Fréttablaðið - 28.12.2022, Page 38
Markaðurinn
Við áramót er við hæfi að fara yfir
liðið ár og horfa fram á veginn.
Árið 2022 hefur verið af leitt á
mörkuðum. Íslenski hlutabréfa-
markaðurinn hefur lækkað um
fjórðung og skuldabréf hafa einnig
lækkað. Sjaldgæft er að það gerist
samhliða yfir heilt ár.
Hér á landi hafa fasteignir hækk-
að um meira en fimmtung á árinu
en víðast hvar erlendis hafa þær
lækkað eins og f lestir aðrir helstu
eignaflokkar.
Allsérstakt er að íslenski hluta-
bréfamarkaður inn sk uli hafa
lækkað jafn mikið og raun ber
vitni vegna þess að rekstrarafkoma
íslenskra fyrirtækja hefur verið
með ágætum. Icelandair hefur til
dæmis lækkað í verði að undan-
förnu þrátt fyrir að olíuverð hafi
lækkað um meira en 30 prósent
og reiknað verðmæti félagsins sé
tugum prósenta yfir markaðsvirði
þess, eins og kom fram hjá Snorra
Jakobssyni í Markaðnum á Hring-
braut í síðustu viku.
Margar góðar fréttir bárust úr
íslensku viðskiptalífi á árinu. Salan
á Mílu gekk eftir en á tímabili leit út
fyrir að hún væri úr sögunni vegna
afskipta Samkeppniseftirlitsins.
Origo hagnaðist um 28 milljarða á
sölunni á eftirstandandi hlut í hug-
búnaðarfyrirtækinu Tempo.
Þrátt fyrir klúður við fram-
kvæmdina fékk ríkið gott verð fyrir
hlutinn sem seldur var í Íslands-
banka í mars.
Nú í lok árs tókust kjarasamn-
ingar til eins árs hjá stórum aðilum
á vinnumarkaði – samningar sem
gefa vonir um viðspyrnu í verð-
lagsmálum og aukinn stöðugleika
þegar horft er fram á veginn.
Á árinu var Alvotech skráð á Nas-
daq bæði í New York og Reykjavík.
Rétt fyrir jól bárust fréttir af því
að samþykki bandarísku lyfja-
stofnunarinnar á Humira líftækni-
hliðstæðunni verði á áætlun í apríl
og hægt verði að markaðssetja það
í Bandaríkjunum. Fjárfestar tóku
þessum fréttum vel og hlutabréf
þess hafa hækkað mikið. Alvo-
tech er orðið verðmætasta félagið í
íslensku kauphöllinni. Útlit er fyrir
að hagur þess vænkist enn þegar
Humira fer á markað í júlí.
Blikur eru þó á lofti. Seðlabank-
inn hefur hækkað vexti hraðar og
meira en nokkur annar seðlabanki.
Meira en fjórðungur heimila er
með óverðtryggð lán á breytilegum
vöxtum og fær þessar hækkanir
af fullum þunga á sig og sama má
segja um fyrirtæki.
Farið er að bera á alvarlegum
f járhagsvandræðum lítilla og
meðalstórra verktakafyrirtækja
vegna vaxtahækkananna og svo
virðist sem Seðlabankinn kunni
að hafa farið fullgeyst í að hækka
vexti og viss hætta sé á mjög harðri
lendingu í íslenska hagkerfinu.
Lendi mörg verktakafyrirtæki
í vandræðum eða rati jafnvel í
þrot getur það haft alvarleg áhrif
á íbúðaframboð hér á komandi
árum og áhrifa gæti jafnvel orðið
vart strax á nýju ári. n
Bjart fram undan
en mikil óvissa
Ólafur
Arnarson
olafur
@frettabladid.is
Við þökkum viðskiptavinum, starfsfólki og
samstarfsaðilum samfylgdina og óskum ykkur
gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári.
Saman umbyltum við matvælaframleiðslu á
heimsvísu og mótum sjálfbæra framtíð fyrir
komandi kynslóðir.
Gleðilega
hátíð
Marel.com