hafa klárað söluna á Mílu til franska fjárfestingasjóðsins Ardian. Samkeppniseftirlitið gerði tals- verða fyrirvara við söluna sem gerði það að verkum að um tíma leit út fyrir að viðskiptin væru að ganga til baka. „Afrek að ná svo góðum samningi og þrautseigja að koma sölunni í gegnum kerfið og leiða hana til lykta þrátt fyrir þunglamaleg og tímafrek afskipti Samkeppnis- eftirlitsins. Allt ferlið tók óeðlilega langan tíma. Orri leiddi starf þess hóps sem vann að málinu á vegum Símans með miklum myndarbrag, sem sýnir hversu öflugur stjórnandi hann er,“ segir í rökstuðningi dóm- nefndar Markaðarins. Heildarandvirði sölunnar á Mílu til Ardian var 69,5 milljarðar þegar upp var staðið og samþykki Sam- keppniseftirlitsins lá fyrir. Það var 3,5 milljörðum lægri upphæð en kveðið var á um í upphaf legum sölusamningi. Orri hefur setið í forstjóra- stólnum hjá Símanum samfleytt í níu ár en á þeim tíma hefur fyrir- tækið gengið í gegnum talsverðar breytingar. Skerpt hefur verið á þjónustuhlutverki fyrirtækisins og verkefnum fækkað. Einn af þeim sem skipa dóm- nefnd Markaðarins segir mikið hafa mætt á stjórnendum Símans á árinu. „Orri stóð þá vakt með stakri prýði. Hélt hárrétt á spöðunum og náði góðum samningum fyrir hlut- hafa Símans með tímamótasölu á dótturfyrirtækinu Mílu við afar krefjandi aðstæður.“ Margir sem sátu í dómnefnd Markaðarins nefndu þrautseigju Orra á þessum krefjandi tímum. Hún hafi umfram annað riðið baggamuninn þegar öll sund virtust lokuð og franski kaupandinn farinn að ókyrrast. „Við svipaðar aðstæður hefðu margir eflaust játað sig sigraða. Sér- staklega í ljósi þess óróa sem var far- inn að gera vart við sig á mörkuðum um svipað leyti.“ Sjálfur segist Orri líta stoltur til baka þegar árið er gert upp. Hann segir allt starfsfólk og stjórn Símans deila viðurkenningu dóm- nefndar Markaðarins með honum. „Þau stóðu sig öll eins og hetjur á krefjandi tímum. Hópurinn stóð þétt saman og landaði samningum á elleftu stundu. Við snúnar aðstæð- ur,“ segir Orri Hauksson, viðskipta- maður ársins að mati dómnefndar Markaðarins. n Hélt hárrétt á spöðunum við krefjandi aðstæður ggunnars@frettabladid.is Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar, náði eftir- tektarverðum árangri í íslensku viðskiptalífi á árinu. Hann hafnaði í öðru sæti í vali dómnefndar Mark- aðarins á viðskiptamanni ársins. „Eftir afar farsæla skráningu í Kauphöll Íslands á síðasta ári hefur Gunnþór staðið í stórræðum. Kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfyrir- tæki Vísis í Grindavík eru risastór og söguleg. Samkeppniseftirlitið hefur nú heimilað 31 milljarðs króna við- skiptin og Vísir er orðinn hluti af samstæðu Síldarvinnslunnar. Eftir stendur gríðarlega sterkt félag, stýrt af öflugum forstjóra,“ segir í rökstuðningi eins af álitsgjöfum Markaðarins. Gunnþór og Síldar vinnslan bættu svo um betur með kaupum á liðlega 34 prósenta hlut í laxeldis- fyrirtækinu Arctic Fish fyrir tæp- lega 14 milljarða. Hluthafar Síldar- vinnslunnar geta vel við unað með ávöxtun hlutabréfa, ólíkt mörgum í kauphöllinni í dag. Félagið hefur enda hækkað einna mest allra skráðra fyrirtækja á árinu. Það er jafnframt samdóma álit dómnefndar að Gunnþór hafi sýnt, svo ekki verður um villst, að hann hafi yfirburðaþekkingu á íslenskum sjávarútvegi og sé afar útsjónar- samur. n Útsjónarsamur stjórnandi Gunnþór Ingvason, framkvæmda- stjóri Síldarvinnslunnar. 2. sæti 3 sæti1. sæti Ótrúlega flott upp- bygging og enn flottari sala. Kaup Síldarvinnslunn- ar á útgerðarfyrirtæk- inu Vísi í Grindavík eru risastór og söguleg. Aðdáunarverður árangur og sala ggunnars@frettabladid.is Helgi Hermannsson seldi nýsköp- unarfyrirtækið Sling til bandaríska tæknifyrirtækisins Toast fyrir 8,6 milljarða á árinu. Hann hafnaði í þriðja sæti í vali dómnefndar Mark- aðarins á viðskiptamanni ársins. Helgi stofnaði Sling fyrir rúmum sjö árum og er það samdóma álit dómnefndar að hann hafi átt ösku- buskuævintýri ársins í íslensku við- skiptalífi. Hugmynd að baki Sling er hug- búnaður fyrir vinnustaði þar sem unnið er á vöktum. „Ótrúlega f lott uppbygging og enn flottari sala. Að fara á sjö árum úr því að labba á milli mögulegra viðskiptavina í Bandaríkjunum með PowerPoint-skjal yfir í að selja fyrirtækið á yfir 8 milljarða er ekk- ert minna en afrek.“ Toast tilkynnti um kaupin á sumarmánuðum og bætti þar með Sling við lausnir fyrirtækisins á sviði launavinnslu og teymisstjórnunar. Toast-hugbúnaður er nýttur af veit- ingastöðum um allan heim. Helgi er langstærsti hluthafinn í Sling og stofnandi. Samkvæmt honum eru spennandi tímar fram undan eftir þetta risastóra skref á árinu. Ævintýrið sé rétt að byrja. Dómnefnd Markaðarins telur nær öruggt að meira eigi eftir að heyrast af sigrum Helga Hermannssonar og Sling á næstu árum. n Helgi Hermannsson, stofnandi Sling. Þau sem einnig voru tilnefnd Markaðurinn leitaði til forstjóra og stjórnenda fyrirtækja, auk sér- fræðinga á sviði sjóðs- og eigna- stýringar, við val á einstaklingum og viðskiptum sem þóttu skara fram úr á árinu í íslensku viðskipta- lífi. Alls bárust svör frá 54 álitsgjöf- um og skipar sá hópur dómnefnd Markaðarins fyrir árið 2022. n Dómnefnd Gerður Huld Arinbjarnardóttir eigandi Blush „Gerður hefur margfaldað rekstr- artekjur Blush og vakið verð- skuldaða athygli fyrir snilldarlega útfærða markaðssetningu. Magn- aður frumkvöðull sem hikar ekki við að fara ótroðnar slóðir.“ Ásta Fjeldsted forstjóri Festi „Ásta er ferskur andblær í hópi stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Óvenjuleg, kraftmikil og jákvæð. Lægði öldur innan Festi eftir ólgu í kringum brotthvarf fyrrverandi forstjóra.“ Guðmundur F. Sigurjónsson stofnandi og forstjóri Kerecis „Guðmundur stýrir spennandi fyrirtæki á alþjóðamarkaði. Kerecis fékk mikla viðurkenningu á árinu þegar erlendir fagfjárfestar komu inn í félagið og Kerecis vex jafnt og þétt.“ Gísli Herjólfsson stofnandi Controlant „Gísli heldur áfram að byggja á góðum grunni og treysta rekstur á einu arðbærasta félagi landsins. Ekki sjálfgefið að halda svo vel á spöðunum eftir ævintýralegan vöxt síðustu ára.“ Fólk ársins í viðskiptalíFinu 28. desember 2022 MiðvikuDaGur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.