Fréttablaðið - 28.12.2022, Qupperneq 40
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Kær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Örn Sigurðarson
Kristnibraut 63,
Reykjavík,
lést þann 19. desember sl. á Ljósheimum
á Selfossi. Kveðjustund fer fram frá
Selfosskirkju fimmtudaginn 29. desember kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hans er bent á Pieta samtökin.
Elfa Bryndís Þorleifsdóttir
Eva Arnardóttir Gunnar Sveinsson
Sigurður Örvar Arnarson Anne Tove Svanevik
Ragnhildur Mjöll Arnardóttir Stefán Flego
afabörn og langafabörn
Elsku maðurinn minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Reynir Sigurjónsson
viðskiptafræðingur,
Boðahlein 29, Garðabæ,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
19. desember síðastliðinn. Hann verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju 9. janúar næstkomandi
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvini
Grensásdeildar. Streymt verður frá útförinni.
Henný Júlía Herbertsdóttir
Heiður Reynisdóttir
Sigríður Reynisdóttir Michael Erinfolami
Gabríel Gauti, Hekla Júlía, Þórunn Dúna og Tómas Tumi
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristbjörg Ólafsdóttir
frá Bergvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
23. desember. Við viljum þakka
starfsfólki heimilisins fyrir umhyggju og
góða umönnun. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jón Vikar Jónsson María Guðmundsdóttir
Karitas Erla Jóhannesdóttir Guðmundur Hafsteinsson
Jakobína J. Jóhannesdóttir Ólafur H. Steingrímsson
Ólafur Þ. Jóhannesson Andrea Ingibjörg Gísladóttir
Dóra St. Jóhannesdóttir
Sveinbjörn V. Jóhannesson Sigrún Jóna Héðinsdóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Rafn Gunnarsson
Huldugili 34, Akureyri,
lést á aðfangadag 24. desember
á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdís Erla Eiríksdóttir Arnþór Elvar Hermannsson
Hafdís Björk Rafnsdóttir Sigurður Gunnlaugsson
Gunnar Rafnsson Gréta Grétarsdóttir
Þorsteinn Frímann Rafnsson Sólveig Þórarinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og bróðir,
Gunnar I. Waage
Sléttuvegi 27,
Reykjavík,
lést þann 18. desember síðastliðinn.
Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju miðvikudaginn
28. desember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast Gunnars er bent á
að láta líknarstofnanir njóta þess.
Benedikt G. Waage Ólöf Björnsdóttir
Davíð G. Waage Carolina Castillo
Alexander, Ísabella, Emma Björk
Ólöf Erla I. Waage
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Björgvin Sigurðsson
prentari,
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi,
lést á Landakotsspítala
mánudaginn 19. desember.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag,
miðvikudaginn 28. desember, kl. 13.
Gylfi Kristinsson Jónína Vala Kristinsdóttir
Hilmar Kristinsson Margrét Hauksdóttir
Snorri Kristinsson Kristjana Jósefa Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Pétur Ármann Jóhannsson
Leynisbraut 32, Akranesi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 21. desember.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Lionsklúbb Akraness, kennitala 530586-1469,
banki 0186-26-17754.
Sigurveig Kristjánsdóttir
Jóhann Pétur Pétursson Ingibjörg Torfadóttir
Berglind Ósk Pétursdóttir Jón Vilhelm Ákason
afabörnin
Stórafmælisbarn dagsins er rit-
höfundurinn Oddný Eir Ævars-
dóttir sem fagnar fimmtíu árum
í dag.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég hef alltaf hlakkað til þess að verða
fimmtug og er afar þakklát fyrir að ná
þeim aldri,“ segir Oddný Eir Ævars-
dóttir, afmælisbarn dagsins, og bætir
við að hún vonist til að geta fagnað fleiri
stórafmælum enda eigi hún ungan son.
Hún heldur í gamla afmælishefð í til-
efni dagsins. „Það hefur verið siður hjá
mér að fara á skauta á afmælinu og mér
sýnist ég geta haldið því til streitu. Ef það
er búið að ryðja þá er það Tjörnin eða
Ingólfstorg.“
Afmælisdagskránni er þó ekki lokið.
„Mér var boðið að koma og fylgjast
með hraðskákmóti kvenna, svo ég kíki
kannski þangað,“ segir Oddný sem
velti því fyrir sér að halda stóra veislu á
afmælinu. „Ég bíð aðeins með það en hef
kannski vöfflukaffi fyrir mína nánustu
í staðinn. Svo ætlum við mæðginin að
fara til Parísar og heimsækja Disneyland
í tilefni tímamótanna einhvern tímann
með vorinu.“
Koparsnákar og norðurljós
Þessa dagana er Oddný að koma fót-
unum undir sína eigin bókaútgáfu sem
nefnist Eirormur.
„Það er í höfuðið á þessum undarlega
koparsnáki sem guð benti Móses á að
búa til og setja á stöng þegar snákafar-
aldurinn gekk yfir,“ útskýrir hún. „Ég
hef haft tilhneigingu til að fresta útgáfu
og halda áfram að vinna að verkunum
svo það er mikið uppsafnað hjá mér. En
ég er að gefa út þrjár ljóðabækur loksins
núna. Ég er mikil seinlöpp og ég er að
vona að ég muni hætta því núna þegar
ég er orðin fimmtug.“
Oddný er fljót að rifja upp sína uppá-
halds afmælisminningu.
„Ég man það þegar við bjuggum upp
á Hólsvöllum, fjölskyldan, þá áttum við
að fara í jólaveislu í Möðrudal á afmælis-
daginn minn þegar við festum bílinn í
skafli,“ segir hún. „Við urðum að ganga
stóran hluta leiðarinnar yfir Möðrudals-
öræfin. Það voru ofboðslega mikil norð-
urljós og stjörnubjart, svo það hlýtur að
vera mín fallegasta afmælisminning.“ n
Skautar, vöfflur og Disneyland
Oddný er þessa dagana að koma fótunum undir eigin bókaútgáfu, Eirorm. fréttablaðið/sigtryggur ari
Ég er mikil seinlöpp og ég
er að vona að ég muni
hætta því núna þegar ég
er orðin fimmtug.
1612 galileo galilei verður
fyrstur til að taka
eftir plánetunni Nep-
túnusi, en taldi hana
ranglega vera fasta-
stjörnu.
1836 Spánverjar viður-
kenna sjálfstæði
Mexíkó.
1846 Iowa verður 29. fylki
Bandaríkjanna.
1887 Bríet Bjarnhéðins-
dóttir flytur fyrst
kvenna á Íslandi
opinberan fyrirlestur
í Góðtemplarahús-
inu í Reykjavík sem
nefnist Um kjör og réttindi kvenna.
1894 Mikið ofviðri gerir á vestan og veldur talsverðum
skaða í Reykjavík.
1908 75.000 manns láta lífið í jarðskjálfta á Sikiley.
1927 Karlakórinn Heimir er stofnaður.
1965 Skammt frá Surtsey rís önnur eyja úr hafi og er
nefnd Jólnir. Hún er með öllu horfin innan eins árs.
1967 Borgarspítalinn í Fossvogi er formlega tekinn í
notkun.
1981 Fyrsta bandaríska glasabarnið fæðist.
1983 Vogur, áfengismeðferðarstöð SÁÁ, tekur til starfa.
Tímamót
TímamóT FréTTablaðið 28. desember 2022 mIÐVIKUDaGUR