Fréttablaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 18
Verkefnin mörg og fjölbreytt
Edda Sif Pind Aradóttir, for-
stjóri Carbfix, segir að stofnun
hlutafélags um reksturinn hafi
verið þýðingarmikil fyrir rekstur
félagsins.
Hvað gekk vel á árinu 2022?
Það sem stendur upp úr á
árinu hlýtur að vera 16 milljarða
styrkur Nýsköpunarsjóðs
Evrópu til Coda Terminal-verk-
efnis okkar í Straumsvík. Við
hófum líka framkvæmdir við
mikilvægar tilraunir með að
blanda CO2 í sjó í stað fersk-
vatns, og við tókum í fyrsta sinn
við CO2 erlendis frá til förgunar
á Íslandi. Aðferðafræði okkar til
kolefnisbindingar var fullgilt og
sannreynd af óháðu vottunar-
fyrirtæki, og ýmis ný og spenn-
andi samstarfsverkefni komust
á skrið. Teymið okkar stækkaði
mikið, við ríflega tvöfölduðum
fjölda starfsfólks, enda eru verk-
efnin bæði mörg og fjölbreytt.
Þá var samþykkt að stofnað yrði
hlutafélag um reksturinn, sem
var þýðingarmikið fyrir vaxtar-
möguleika okkar.
Hvað var krefjandi á árinu
sem er að líða?
Við erum að stækka hratt,
bæði hvað varðar verkefna-
stöðu og starfsfólk, og það var
krefjandi að halda vel utan um
þann vöxt. Þá var að sjálfsögðu
margt krefjandi í undirbúningi
hvað varðar þróun tækninnar,
einstakra verkefna og við-
skiptaáforma félagsins. Það er
partur af því að gera nýja hluti
og hefur fylgt okkar þróunar-
starfi alveg frá upphafi, en
vöxturinn var meiri á árinu en
hann hefur verið áður.
Hvernig horfir árið 2023 við
þér?
Ég geri ráð fyrir að við
munum áfram vaxa töluvert
eftir því sem þróunarverkefni
okkar komast lengra á leið og
ný bætast við. Það eru all-
margir stórir áfangar sem við
stefnum á að ná á árinu og það
verður krefjandi. Við viljum
vinna eins hratt og við getum
því tíminn vinnur ekki með
okkur í loftslagsmálum.
Viðburðaríkt ár hjá Origo
Jón Björnsson, forstjóri Origo, er
bjartsýnn fyrir árið 2023.
Hvað gekk vel á árinu 2022?
Árið var líklega eitt hið við-
burðaríkasta í sögu Origo. Auð-
vitað stendur salan á Tempo upp
úr og má líkja við góðan enda-
sprett í langri vegferð. Vegferðin
sem félagið lagði upp í 2018
gekk eftir og rúmlega það. Í inn-
lendum rekstri voru líka margir
þættir sem hægt er að gleðjast
yfir. Félagið festi sér nýja stefnu
í ársbyrjun eftir að hafa unnið
í henni um nokkurra mánaða
skeið með starfsfólki.
Innan Origo eru rúmlega 20
teymi sem á hverjum degi hjálpa
fyrirtækjum og stofnunum að
reka sín fyrirtæki betur. Þessir
teymi eru oft ólík, með mismun-
andi tekjuleiðir, ólíka viðskipta-
vini, mismunandi nálægð við við-
skiptavini og jafnvel með ólíka
mælikvarða til að mæla árangur
sinn. Það sem sameinar þó öll
þessi teymi er að við nýtum betri
tækni til að bæta líf viðskipta-
vina okkar með því að hafa traust
þeirra og vera stöðugt að breyta
leiknum fyrir þau með þróun á
nýrri tækni. Þannig vinnum við
með svipaðar grunnáherslur
þó að hvert teymi vinni eins
sjálfstætt og mögulegt er til að
tryggja styttri boðleiðir, hraðari
nýsköpun og aukið umboð fólks-
ins sem býr til tekjur félagsins.
Þessi stefna hefur gefist vel og
við sjáum að við getum vel vaxið
á mismunandi stöðum og að
nýrri áherslur okkar á að þróast
hraðar í hugbúnaði þurfa ekki að
vera á kostnað eldri tekjustofna.
Margt er líkt í aðferðafræðinni
og á endanum snýst þetta um að
tala við viðskiptavininn og leysa
málin saman.
Hvað var krefjandi á árinu?
Fyrirtækjarekstur er í eðli sínu
alltaf krefjandi. Öðruvísi næst
enginn árangur. Umhverfið var
stormasamt á köflum og eftir
heimsfaraldur kom stríð og að-
fangakeðjur heimsins titruðu
með tilheyrandi áhrifum á
viðskiptavini okkar. Samhliða
eru alltaf að koma fram nýjar
áskoranir í hinum stafræna heimi
sem krefjast aukinnar þekkingar.
Þessa þekkingu er ekki sjálfsagt
að geta alltaf sótt í litlu landi og
því höfum við í auknum mæli
þurft að leita út fyrir landstein-
ana. Slíkt er krefjandi til skemmri
tíma.
Hvernig horfir árið 2023 við þér?
Við erum vel undirbúin og
þess vegna bjartsýn. Við er með
nokkuð skýra stefnu og góð
markmið sem við teljum okkur
vera að nálgast. Það er alltaf
óvissa um hversu hratt það er
hægt en lykillinn er að halda
áfram og vera undirbúin undir
hraðar aðlaganir og breytingar ef
þörf er á.
Við nýtum
betri tækni til
að bæta líf
viðskiptavina
okkar.
Ég geri ráð fyrir
að við munum
áfram vaxa
töluvert.
Vongóð eftir
krefjandi ár
Markaðurinn leitaði til nokkurra stjórnenda í
atvinnulífinu til að gera upp árið 2022. Inn-
rásin í Úkraínu hafði mikil áhrif á árið hjá
flestum viðmælendum en mikil bjarstýni ríkir
fyrir komandi ári.
benediktarnar@frettabladid.is
markaðurinn8 28. desember 2022 miðVikuDaGur