Fréttablaðið - 28.12.2022, Síða 22
Ég er ekki
viss um að
allir geri
sér grein
fyrir
hversu
tæpt þetta
stóð allt
saman.
Orri Hauksson, forstjóri og markaðsmaður ársins, segir Símann í allt annarri stöðu í dag eftir söluna á Mílu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Orri Hauksson þótti sýna
fádæma þrautseigju þegar
hann leiddi til lykta sölu
Símans á innviðafyrirtækinu
Mílu þrátt fyrir mótbyr
og útlit fyrir að viðskiptin
væru farin í vaskinn. Fyrir
vikið valdi dómnefnd
Markaðarins Orra
viðskiptamann
ársins 2022.
Salan á
Mílu hékk
á algjörum
bláþræði
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars@
frettabladid.is
Orri Hauksson, forstjóri
Símans, stóð sannar-
lega í ströngu þegar
upp kom á árinu að
Samkeppniseftirlitið
gerði talsverða fyrirvara við söluna
á Mílu til franska innviðarisans
Ardian. Hann segist þakklátur fyrir
viðurkenninguna þótt hann líti svo
á að allt starfsfólk og stjórn Símans
eigi hrósið skilið. Þau hafi öll staðið
sig eins og hetjur á krefjandi tímum.
Hvað sjálfa söluna á Mílu varðar
segir Orri að horfurnar hafi ekki
bara verið dökkar á tímabili, held-
ur hreint út sagt vonlausar. Ferlið
hafi reynst mun þyngra í vöfum en
nokkurn óraði fyrir þegar gengið
var frá sölusamningi í lok október
á síðasta ári. Því hafi niðurstaðan
verið þeim mun sætari þegar ljóst
var að viðskiptin voru í höfn og allir
gengu sáttir frá borði.
„Þetta var í raun ótrúlegt ár svona
þegar maður lítur til baka. Við
vissum alltaf að margir myndu láta
til sín taka í málinu. Þetta var alltaf
spurning um þennan fyrirvara um
samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Svo fóru reyndar af stað viðræður
við aðra anga ríkisvaldsins varðandi
þjóðaröryggi, sem við skildum vel,
en við áttum samt aldrei von á að
ferlið myndi taka svona langan tíma
og að frágangur sölunnar yrði svona
torsóttur,“ segir Orri.
„Því það er í raun ekki fyrr en
um þremur mánuðum eftir að við
skrifuðum undir sölusamning sem
eftirlitið fer að láta til sín taka og
svo ekki fyrr en í júlí sem andmælin
lágu fyrir.“
Þar hafi strax tapast mikill tími
að mati Orra og staðan orðin tals-
vert snúin.
„Þá var strax ljóst að samningur-
inn við kaupandann var við það að
renna út og ekkert annað í stöðunni
en að setjast niður og semja upp á
nýtt. Í millitíðinni var samnings-
staða Símans orðin talsvert lakari.
Ekki bara vegna þessara tafa heldur
líka vegna óróans sem var í við-
skiptalífinu á þessum tíma,“ segir
Orri og er þar að vísa til ólgunnar
sem stríðið í Úkraínu skapaði.
„Svo þurftum við reyndar að
semja í þriðja sinn þannig að það
fóru talsverð verðmæti í súginn á
þessum tíma. Frá Íslandi til megin-
lands Evrópu. En allt tókst þetta
að lokum og það er auðvitað stóra
sögulínan í þessu.“
Samningar í höfn á elleftu stundu
Dæmið hafi þó staðið tæpt og allt
útlit fyrir að fallið yrði frá samn-
ingum.
markaðurinn12 28. desember 2022 miðVikuDaGur